Heima er bezt - 01.12.1957, Side 14

Heima er bezt - 01.12.1957, Side 14
GUÐNISIGURÐSSON: VETRARFERÐ YFIR MOSFELLSHEIÐI Veturinn 1927 átti ég heima á Kárastöðum í Þingvallasveit. Var ég þar fjármaður hjá Einari Halldórssyni, bónda og hreppstjóra, og Guð- rúnu Sigurðardóttur konu hans. Vetur þessi var eins og margir aðrir vetur á Suðurlandi, óstilltur og um- hleypingasamur. Annað veifið hlóðzt niður svo mikill snjór, að nær ófært var um jörðina, eða þá gekk upp með suðaustan stórviðri og ausandi rigningu, sem síðan lauk oft með frosti og dimmum suðvestan éljagangi, og oft fylgdu þá á eftir þrumur og eldingar. Þannig var veðurfar oft á Suðurlandi, en svo gátu komið stillur og góð veður um langa hríð. Nú var tíðarfari þannig háttað, að hlaðið hafði niður miklum snjó, svo að allar samgöngur tepptust, og var talið ófært að komast um jörðina. Þessi ótíð hafði hald- izt í fullan hálfan mánuð, án þess að nokkurt lát yrði á hríðinni, en stormur var aldrei mikill. Svo var það einn morgun, þegar ég kom út, að hætt var að hríða og kominn þriggja stiga hiti, en loft allt Guðni Sigurðsson. blýgrátt, svo að búast mátti við snöggum umskiptum í slíku útliti. Enda stóð ekki á því. Ég hafði ekki lokið að drekka morgunkaffið, þegar farið var að rigna, og það á sunnlenzkan mælikvarða: úrhellisrigning. Nú þurftum við að láta hendur standa fram úr erm- um og moka frá húsunum í skyndi, svo að allt fylltist ekki af vatni. Þegar ég hafði gefið kindunum, tók ég að moka snjó ofan af húsunum, og við það var ég fram til klukkan 2. Kemur þá Einar til mín og segir, að yngsta barnið sitt sé orðið veikt af lungnabólgu, og biður hann mig nú að fara eftir meðulum suður til Reykjavíkur. Segist hann skuli reyna að stytta mér leið á þann hátt að síma til Reykjavíkur og biðja að koma meðulunum upp að Laxnesi í Mosfellssveit, svo að ég þurfi ekki að fara lengra. Ef satt skal segja, leizt mér ekkert á þetta. Heiðin var talin ófær, áður en fór að rigna, og ekki myndi hún betri í slíku óveðri, sem á var núna. Voru því litlar líkur til þess, að nokkur maður kæmist óskemmdur af heiðinni í slíku útliti, því að fáum klukkustundum liðnum myndi allt verða orðið ófært af vatnagangi. Segi ég því við Einar: — Heldur þú að þetta sé fært f þessu útliti? — Ég veit að það muni verða erfitt, segir Einar, en reyna má það. En heyrt hefi ég sagt, að þú hafir ekki látið allt fyrir brjósti brenna, þótt ekki væri það sem bezt. Vona ég því, að þú hafir þig fram úr því eins og áður. — Þá er að reyna það og sjá hvað setur. Geng ég síðan heim með Éinari til að búa mig til ferðar, og að hálfri stundu liðinni var ég kominn á stað. Var ég eins léttklæddur og frekast mátti á þessum tíma árs: innst í hlýjum prjónafötum og utanyfir í þykkum vaðmák- buxum, en að ofan í milliskyrtu og hvítri peysu, ís- lenzkri, og fylgdi henni sú náttúra, að ég myndi hafa mig úr öllum háska, meðan ég væri í peysunni þeirri. Hafði kona sú, sem peysuna prjónaði, látið þau um- mæli fylgja henni, að mér myndi ekkert granda né slys henda, meðan peysan entist, og trúði ég auðvitað þessu. Utanyfir var ég í léttri treyju og stuttri kápu, olíubor- inni, með sjóhatt á höfði og tvenna vettlinga á hönd- um. Þannig búinn lagði ég á heiðina, út í storminn og regnið, krapavaðalinn og óvissuna. Sjö tíma gangur var yfir heiðina, væri stytzta leið farin í góðu færi og veðri, en nú var viðhorfið mjög á annan veg, og ógem- ingur að komast leið þessa á svo stuttum tíma. Þegar niður á þjóðveginn kom, var klukkan orðin 398 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.