Heima er bezt - 01.03.1958, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.03.1958, Blaðsíða 19
HVAÐ UNGUR NEMUR- ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON ------------------------------- NÁMSTJÓRI VARIZT HÆTTURNAR! Slysavarnir — björgun Fy r i r nokkrum árum kom út bókin Utilíf, hand- bók í ferðamennsku. Jón Oddgeir Jónsson sá um útgáfuna. Þessa bók ættu allir að eiga, sem eitthvað ferðast. Einn þátturinn í bókinni er eftir Helga heitinn Jónsson, bónda í Seglbúðum. Hann er um sundreið í ám og vötnum. Þar segir meðal annars: „Búist maður við því að hleypa á sund, verður að gæta þess, að hafa gott taumhald á hestinum. Hafa taum- ana jafna báðum megin og hafa hér um bil 8 þumlunga bil milli makkans á hestinum og handarinnar. En jafnskjótt og hesturinn grípur sundið, skal hend- inni, er um tauminn heldur, gripið í faxið það framar- lega, að nóg slekja verði á taumunum til þess, að hestur- inn geti teygt fram höfuðið á sundinu. Hendinni skal svo haldið þar kyrri, þar til hesturinn nær í botn. Einnig er gott að geta gripið hinni hendinni í faxið, ef hennar þarf ekki til annars. í straumvötnum vilja flestir hestar halla sér mikið í strauminn, og þá mjög erfitt að sitja á þeim, því að ekki má halla sér með hestinum til hliðar, því að þá er hætt við að bæði maður og hestur velti á hliðina. Skal því reynt að sitja sem réttastur, en halla sér dálítið fram á makkann og halda fótunum þétt að hestinum. Séu ístaðsólar mjög langar (ístöðin nái niður fyrir kviðinn á hestinum) er vissara, áður en farið er út i vatnið, að leggja þau á víxl fyrir framan hnakkinn, því að komið hefur fyrir, að hestar hafa farið með fætur í ístöðin og sokkið samstundis. Ef hestinum fatast sundið, hefur það reynzt vel að velta sér af honum, undan straum, en halda sér þó sem fastast í faxið. Flýtur maður þá ofan á vatninu við hlið- ina á hestinum, og er hann þá laus og getur því synt miklu Iengri leið. En því aðeins er ráðlegt að gera þetta, að rnaður sé óhræddur og geti gert það fumlaust, því að hver ógæti- leg hreyfing getur sett mann og hest í voða. Það, sem sérstaklega verður að varast, er, að undir eins og hesturinn er kominn á sund, má undir engum kring- umstæðmn taka hið minnsta i taumana. Ekki einu sinni, þó að hesturinn taki ranga stefnu á sundinu, því að geri maður það, kaffærist hesturinn óðara. Hafi maður hesta í taumi, verða þeir að vera þeim megin, sem veit undan straumi, og ævinlega skal hafður einteymingur á þeim. Að öðrum kosti geta þeir flækt sig í taumana, ef maður yrði að sleppa þeim á sundinu.“ Þetta segir Helga Jónsson unt sundreið, og eru þessar athuganir hans byggðar á reynslu. Aldrei er of gætilega farið á ísurn. Sérstaklega er ís- inn hættulegur á vordögum. Oft kemur það fyrir, að ríðandi maður missir hest sinn niður um ís, en oft kast- ast þá maðurinn fram af hestinum, upp á ísinn. Er þá erfitt að bjarga hestinum, nema með mikilli mannhjálp. Skriðið út á isinn og haldið t. d. á flík, til þess að kasta til mannsins i vökinni. Heima er bezt 93

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.