Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 9
Jeg ræð þjer því eindregið til að prenta alt nema það, sem jeg hef bent þjer á að jeg mundi ekki prenta, og þó er skaðlaust að prenta það flest, ef eitthvað kynnu að vera uppáhaldsbörn, þó þau sjeu ekki jafn efnileg eða fríð og sum hinna eru. Ástin er svo skrítin og á rjett á dutlúngum sínum þar eins og annarsstaðar. Og hjer er jeg kominn að því atriði, sem gerði mig sártreg- an til að fara að velja úr hjá þjer, því við það tapa jeg og aðrir því, að sjá, hvað þjer er hugieikið að láta koma á gáng eða ofurlítið inn í hug þinn, sem þú ætlaðir ef til vill ekki að láta sjá, þar má stundum ýmislegt á litlu marka, en nú baðst þú mig svo vel, eins og saklausa einlæga barnið gamla og tiltrúin sjálf. Jeg hef, eins og jeg gat um á blaðinu,1) kveðið upp yfir þeim dóminn hverju jafnóðum og jeg las þau. Jeg hef þar aðeins tekið tillit til skáldlegs gildis þeirra og einskis annars. Að þau hneyksli, kemur ekki til greina, fyrir þau sker verður aldrei iglt, þá yrði að sálga öllum lausaleiksbörnum í móðurlífi og guð hjálpi hórbörnun- um. Það sem á erindi í heiminn og á skilið að lifa, má ekki eiga líf sitt undir smásilum samtíðar sinnar, og þó þú feingir hnútur fyrst í stað, hvað sakar það? Þær kon- ur eða karlar, sem hnúturnar senda, öfunda þig ef til vill mest af því að hafa átt dirfskuna til að láta sjá það og kjarkinn til að standa við það og andann og snilldina til að hugsa það, en heimskunni, sem ekkert sjer, er synd móti heilögum anda að fórna einni línu. Það eitt, sem hneykslar frjálslynda sme; kmenn, getur verið varhuga- vert og við það hef ég eitr miðað bæði þín ljóð og mín og við ekkert annað. Þú getur róleg látið prenta alt fyrir því, að þar er vandaíaust að sitja fyrir svörum. Jeg efast líka mjög um að nokkur maður hneykslist, mjer sýnist alt þar svo milt, hógvært og ertnislaust. Annað er það, hvað þu kant að vera óráðin í að láta prenta af persónulegum ástæðum. Þar get jeg ekki lagt dóm á, til þess þekki jeg þína menn altof lítið. En frá almennu sjónarmiði er það siðferðilega öldúngis rjett- mætt að unna öðrum em þeim, sem menn af tilviljun eru efnalega bundnir víð. Þar á einginn sök á nema bóndi þinn, allra síst kvennfólkið eins og giftíngarniður- læging þess er nú varið. Þig ætti það síst að saka um það, þó þú játir á þig einmitt þetta, sem bæði þær og við verðum að heimta einum rómi sem rjettindi okkar. Jeg sje ekki að þú gefir neinsstaðar höggstað á þjer sjálfri nema ef vera skyldi, þar sem þú segir í þessu ljómandi fagra kvæði, næst sei uista,2) að þú hafir ekki verið honum ótrú. Það nægír þjer að vita ein, um það varðar eingan annan mann og þó við spyrðum, væri rjettast að svara okkur ekki. Jeg bendi þjer svona á skilníng eða dóm minn á þessu atriði. Mjer þykir það setja eins og skugga á drottníngarvfirbragðið, vera beygt sig dýpra fvrir náúnganum en rjettmætu og frjálsframbornu mál- efni sæmir, einkum þcgar þú hefur gert svo fallega grein fyrir sambandi þínu við mann þinn sem vin. 1) Athugasemdir Þors teins við kvæðin fylgdu bréfinu á sérstöku blaði. 2) Þarna er vitnað ti' kvæðis Ólafar: Til hinna ófæddu. Ritsafn bls. 61. Þú spyrð mig hvort menn muni ráða gátuna af kvæð- unum, hver vinur þinn sje? Það held jeg áreiðanlega. Af þeim þóttustum við Guðrún ráða þegar á Bíldudal 1902 hver hann væri og það af þessari einu vísu: „Alt hans lag“. Hún á varla við nema einn mann á landinu, svo nákvæmlega er hún hnitmiðuð á hann — þegar horft er á hann ástaraugum... En þó menn nú geti sjer þess til, hvað sakar það? Þvaðrið í kríngum þig? Hefurðu það ekki hvort sem er? Jeg hef að vísu ekkert orð um það heyrt. Dóma manna útiífrá? Þeir verða aungvu fremur til áfellis þó menn gruni hver maðurinn er, og alt þetta er þó aðeins stundarkorn að líða hjá. Eftir verða ljóðin, og undir gildi þeirra finst mjer alt komið. Auk þess er efinn altaf á næstu grösum þegar vissan er ekki vísari en hjer, mennirnir eru svo gerðir. Og hjer er einginn ókunnur maður svo öruggur að hann þori að leggja hönd á helga bók — nema við Guðrún? Því dæmist rjett vera: Ekkert vit í að láta þetta.Iiggja eftir þig dauða, betra og mannslegra að standa við það lifandi. Prentaðu alt, sem á það skilið vegna skáldlegs gildis, en sem fæst af hinu. Þá er það hagur, ekki ella. Mynd eins og á Þyrnum kostar eitthvað 12 krónur og að prenta hana ytra eitthvað 6 kr. 1500 upplag, og pappír þá ekki talinn. Og nú hef jeg reynt að gera bón þína eins vel og jeg get og vona jeg að þú sjáir á athugasemdunum allan vilja minn. Þurfir þú að spyrja fleira, og tími sje til, þá er það velkomið. Röð kvæðanna finst mjer vera best eftir aldri. Þá eina röð getur þú gert betur en við hinir, allar aðrar raðir getur hver gert sjálfur, það þarf þó ekki að vera nákvæmt. Þessi röð, sem nú er, er góð. Jeg raðaði Þyrnum eftir aldri. Eingin röð er líka góð. Ekki áhorfsmál að láta prenta þau, í þeim er mikið af góðum ósviknum skáldskap eins og hjá þcim, sem bestir eru. Þetta er áreiðanlegt. Þú færð ef til vill eitt- hvað marklaust þvaður á bak eða brjóst rjett sem snöggvast og þó efa jeg það. En ef nokkur fer þar fet úr hófi opinberlega, þá verður fleirum að mæta en þjer einni. Svo bið jeg þig að afsaka, að jeg gat ekki sent þjer þetta með fyrsta póstinum, jeg er nærri „tímalaus“ um þennan hluta árs meðan skólar og kensla erja sem örast á. Jeg hjelt heldur að þú vildir að þetta drægist til næsta pósts, og jeg gerði það eins og jeg vildi. Borgun- ina getur þú tekið undir sjálfri þjer, hjá gamalli vin- semd þinni við mig, gamalíi og úngri. Svo ættirðu að skrifa mjer dálítið rækilegan miða. Láttu prenta kvæð- in dálítið fallega t. a. m. svipað og Þyrna. Hirtu ekki þó bókin verði dálítið stór. Þá er ekki annað eftir en kveðja þig. Líðan mín er svona heldur góð þetta altaf söm og jöfn. Við erum hjer þrír óumbreytanlegir: jeg, guð almáttugur og út- synníngurinn. Gángi þjer sem flest að óskum. Þinn Þorsteinn Erlíngsson. Heima er bezt 335

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.