Heima er bezt - 01.12.1957, Blaðsíða 21
Mátti þar meðal annars kaupa tröllaukna furuköngla,
gullnar skógarfléttur og fleira úr náttúrunnar ríki. Á
veggjum voru fest spjöld og á þau máluð eða skorin
málshættir og heilræði. Þar á meðal þetta:
Western philosophy
„Live each day so, that you can look every damn
man in the eye and tell him to go to hell,“ sem lauslega
þýtt er: lifðu þannig dag hvern, að þú getir öruggur
horft í augu hverjum sem er og sagt honum að fara til
fjandans. Þótti mér þetta góð heimspeki.
Aftur var lagt af stað. Leiðin lá nú upp þröngan dal,
Bjarnardal. Áin, sem eftir honum fellur, var nú þurr að
mestu. Hlíðar hans eru snarbrattar, ýmist vaxnar háum
skógi eða þyrrkingslegu kjarri, varla meira en mittis-
háu. Þegar upp úr dalnum kom, var komið fram á
fjallsbrún, en fram undan opnaðist heilt dalakerfi. Var
þar komið að upphafi Yosemitedals. Niður í dalinn bug-
aðist vegurinn um snarbrattar brekkur, sem helzt
minntu á Kamba. Síðan var elcið inn dal, svo þröngan,
að dalbotninn var ekki annað en farvegur árinnar, og
var vegurinn grafinn inn í hlíðina, og fylgdi hann öll-
um bugðum árinnar, svo að sjaldan sá bílstjórinn nema
nokkra tugi metra framundan sér. Hinum megin árinnar
var gamall vegur, sem minnti mig helzt á gamla veginn
um Óxnadalsheiði. Fjöllin á báða bóga eru heldur til-
breytingalítil. Næst ánni og veginum er samfelldur
skógur að kalla má, en ofar eru hlíðamar ýmist vaxnar
grasi og lágu kjarri, eða skógarteigum. Síðar frétti ég,
að skógleysið þama væri að kenna skógareldum, sem
geysuðu á þessum slóðum fyrir nokkm síðan. Allmikil
fjölbreytni er þarna í trjágróðri, og kom það meðal
annars fram í haustlitum þeirra. Þarna voru víðiteg-
undir að byrja að gulna, aspir, sem á sló gullnum blæ,
blóðrjóðar eikur, en einnig barrviðir ýmsir og sígræn
lauftré. Annars saknaði ég leiðsagnar dr. Clausens,
svo að ég varð að láta mér nægja, að kalla margt af
þeim gróðri, sem fyrir augun bar, „einskonar tré“, í
sama stíl og orðabókahöfundar vorir eru vanir að leggja
út náttúrafræðileg heiti.
Um skeið var vegurinn næsta hrikalegur, lá hann þar
um jökulöldur fomar og mjög stórgrýttar. Á einum
stað hékk stóreflisbjarg fram yfir veginn, og víða þótti
mér sem fjallshlíðin slútti yfir hann. Loks er komið að
hliði einu miklu. Vörður í grænum skógarmannaklæð-
um stöðvar bílinn og spyr bílstjórann, hversu farþegar
séu margir. „Sex stykki,“ svarar hann með fyrirlitningu
í rómnum. Vörðurinn rétti þá sex uppdrætti af daln-
um inn í bílinn, opnaði hliðið, og við runnum inn í
undraland Yosemite.
Þjóðgarðar.
Yosemite dalur er einn af hinum mörgu þjóðgörð-
um Bandaríkjanna. En ýmsir þeirra eru heimsfrægir.
Náttúmverndun og stofnun þjóðgarða og friðlanda,
hefir stöðugt aukizt fylgi meðal Bandaríkjanna lúna
síðustu áratugi. Þyldr mér því hlýða að geta þeirra að
nokkrn.
Jökultindur og Spegilvatnið innst i Yosemitedal.
„Maðurinn þarfnast fegurðar, ekki síður en fæðu.
honum er lífsnauðsyn að eiga sér athvarf, þar sem hann
getur leikið sér eða beðist fyrir eftir því sem honum
hentar, og þar sem náttúran sjálf veitir honum heil-
brigði, huggun og styrkleika, bæði á sál og líkama.“
Þessi ummæli, sem höfð eru eftir náttúrufræðingnum
og náttúraunnandanum John Muir, mega kallast ein-
kunnarorð og stefnuskrá þeirrar hreyfingar, sem
hrundið hefir af stað stofnun þjóðgarða og náttúra-
friðun í Bandaríkjunum. En John Muir var einn af
brautryðjendum þeirrar hugsjónar er liggur að baki
þjóðgarðanna, og friðun Yosemite var meira hans verk
en nokkurs eins manns annars.
Lög um þjóðgarðaþjónustu eru frá 1916, en frið-
unarhreyfingin er allmiklu eldri, svo og friðun ýmissa
svæða. Alls eru 174 svæði, stór og smá, víðsvegar um
Bandaríkin ríkisvemduð, en auk þeirra er fjöldi frið-
landa innan einstakra ríkja, og standa þau straum af
rekstri þeirra. En þó að starfsemi þessi sé þannig í
höndum ríkisvaldsins, vinna einnig geysifjölmenn sam-
tölt að því, að öll þessi starfsemi megi verða þjóðinni
til sem mestra heilla. En til marks um það, hversu
almennt menn njóta þessara friðlanda, má geta þess, að
um 50 milljónir manna heimsækja þau árlega.
Heima er bezt 405