Heima er bezt - 01.03.1958, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.03.1958, Blaðsíða 25
andi. Nú undraðist hann það ekki, að Jenný hafði stundum barmað sér í bréfum sínum. Jenný lá ein eftir uppi í litla rúminu sínu, með lokuð augu, dauðþreytt eftir hina kærkomnu heim- sókn. Um kvöldið kom Karl van Laer til hennar, en hún var svo þreytt, að hún veitti honum litla athygli. Hann lagði dálítinn klasa af vínberjum á náttborðið hennar og athugaði hana um stund. Nú sá ungi læknir- inn, hvað það var, sem pabbi hans óttaðist. Hann óttaðist, að þessi ungi, veikbyggði líkami þyldi ekki jafn banvæn hitaköst, eins og hún hafði fengið liðna viku. Hann lagði varlega kalda hönd sína á sjóðheitt enni Jennýar. Þá opnaði Jenný augun. „Yndislegt,“ sagði hún brosandi og lokaði aftur augunum. Hann dró stól að rúminu og settist. „Mig þyrstir,“ hvíslaði Jenný. Karl gekk að borðinu, hellti í vatnsglas, lyfti undir herðar hennar og bar vatnsglasið að vörum hennar. Jenný hallaði sér upp að honum, eins og saklaust barn, og Karl tók þétt utan um hana og talaði við hana eins og barn: „Þær hafa líklega þreytt þig of mikið í dag með heimsókn sinni,'þessir stelpukjánar. Ég skal svei mér taka Jóhönnu til bæna, og ekki síður Lilju og Nönnu. Hávaðinn í Nönnu gæti gert hvern hraustan mann veikan,“ bætti hann svo við hlæjandi. Þá opnaði Jenný augun brosandi og sagði: „Þó þótti mér það svo gaman.“ Allt í einu mundi Jenný eftir blómvendinum. „Þakka þér kærlega fyrir blómin, sem þú sendir mér leikkvöldið góða. Það var fallega gert af þér. Veiztu það? Ég hef aldrei fyrr fengið blóm frá nokkrum manni.“ Karl varð svo hrærður, að vel mátti heyra á mæli hans. „Reyndu bara að verða fljótt frísk, þá skal ég sjá um, að þú fáir heilan bunka af blómum.“ „Fæ ég rósir?“ sagði hún brosandi, um leið og hún hallaði sér út af á koddann. Hún lá með galopoin augu og starði dreymandi út í loftið. Karl hélt í hönd hennar og talaði um daginn og veginn, en Jenný hlustaði hugfangin. Æðasláttur- inn var daufur, hendurnar voru kaldar og þvalar, en Karl reyndi að verma þær í sínum heitu, hraustlegu lófum. Hann sá, að hitinn var að aukast, og eftir nokkurn tíma féklt hún erfitt hitakast með óráði. Hún sló óró- lega frá sér, og augu hennar hvörfluðu fram og aftur um herbergið. Hún byrjaði að syngja, en lagið hljóm- aði ekki. Svo hló hún hátt, en litlu síðar hrundu tárin um kinnar hennar. Ungi læknirinn talaði róandi við hana: „Vertu róleg, Jenný mín. Liggðu kyrr — þú mátt ekki tala. — Nei, þú ert ekki ein. Ég er hjá þér,“ og svo þrýsti hann henni varlega niður á koddann, með hlýjum tökum. Hann hélt henni niðri með annarri hendi, en með hinni hendi hringdi hann bjöllu, og Huug, bróðir Jennýjar, kom þjótandi upp stigann. Hann varð undr- andi, er hann sá breytinguna, sem orðin var á sjúkl- ingnum á stuttum tíma. Ungu mennirnir tókust þegj- andi í hendur. „Hvað heldurðu?“ spurði Huug lágum rómi. „Við missum hana,“ hvíslaði hinn. „Ó, segðu það ekki — segðu það ekki. Hún er eina manneskjan, sem mér þykir vænt um. Ég get ekki án hennar verið.“ Og þessi stóri, ungi maður grét hljóð- lega. Hann hnoðaði vasaklútnum fyrir munninn, svo að minna heyrðist til hans. Karl horfði hryggur á hann. „Ég get heldur ekki án hennar verið,“ sagði hann hljóðlega. Á meðan þeir töluðust við, heyrðist stöðugt óráðs- hjal frá sjúklingnum. Jenný talaði um skólann, leik- kvöldið, hjólhesta og vinstúlkur sínar. Allt hvað inn- an um annað. „Viltu senda eftir muldum ís á hjálparstöð Rauða krossins. Segið að ég hafi beðið um hann. Biðjið líka forstöðukonuna að senda hingað hjúkrunarkonu til að vaka í nótt.“ Huug fór niður til að framkvæma fyrirmælin. Hann kom von bráðar aftur með ísinn. Þá var Jenn- ýju orðið rórra. Rétt á eftir kom frúin, frænka Jennýjar, með þá fregn, að ekki væri hægt að fá hjúkrunarkonu fyrr en daginn eftir. Hún hafði mörg orð um þetta, eins og háttur er ómerkilegs fólks, sem þykir matur í að geta lagt eitt- hvað til málanna. „Hvað eigum við að gera?“ sagði hún upp aftur og aftur. „Þetta hittist reglulega illa á.“ Karl anzaði ekki þessu fjasi, en leit þurrlega til hús- móðurinnar og sagði: „Viltu gjöra svo vel að koma boðum heim til mín, að ég sofi ekki heima í nótt. Láttu skila til pabba frá mér, að hann þurfi ekki að koma. Ég geti vel verið einn hjá henni í nótt.“ Þá fór húsmóðirin niður aftur, en fyrst sneri hún sér að unga lækninum og spurði: „Er þá ekkert fleira, sem ég get gert?“ Karl svaraði kuldalega: „Nei, þakka yður fyrir,“ og losaði hana þannig við frekari fyrir- höfn. Þögulir sátu þeir Karl og Huug hjá fársjúkri, ungu stúlkunni, langa, þreytandi nótt. Kaldir og hálf skjálf- andi neru þeir hendur sínar og reyndu að halda á sér hita. Þeir urðu fegnir, er fyrsta skíma dagsins brauzt í gegnum gluggatjöldin. Brátt var það öllum ljóst, að Jenný mundi ekki ná fullri heilsu aftur. Öðru hverju virtist hún þó vera eitt- hvað hressari, en kraftar hennar þurru þó smátt og smátt. Jóhanna, Nanna og Lilja voru einu stúlkurnar, sem heimsóttu hana, þegar hún var svo hress, að hún hefði ánægju af því. Mamma Jóhönnu koma líka stundum með vínber handa henni. Oftast lá Jenný þögul og hljóð með lokuð augu. Hún vissi nú að batinn var vonlaus, en hún sætti sig við örlög sín, og heyrðist aldrei barma sér. Svo var það eitt kvöldið, er Karl sat einn hjá henni, að hún opnaði augun, leit rólega á Karl og sagði: „Mér getur víst ekki batnað. Er það, Karl?“ Framhald. Heima er bezt 99

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.