Heima er bezt - 01.12.1957, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.12.1957, Blaðsíða 22
Þjóðgarðar og friðlönd eru af mismunandi tagi. Sumt eru víðáttumikil friðlönd, þar sem náttúran er geymd og friðuð ósnortin með öllu. Annars staðar eru vemduð einstök náttúrverðmæti, og enn eru staðir, sem frið- aðir eru vegna sagnhelgi eða menningarerfða. Loks má segja, að friðskógar ríkisins, Indíánalendurnar og svæði, sem einungis er friðuð vegna dýralífsins, séu með í þessari starfsemi. Sum þessara friðlanda em lokuð að mestu eða öllu leyti öðmm en vísindamönnum, sem fylgjast vilja með þróun náttúmnnar í þeim. En hinir eiginlegu þjóð- garðar eru öllum opnir. Hlutverk þeirra er tvíþætt. Annarsvegar að vernda náttúmverðmæti gegn eyðingu mannshandarinnar, enda má þar engu spilla, gróðri, dýram né jarðmyndunum, og mannvirki verður að gera, svo að þau hafi sem minnst spjöll á náttúrunni í för með sér. Hinsvegar er hlutverk garðanna að veita almenningi hlutdeild í fegurð náttúrannar og kenna mönnum að umgangast hana á siðmenntaðan hátt. Eru garðarnir þannig í senn skemmtistaðir og uppeldis- stofnanir. Hafa þjóðgarðarnir í heild verið reknir þannig, að þeir annars vegar gefi innsýn í náttúru landsins og þróunarsögu hennar, en á hinu leitinu segi þeir sögu þjóðarinnar, sem landið hefir byggt frá frumbyggjum til nútímans. Þegar inn í garðana kemur, vekur það furðu, hversu mikið er þar gert fyrir fólkið. í fyrsta lagi era vegir lagðir um þá þvera og endilanga, bæði akvegir og gang- stigir. Má svo heita, að enginn sé sá staður innan þeirra, sem nokkurs er um vert, að ekki sé þangað auðfært, hverjum heilfættum manni. Þá era útbúin tjaldstæði og hvíldarstaðir, þar sem menn geta staðnæmst og neytt nestis síns. Þar era reist borð og bekkir, eldstæði, vatns- leiðslur, hreinlætisklefar, bílastæði o. s. frv. Öllum er frjáls aðgangur að þessu án endurgjalds, annars en þess, að hreinsa til eftir sig. Hótelrekstur, bílaakstur og önnur slík þjónusta er einkarekstur, en allt undir eftir- liti garðastjómarinnar á hverjum stað, bæði um þjón- ustu og verðlag. Fjöldi manna vinnur við garðana árið um kring, en vitanlega þó mest á sumrin, þegar um- ferðin er mest. Fylgjast starfsmennirnir með öllu, sem gerist í náttúrannar ríki, vexti trjánna, atferli og fjölgun dýra, hafa gát á skógareldum og náttúrlegum land- spjöllum og leitast við að afstýra þeim. Ennfremur gæta þeir þess, að ferðamenn hlýði settum reglum og spilli engu, annaðhvort af vankunnáttu eða trassaskap. Þá leiðbeina þeir mönnum, og eru ætíð viðbúnir að gera út hjálparleiðangra, ef eitthvað er að. Verða garðverðir oft að leggja sig í bráða lífshættu sakir gáleysis fá- kunnandi og hirðulausra ferðamanna, sem í ógöngur lenda. Þá era fluttir fyrirlestrar og sýndar kvikmyndir af náttúru landssvæða þessara og sögu þeirra, og til þess fengnir hinir færastu menn. Náttúragripa- og þjóð- minjasöfn eru í hverjum þjóðgarði, og víða starfa þar hópar vísindamanna mikinn hluta ársins. Fyrst þegar þjóðgarðahreyfingin hófst í Bandaríkj- unum átti hún marga andstæðinga. Miklir örðugleikar reyndust oft verða á því, að fá lönd til friðunar, því að oft braut friðunin í bág við hagsmuni einstaklinga og félaga. En fáir munu þeir vera nú, sem telja eftir það, sem gert hefir verið, og era það þó engar smá- ræðisupphæðir, sem varið er árlega til þessara hluta. Alltaf fjölgar hinum friðlýstu svæðum. Með hverju ári era þeir fleiri og fleiri, sem skipa sér undir merld nátt- úravemdarfélaganna. Hin gamla hugsjón John Muirs er nú orðin eign alþjóðar, og hann er nú talinn einn af velgerðarmönnum þjóðarinnar fyrir að hafa kennt henni að njóta náttúrunnar, fegurðar hennar og yndis. i Í t : í - : ; Möðruvallakirkja Framhald af bls. 389 _____________________________ mannsstúkunni gömlu. Þar yar fyrsta orgelið vígt sunnudaginn 24. okt. 1875, og þá sat í sæti organistans Ólafur Tr. Jónsson frá Dagverðartungu. Hann hafði þá brotizt í því veturinn áður, með tilstyrk föður síns, að fara alla leið vestur að Melstað í Miðfirði til þess að fá kennslu í orgelleik og búa sig undir þetta starf. Ólafur var afi Gísla Ólafssonar, er hér varð einnig organisti, þó að skammt nyti, og á kirkjan all-stóran minninga- sjóð um þá frændur, til eflingar sönglífi sínu síðar meir. Við orgelvígsluna messaði síra Árni Jóhannsson í Glæsibæ, orðlagður söngmaður, og tók síra Davíð til altaris, eins og þá var mikill siður nágrannapresta. Var sú messa lengi í minnum höfð. En síra Árni var afa- bróðir núverandi organista Möðruvallakirkju, Jóhanns Ó. Haraldssonar, tónskálds. Seinna kom annað hljóðfæri, sem Jón A. Hjaltalín, skólastjóri, útvegaði frá Skotlandi, kjörgripur á sínum tíma. Það er enn notað í Glæsibæjarkirkju. En þriðja orgelið og þeirra mest, það, sem nú er, var fengið til kirkjunnar vorið 1928. Og einn organistinn var hér alls í starfi um 40 ár, og syngur enn með söngkómum, Jón Kristjánsson frá Bragholti. Það mættí geta fleiri starfsmanna kirkjunnar á liðn- um áram, sóknarnefndarmannanna að fomu og nýju, og svo ótal margra, sem lagt hafa sig fram um það að hlynna að þessu veglega húsi og efla það starf, sem hér er unnið. En, þegar ég hugsa um þetta, þá sé ég í rauninni ekki fyrir mér neina einstaka menn, heldur heila fylking, karla og konur, unga og gamla. Það er söfnuðurinn. Það er fólkið sjálft, sem á þessa Idrkju og hefur átt öll þessi ár, og hefur unnað henni og leit- azt við á hverjum tíma að gera veg hennar sem mestan. Ég þakka öllum, sem við þá sögu koma, lífs og liðnum. Þættir úr erindi, fluttu á 90 ára afmælishátíð kirkjunnar, 20. október 1957. 406 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.