Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 12
Erlingur Sveinsson: ÞREKRAUN BENSA að var vorið 1933. — Hann var þá fyrir nokkr- um árum fluttur hingað í dalinn, í nágrenni við mig. En áður höfðum við í annarri sveit, verið stallbræður um rúmlega fjögurra ára bil, og farið vel á með okkur, svo að við vorum vinir æ síðan. Nú barst mér sú fregn, að hann væri veikur, hefði gripið hann lungnabólga, og að þegar væri búið að sækja lækni til hans. Mér brá dálítið við þessi tíðindi. Eg vissi að hann hafði nokkrum sinnum áður legið í lungnabólgu, og hún leikið hann svo, að hann hafði verið talinn hætt staddur. Sú spurning sótti því nokkuð fast á mig, næstu dægur, hvort að hér væri ekki að hans leiðarlokum komið. Svo vildi til, að á förnum vegi bar fundum okkar læknis saman, um þetta leyti. Greip ég þá tækifærið til þess að fá að vita, hvernig honum segði hugur um veikindi vinar míns, og hverjar hann teldi batahorfur vera. Það brá fyrir dálítilli glettni í svip læknisins, er hann svaraði mér og sagði: „Það er engin hætta með karlinn. — Yfirleitt er hvorki fyrir Guð né menn að vinna bug á honum!“ * — Hann hét Benedikt og var ísaksson. En fæstir nefndu hann fullu nafni, heldur bara Bensa. Og um þriðjung aldar var hann kenndur við Aðalból í Hrafn- kelsdal í Norður-Múlasýslu, því að þar var hann vinnu- maður um 25 ára skeið samfleytt. Bensi var tæplega meðalmaður á hæð, oftast ofur- h'tið lotinn um mjaðmir, grannvaxinn, holdskarpur og fremur táplítill að sjá. — Göngugarpur var hann þó hinn mesti, en annars heldur klaufafenginn við verk og vann sér flest erfiðara en þurft hefði að vera. Trúr í starfi, svo að þar varð ekki fram úr honum farið. — — Heiðavíðáttan inn af Hrafnkelsdal er nefnd Vesturöræfi. Landfræðilega séð tilheyra þau Jökuldal, þar sem þau liggja að Jökulsá á Dal og öll vötn, er af þeim falla, hníga til hennar. Eigi að síður eru þau eitt af hinum víðáttumiklu afréttarlöndum Fljótsdælinga, enda eign Vaiþjófsstaðakirkju á fyrri tíð. Þeir sem að haustinu fara í göngur á Vesturöræfi hafa til skamms tíma gist á Aðalbóli nóttina áður en á ör- æfin er haldið. Og enn er komið þangað í öllum göng- um, þegar leitinni er lokið. Nú bar svo við haustið 1915 að þeir, sem gengu Vesturöræfi í síðustu göngur, sögðu frá því, er þeir komu aftur út að Aðalbóli, að kindur væru á Kring- gilsárrana. Þetta var á þeim árum, er Bensi var í vist á Aðalbóli. Kringilsárrani liggur, eins og kunnugt er, inn við Vatnajökul, vestan við Jökulsá á Dal. En að norðan og að vestan takmarkast hann af á þeirri, er hann dregur nafn af, Kringilsá. Kringum 1890 hljóp Brúarjökull fram og huldi þá meginhluta þess svæðis, er nefnt er þessu nafni. Lá jökulröndin þá þar, sem nú eru hinir svonefndu Töðuhraukar, innanvert við sjálfan ranasporðinn. Og enn var svo 1915, að jökull virtist liggja út að Töðu- hraukum, og þó að vísu allþykku aurlagi hulinn. En hvergi var þar stingandi strá, eftir að inn fyrir Töðu- hrauka var komið. Kringilsá var, áður en Brúarjökull skreið fram, mikið vatnsfall, svipað því, sem vera mun nú. En á þess- um árum var hún ekki nema lítil kvíslarspræna, þótt korguð væri af jökulaur. — Nokkru vestar en Kringilsá er á Brúaröræfum er Sauðá, ofurlítil bergvatnslæna. — Nú kom mest af því vatni, sem áður féll til Kringilsár, undan Brúarjökli fram í farvegi hennar, og var hún því um þetta leyti hin versta yfirferðar a. m k. að vori og að sumri. Sauðá kemur í Jökulsá nokkru utar en Kringilsá. Er svæðið á milli þeirra nefnt Sauðafell, er að Jökuldaln- um dregur, og ber nafn af þúfumynduðu felli á brún- um dalsins, um það bil miðja vegu milli ánna. Sauðafell og Kringilsárrani tilheyra Brúardölum og eru smöluð að haustinu, um leið og þeir eru gengnir. En vegna þess hve Sauðá var á þessum árum mikil torfæra, svo að kindavon var þar sáralítil, var aldrei farið þang- að oftar en einu sinni á ári hverju. Og nokkrum sinnum leið svo ár og ár, að aldrei var þangað farið. Ég var í fyrstu göngu á Brúardölum haustið 1914. \rar ég þá sendur, ásamt Stefáni Eyjólfssyni frá Brú, er þá var þar, um fermingu, til þess að smala Kringilsár- ranann og Sauðafell. Kul hafði verið til fjalla undan- farna daga, og gerði Sauðá varla að væta kvið, er við fórum yfir hana um morguninn. Héldum við svo, sem leið liggur inn sandana vestan við Sauðafellið, og komum í dalverpið, að Kringilsá utanvert. Héldum 338 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.