Heima er bezt - 01.12.1957, Side 30

Heima er bezt - 01.12.1957, Side 30
Kristín og Arthur Gook: Flogið um álfur allar. Akur- eyri 1957. Bókaforlag Odds Bjömssonar. Enda þótt ferðasaga þessi fjalli hvorki um stórviðburði né háska- samleg ævintýri, og höfundarnir hafi farið mest venjulegar ferða- mannaleiðir, er víða komið við og frá mörgu sagt, sem nýstárlegt er í augum þeirra, sem heima sitja. Eins og titill bókarinnar ber með sér, komu þau hjónin við í öllum álfum heimsins, enda lá leið þeirra umhverfis jörðina. Hvarvetna heimsóttu þau trúbræð- ur sína, og hélt Mr. Gook fjölda af samkomum auk þess, sem hann skýrði frá Islandi, hvar sem þau lögðu leiðir sínar. Þarf ekki að efa, að þar hefur verið um góða landkynningu að ræða. En ein- mitt vegna trúboðsstarfsins komust þau hjón oft í mkilu nánari snertingu við fólkið og fengu meiri kynni af lífi þess og hugsunar- hætti en ferðamenn almennt gera. Gefur þetta bókinni aukið gildi. Frásögnin er látlaus, án útúrdúra, en rauði þráðurinn í allri bók- inni er trúin á handleiðslu guðlegrar forsjár, er greiddi úr vanda- málum þeirra hjóna, hvar sem þau fóru. Það er óhætt um það, að engum leiðist sem þessa bók les, sem auk þess er fallega gefin út og prýdd fjölda ágætra mynda. Elinboig Lárusdóttir: Forspár og fyrirbæri. Reykjavík 1957. Norðri. Bók þessi fjallar um dulargáfur íslenzkrar konu, sem nú er bú- sett í Vesturheimi, Kristínar Helgadóttur Kristjánsson. Bókin er í fjórum meginþáttum: Forspár, sýnir, sálfarir og dulheyrn og frá fundum. Að vísu virðist flokkun þessi naumast nákvæm. Þannig eru raunar margar forspárnar sýnir, en slíkt skiptir ekki miklu máli. Miklu meira er um hitt vert, að hér er skýrt frá svo fjölhæf- um dulrænum gáfum, að fágætt mun vera, ekki einungis hér á landi, heldur hvar sem er, og mörg fyrirbrigðanna eru hin undur- samlegustu. Kristín er í senn gædd miklum og fjölbreyttum miðils- gáfum, er rammskyggn, heyrir dulheyrnir, fer sálförum og getur að sögn átt tal við framliðna menn eins og maður við mann. Og frásagnir þær, sem bókin flytur, gera hana girnilega til fróðleiks og vænlegt efni til umhugsunar. Þó hlýtur maður að sakna þess, að reyndir sálarrannsóknamenn skyldu ekki eiga þess kost að fylgj- ast með hinum undraverðu dulargáfum Kristínar, svo að miðils- gáfa hennar hefði hlotið meiri þjálfun og fyrirbærin verið könnuð með vísindalegri nákvæmni. Ýmislegt er það, sem forvitnum les- anda mundi og leika hugur á að vita nánar, t. d. umsögn Kristín- ar sjálfrar af þvi, hvernig dulargáfur hennar hafa þroskazt með henni, og hvernig henni finnst hún skynja þá hluti, sem frá er sagt, og hver áhrif þessi sérgáfa hennar hefur á hana haft. 1 sög- unum sjálfum kemur ekki nógu ljóst fram, t. d. hvenær hún sér sýnir í fullkominni vöku, eða hvenær er um eins konar trance- leiðslu að ræða. En sjálfar eru sögurnar merkilegar, einkum þó sá kaflinn, sem nefndur er forspár. Sum þeirra fyrirbæra virðast þó heyra fullt eins vel undir fjarskynjun, svo sem um Pourquoi pas, kafbátana og fleiri sagnir, enda þótt nokkur forspá komi þar einnig fram. En fleiri dæmi eru þess, að hún sjái samtímaatburði, sem eru að gerast í fjarlægð. Kristín var sjálf snemma svo forsjál að skrásetja eða láta skrifa um fyrirburði sína og miðilsfundi, er hún hélt, og eykur það gildi sagnanna að vera skrásettar samtímis. En hins vegar hlýtur athug- ull lesandi að sakna þess, að sögurnar skuli ekki vera tryggilegar vottfestar en gert er. Höfundurinn, frii Elinborg, gerir grein fyrir því á þessa leið: „Ég hef stuðzt við frásagnir fólksins og skrifuð blöð. Það ætti að vera trygging þess að sagnirnar séu réttar og sannar. Ég hef því ekki lagt áherzlu á að vottfesta sagnirnar. Þeir, sem engu trúa og allt rengja, munu halda áfram að rengja, þótt allt sé vottfest.