Heima er bezt - 01.10.1958, Síða 19

Heima er bezt - 01.10.1958, Síða 19
ÞATTUR ÆSKUNNAR RITSTJÓm NAMSTJ Pórður Jónsson frá I.álrnm: Undir Látrabjargi alli, Kalli! Vaknaðu, maður! Þeir eru víst að fara undir Bjarg. Það eru allir komnir á fætur.“ Það var Halli bróðir Kalla, sem talaði. Hann var 11 ára, en Kalli 10 ára. „Undir Bjarg,“ sagði Kalli og reis upp í rúminu, og þar með var hann glaðvakn- aður. „Við skulum biðja pabba að lofa okkur með.“ „Við fáum víst ekki að fara með,“ sagði Halli. „Þú veizt, að við höfum alltaf verið að stelast í Núpinn.“ (Bjarg, sem er norðanvert við Látra.) „Pabbi sagði okkur síðast, þegar hann sótti okkur. að hann skyldi berja okkur, þegar hann þyrfti næst að sækja okkur í Núpinn.“ „Já, en við höfum ekki farið nema einu sinni síðan, og pabbi veit ekkert um það,“ sagði Kalli. „En ertu nú alveg viss um það? Mamma getur hafa sagt honum það, af því að við fengum henni eggin“, sagði Halli. „Nei — nei. Það getur ekki verið“, svaraði Kalli. „Þú mannst að við báðum hana að láta pabba ekkert vita um það. Nei, mamma segir ekki eftir. Og svo lofuðum við henni því að hætta að stelast í bjargið, og við höfum ekki svikið það“. Halli hugsaði sig um. „Nú veit ég, hvað við gerum. Við segjum pabba, að við séum alveg hættir að stelast í bjargið og þess vegna megi hann til að lofa okkur með“. „Já, já. Þá gerum við það. Við skulum flýta okkur á fætur. Þeir fara áreiðanlega á Stórurð í dag, og afi sagði að litlum strákum væri oft lofað þangað. Já, það væri „agalega“ gaman að ná í egg. Það er engin hætta á að maður hrapi. Pabbi heldur það, af því að hann veit ekki, hvað við förum varlega“, sagði Kalli og sat hugsi. „Varlega,“ sagði Halli. „Þú hefðir nú hrapað í vor, þegar við vorum að reyna að ná í múkkaeggin, ef ég hefði ekki náð í þig. En eitt eggið brotnaði, og það var nú verst, því að annars hefðum við fengið fjögur,“ sagði Kalli, sem nú var alklæddur, en bróðir hans var ekki kominn nema í aðra buxnaskálmina. Hugur hans var allur við bjargið, en nú smeygði hann sér einnig fimlega í fötin. — Síðan hlupu drengirnir fram í eld- hús til mömmu sinnar og sögðu henni frá áformi sínu. Þeir máttu ekkert vera að því að borða, hvorki vott né þurrt, en tóku á sprett til sjávar. Þar voru Látrarmenn að búa sig út í ferð til eggja- töku undir Látrabjargi. Mikið af kössum var borið út í bátinn. Einnig liðlegir, léttir vaðir, en þeirra var þörf, þegar gengið var upp í bjargið. Stálhjálmar voru einnig teknir með, og margt fleira. Þeir voru að setja fram skjöktbátinn, þegar drengirnir komu móðir af hlaup- unum, eða kannske meira af áhuganum. Þeir snéru sér beint til pabba síns og báru upp erindið, en fengu neit- un á þeim forsendum, að þeir væru of litlir til þess enn þá. Sorgardrættir bærðust um munn drengjanna. Þeir litu undan, en sögðu ekki neitt, enda ekki vanir því að mótmæla því, sem pabbi þeirra sagði, hvort sem þeim líkaði betur eða verr. Einn af eldri bjargmönnunum lét nú málið til sín taka,

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.