Heima er bezt - 01.12.1957, Page 12

Heima er bezt - 01.12.1957, Page 12
og ytra félagslífi, heldur opnast oss sýn inn á heimilin, daglegu störfin við jarðyrkju, heyskap, skepnuhirðingu, kvöldvökulestur o. s. frv. Vér sjáum, hvernig landnem- unum lærist að laga sig eftir staðháttunum, en jafnframt fastheldni þeirra við íslenzkar venjur. Smám saman fær- ist sjónhringur þeirra út, þeir taka meiri og meiri þátt í almennum störfum, og hvar sem þeir koma fram, vekja þeir traust vegna dugnaðar, nægjusemi og umfram allt löghlýðni. En allt um það er mikil barátta háð áður en þeim tekst að samlagast heimaþjóðinni og verða metnir sem innlendir menn en ekki innflytjendur. Ég minnist ekki að hafa séð þá baráttu rakta fyrr af svo mikilli þekkingu og skilningi, sem þarna er gert. Gerð er glögg grein þess, hversu mikið íslendingarnir lögðu á sig þegar í upphafi til að afla sér skólamenntunar, enda er það álitlegur hópur, sem nýlendan hefur lagt til mennta- manna Canada. Er kaflinn um skólafólkið í senn lær- dómsríkur og skemmtilegur. Höfundur fylgist með þróun þeirra kynslóða, sem fæddar eru vestra og skilur ekki við landa sína fyrr en í nútímanum. Getið er ým- issa forystumanna á ýmsum sviðum, og hvem skerf þeir hafi lagt til þjóðfélagsins. Þá er rakin hluttaka Saskat- chewan-íslendinga í tveimur heimsstyrjöldum, og birt- ar myndir þeirra, er féllu. Er athyglisvert, hversu marg- ir íslendingar hafa gerzt sjálfboðaliðar á vígvöllunum. Undirtitill bókarinnar er: A Strand of the Canadian Fabric. Aleð því heiti vill höfundur auðsjáanlega gefa til kynna þá stefnu bókarinnar, að sýna hvernig íslenzka nýlendan í Saskatchewan hefur þróazt sem þáttur í þjóðarheildinni canadisku. íslenzku landnemarnir og niðjar þeirra hafa orðið ágætir þegnar hins nýja þjóð- félags. Þeir hafa reynzt traustur þáttur í því þjóðfélagi, sem skapazt hefur þar í landi. En höfundur sýnir einnig, að svo traustur hefur þáttur þessi orðið sem raun ber vitni um, að efnið var hin íslenzka arfleifð, og þeirri arfleifð hefur ekki verið glatað, heldur geymd dyggi- lega, þótt þátturinn sé slunginn við aðra þætti þjóðar- innar. Þess var áður getið, að höf. vonaðist eftir að bókin mætti auka skilning canadiskra manna á íslendingum þar í landi og því, sem þeir hafi lagt til sköpunar þjóð- arinnar, en bók þessi er einnig vel fallin til að auka skiln- ing vorn hér heima á íslandi á viðhorfum og þróun ís- lendinganna í Vesturheimi. Eins og geta má nærri, er bók þessi einkum skrifuð handa enskumælandi mönnum, og ber hún þess víða minjar. Vér hér heima söknum þar mannfræði og ætt- fræði, sem er minna um en títt er í slíkum bókum, sem skrifaðar eru fyrir íslenzka lesendur. Er það hvort- tveggja, að höfundi hefur reynzt torvelt að afla þar nægilegra upplýsinga, og auk þess hefði sá fróðleikur verið dauður bókstafur öllum þorra þeirra, sem bókina lesa. Víðsýni höfundar, hófsemi í frásögn og staðgóð þekking á viðfangsefninu gefur í senn bólcinni fræðilegt gildi og gerir hana óvanalega hugðnæma aflestrar. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. GAMLIR KUNNINGJAR eftir JÓH. ÁSGEIRSSON (Framhald) ergþór bóndi Jónsson í Fljótstungu orti mildð af tækifærisvísum á yngri árum. Þessi staka er um bónda, nýkvæntan, sem ein- hverra orsaka vegna varð að skilja eftir konu sína á bæ, fjærri heimili þeirra: Gott er að kyssa konuna kvöldin vetrar löngu. En leitt er að þurfa að láta ’ana lifa í haga-göngu. (Héraðssaga Borgarf.) Það er sagt í Selskinnu, 1. árg., 1948, eftir frásögn Sigurborgar Jónsdóttur frá Arnarbæli á Fellsströnd, að Símon Dalaskáld hafi verið þar á ferð um 1874. Og gisti hann þá á mörgum bæjum þar og þar á meðal Harastöðum. Þá var Sigurborg þar. Og segir hún að hann hafi ort um flest heimilisfólkið. í þessari ferð kom hann að Amarbæli. Konan þar var frú Oddný Smith, fríðleikskona. En ekki voru vinnukonumar Símoni geðþekkar, því hann kvað: Amarbælis-bryðjumar blíðu engum lána; af ber konan öllum þar, eins og sólin mána. (Þekkt vísa.) í sama riti er þess einnig getið, að Símon hafi ort vísu þá, sem hér fer á eftir í sambandi við hjónaband sitt. — Vísan mun víða kunn: Ég hef tapað frelsi og frið fyrir glapastrikið. Ópið gapir ólánið. Ó, ég hrapa mikið. Þá er Flöguskalla-rímu getið í Selskinnu. — Þar er aðalsöguhetjan umrenningur og mannleysa. Flöguskalli var mjög afkáralegur í háttum. Eitt sinn var það á mannamóti á Nauteyri undir Leirhnúk, að hann þurfti 396 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.