“ Hér gætir mikils misskilnings. Margir eru þeir, sem vilja trúa, en eru gæddir svo mikilli efagirni eða gagnrýni, að þeir verða að hafa óvéfengjanlegar sannanir og vottorð í höndum, til þess að taka sögnina gilda, og þegar slíkt er unnt, þá á ekki að láta það undir höfuð leggjast. Og þótt enginn, sem til þekkir, ef- ist um heiðarleik viðkomenda, er það ekki nægilegt, ef frásagn- irnar eiga að hafa vísindalegt gildi fyrir sálarrannsóknirnar. Hversu miklu merkilegfi væru t. d. ekki spádómarnir um heims- styrjöldina, ef þeir hefðu verið skráðir samtímis, með réttum dag- setningum og svo mörgum vitnisburðum, sem kostur var á. Og þannig mætti lengi telja. Það skal fram tekið, að fjarri fer það mér persónulega að rengja það góða fólk, sem hér kemur við sögu. En mér sárnar, að svo frá- bærlega gott sannanaefni og rannsóknar skuli ekki hafa verið með- höndlað, svo að þar væri hvergi smuga til renginga, þar sem það var mögulegt. En þessi vinnubrögð eru allt o£ algeng meðal vor. En allt um þessar aðfinnslur, þá er hér um að ræða merkilega bók, sem á skilið að vera lesin og um hana hugsað. Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson: Flrakningar og heiðavegir IV. Reykjavík 1957. Norðri. Með þessu bindi lýkur hinu merka ritsafni, er þeir Pálmi og Jón hófu að gefa út fyrir allmörgum árum og sífellt hefur aukizt að vinsældum. Munu því margir sakna þess, ert von er þó til, að Jón Eyþórsson sjái sér fært að halda áfram líkri útgáfu. Bindi þetta hefur Jón búið til prentunar, en nokkrar frásagnir eru þó frá hendi Pálma Hannessonar, sem hann hafði gengið frá, áður en hann lézt svo sviplega fyrir ári síðan. í bindinu eru sem fyrri ferðaþættir gamlir og nýir, frásagnir um hrakninga og svaðilfarir o. fl. af liku tagi. En allar frásagn- irnar, hvað sem þær annars hljóða um, bregða upp myndum til aukins skilnings á landi voru og náttúru þess og þeirri lífsbaráttu, sem háð er og hefur verið háð í landinu frá öndverðu. Þess vegna eru Hrakningar og heiðavegir mikilsvert heimildarrit um islenzka menningarsögu, jafnframt því sem þar er geysimikinn fróðleik að finna um landfræði Islands og náttúru. Þar við bætist og, að frá- sagnirnar eru yfirleitt eins skemmtilegar aflestrar og spennandi skáldsaga, og frágangur allur hinn vandaðasti. Bragi Sigurjónsson: Hrekkvísi örlaganna. Sögur. Akureyri 1957. Höfundurinn, sem þegar er fyrir alllöngu kunnur sem ljóðskáld, kemur nú i fyrsta sinni fram á sjónarsviðið sem söguskáld. 1 bók- inni birtast tólf smásögur. Efnið er fjölbreytt, svipmyndir frá liðn- um tímum, nútímasagnir um hina ólíkustu atburði. ádeilur og gamansögur. Allar eru sögurnar vel sagðar, á hressilegu íslenzku sagnamáli, eins og vér höfum gert frá ómunatíð. Virðist það hafa hlaupið fyrir brjóstið á sumum ritdómendum, að höf. skuli eklci hafa meira nýtízkusnið á frásögn sinni. Sögurnar eru að vísu nokkuð misjafnar að gæðum, en allar hafa þær það til síns ágætis, að þær eru léttar aflestrar, aldrei þunglamalegar né leiðinlegar. og að baki þeirra allra er þyngri undiralda; höfundur hefur lengst- um eitthvað að segja, en skrifar ekki til þess eins að skemmta lesandanum. Einna lakast þykir mér höf. takast með söguna Sælir eru hjartahreinir. Kímnin er ekki nógu létt til þess að hitta í mark. Verndari smælingjanna í Suðurdölum er gömul saga, sem naum- ast endurtekur sig aftur, og á þvi minna erindi en hún hefði átt fyrir mannsaldri síðan, enda þótt harðýðgi og hugsunarleysi um hag annarra sé alltaf ný saga. Draugasagan i Galdrakarlinum Mike er sögð af þeirri kynngi, sem bezt verður gerð í íslenzkum þjóð- sagnastíl. Síðasta sagan, Hrekkvísi örlaganna, er snjöll saga og vel sögð, þótt efnið sé með nokkrum ólíkindum, og höf. hefði átt að leyfa lesandanum að geta enn meira i eyðurnar að sögulokum. Fleiri dæmi verða ekki tekin hér, en höfundi er áreiðanlega óhætt að halda áfram að skrifa smásögur. 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.