Heima er bezt - 01.12.1957, Qupperneq 19
PÆTTIR ÚR VESTURVEGI
eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum *
UNDRAHEIMAR SNÆFJALLA
Upp til fjalla.
unnudagsmorguninn 18. nóvember var
ég árla á fótum, illa sofinn þó. En nú var engin
miskunn, af stað skyldi lagt klukkan sjö áleiðis
til Yosemite. Og San Francisco skyldi nú endan-
lega kvödd. Enn var sama blessað sólskinið og undan-
farnar vikur, en viti menn, rétt þegar bíllinn rennur
út á Bay Bridge skellur yfir sótþoka, svo að enga hefi
ég svartari séð um mína daga. Lagðist hún í einu vet-
fangi yfir flóann og alllangt inneftir ströndinni. Las
ég síðar í blöðum, að valdið hefði hún umferðarslys-
um á ýmsum stöðum. í Oakland tók járnbrautarlest við
mér, og skyldi hún flytja mig til bæjarins Merced,
lengst inni á sléttu Jóakimsdalsins.
Leiðin liggur inn dalinn, fyrst var sótþoka, svo að ,
ekkert sást, en þó henni létti, grúfði mistur yfir land-
inu, svo að hvergi sá til fjalla. Ekið var gegnum altra,
vínekrur og aldingarða, svo þéttvaxna og víðlenda, sem
skógar væru. Lestin fór hægt og staðnæmdist í hverju
þorpi að kalla mátti, og loks var komið til Merced
um hádegi.
Ég greip farangur minn og fór út, engir aðrir farþeg-
ar skildu þar við lestina og engir bættust henni, svo að
af því má marka, að ekki væri um stórstað að ræða.
Ég gekk inn í biðsal lítils stöðvarhúss. Þar var engin
sál, og allar dyr lokaðar. Allt í einu opnaðist loka á
hurð, og ungur maður rak höfuðið út um gættina.
„Ert þú maðurinn, sem ætlar til Yosemite?“ spyr hann.
Ég hvað já við því. Hann segist þá hafa þau skilaboð
tií mín, að Yosemite-bíllinn komi og sæki mig þangað
á stöðina eftir rúman klukkutíma. Ef mig langi til að
skoða bæinn, skuli hann geyma farangur minn á meðan.
Þá ég það með þökkum.
Merced er smábær á miðri sléttunni. Vafalaust stunda
margir bæjarbúar landbúnað, eins og títt er í amerísk-
um sveitaþorpum. Bærinn er víðáttumikill, enda eru
hús flest lítil og götur breiðar, en garðar stórir við
hvert hús að kalla má. Augljóst er á öllu, að komið er
til suðlægra staða. Af trjágróðri ber nú mest á pálmum.
Fíkjutré eru hvarvetna í görðum, og víða eru mann-
hæðarháir kaktusar ræktaðir til skrauts. Þótt lauftré
ýms væru að fella þar blöð, var samt sumarlegra þarna
en niðri við ströndina, t. d. voru rósir hvarvetna enn
Að neöan til vinstri: Séð inn eftir Yosemitedal. Fossinn til
hœgri heitir Brúðarsleeðan.
Að neðan til hægri: Snœfjöllfrá fjallsbrúnum Yosemite.
■
!
-