Heima er bezt - 01.12.1957, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.12.1957, Qupperneq 23
HVAÐ UNGUR NEMUR — ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON----------------------------- NÁMSTJÓRI DÓTTIR HARÐSTJÓRANS MÉr er það sönn ánægja að fá að ávarpa lesend- ur þáttarins Hvað ungur nemur í sambandi við helgustu hátíð ársins. Mér er það líka sérstök ánægja að geta ávarpað ykkur með fegurstu kveðjunni, sem til er í íslenzku máli, en það er kveðjan Gleðileg jól! Engin kveðja er hlýrri. Engin kveðja er ríkari af kærleika. Um aldaraðir hafa börn og ungmenni um víða ver- öld heyrt og lesið söguna um fæðingu frelsarans og um þá undursamlegu atburði, er þá gerðust suður í Betle- hem í Gyðingalandi. Alltaf er sagan jafn heillandi, hve oft sem við lesum hana og heyrum, og yfir allri frá- sögunni er birta og friður nema sögunni um Heródes konung, sem óttaðist að þessi nýfæddi konungur myndi steypa sér frá völdum. Sá konungur hefur líka fengið að kenningamafni liótasta nafnið, sem hægt er að gefa nokkram manni. Ég á þama vitanlega við Hcródes konung, sem nefndur hefur verið barnamorðingi. Hann vildi fyrirfara hinum nýfædda konungi, en er honum tókst ekki að finna hann, lét hann reiði sína og grimmd bitna á öllum sveinbörnum á hans aldursskeiði í Betle- hem og nágrenni, í þeirri von að Jesús væri í þeim hópi. Ég ætla ekki hér að rekja þessa sorgarsögu, en ég ætla að segja austurlenzkt ævintýr eða helgisögu, sem ég hef einhvern tíma lesið, en þessi saga bregður ofurlítilli birtu yfir hin sorglegu myrkraverk Heródesar konungs. Heródes konungur átti stálpaða dóttur, er sagan ger- ist. Hún var 12 ára að aldri, bráðþroska og fögur. Nafn hennar var Lilith, en það merkir Nótt. Hún hafði dökkt, fagurlega liðað hár, var hörundsbjört og skipti vel litum. Hún hafði dökkar, fagrar, bogadregnar brúnir, og aug- un voru dökk og djúp, eins og tjarnir eyðimerkurinnar. Hún var blíðlynd og góð og þekkti elckert til vonzku mannanna.-------- Það var liðið að kvöldi. Úti var kyrrt og hlýtt, en röklturhula færðist yfir landið. Litla konungsdóttirin var þungt hugsandi. Hún var að rifja upp minningar sínar frá bamsaldrinum. Hún var að hugsa um mömmu sína, sem dó, þegar hún var lítið bam. Hún mundi ó- glöggt eftir henni. Við fætur kóngsdóttur sat lítil svert- ingjastúlka og svalaði henni með blævæng. Litla svert- ingjastúlkan hét Nóun. Við fætur hennar lá líka lítill köttur og malaði. Báðar stúlkurnar sátu á skrautlega gerðum púðum, eins og siðvenja er í Austurlöndum. Lilith hélt áfram að hugsa um móður sína. Hún minntist þess, hve hún hafði verið blíð og góð og hve gott hafði verið að halla sér að brjósti hennar. En svo var hún allt í einu dáin. Ekki vissi hún, af hverju hún dó svona snögglega. Hún hafði ekkert verið veik. Hún vissi ekki, það sem allir aðrir vissu, þótt enginn þyrði að segja það upphátt, að það var konungurinn, faðir hennar, sem hafði valdið dauða hennar í æðiskasti. Hún vissi það heldur ekki, að hann hafði marga menn pínt og deytt, — en hún gat þó aldrei að því gert, að hún var ætíð hálfsmeyk við föður sinn, Heródes konung. Hann var þó oftast góður við hana, en oft var hann undarlegur í háttum sínum, og hún skildi hann ekki. Stundum dimmdi allt í einu yfir svip hans og hann varð æstur og órór í fasi. Þá dró hún sig jafnan í hlé. Þá fannst henni ekkert gaman að vera hjá honum. Hún var líka að hugsa um Messías, sem Gyðingaþjóð- in átti von á. Hin gamla fóstra hennar hafði sagt henni svo margt um hann. Hún var líka að hugsa um leiksyst- ur sína, sem var dálítið eldri en hún. Nú var hún gift og átti heima í Betlehem. Hún átti undurfagran lítinn dreng, sem hét Hóseal. Það var svo undur gaman að) leika sér við hann. Lilith fór oft til Betlehem og Nóun með henni. Þær óku í vagni, sem hvít múldýr gengu fyrir. Lilith réð sjálf yfir þessum vagni og mátti nota hann, þegar hún vildi. Hún hlakkaði alltaf til að hitta Hóseal litla. Skelfing hélt hún að sér leiddist, ef Hóseal litli væri ekki. Hann var hennar mesta yndi. Bara að Guð gæfi honum góða heilsu. Veðrið var enn kyrrt og hlýtt, þó að nóttin væri dimm. Lilith og Nóun stóðu upp og gengu út í garðinn. Kisa nennti ekki að hreyfa sig en teygði sig letilega og hringaði sig svo aftur niður á púðann sinn og fór að sofa. Á grasbekk úti í garðinum sat Sabúlon gamli. Hann hafði lengi verið þjónn í konungsgarði, og öllum þótti Heima er bezt 407

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.