Heima er bezt - 01.10.1958, Qupperneq 35

Heima er bezt - 01.10.1958, Qupperneq 35
252. Ég klifra ofan til Nikulásar og spyr, hvort hann hafi ekki stórslasazt. Hann ber sig illa og segist hafa fótbrotn- að. Biður mig blessaðan að bjarga sér og segist ekki geta haldið sér hér lengur. 253. Nú verð ég að vera snarráður og sprettharður. Fái Nikulás svimakast, þá steypist hann fram af stallinum og ofan í urðina. Hvað á til bragðs að taka. Ég klifra upp og hleyp ofan að bátnum. 254. Ég verð að ná í taug og taugarhjól. Ég verð hissa, þegar ég rekst á hvort- tveggja í stafnhólfinu á bátnum. Bregð þessu á öxl mér og flýti mér síðan af stað aftur. 255. Ég festi taugina og hjólið um snös beint uppi yfir, þar sem Nikulás liggur. Síðan renni ég mér niður til hans. Þetta er ískyggilegt ferðalag niður hengiflugið í svimandi hæð. 258. Ég athuga fót Nikulásar. Hann er ekki fótbrotinn, en hafði undið fótinn illa um hné og ökkla. Ég finn hæfilega trjágrein og bý til úr henni allra snotr- ustu hækju handa Nikulási. 256. Þetta gengur samt allt eins og i sögu. Ég kemst niður til Nikulásar og bind tauginni utan um hann. Svo klifra ég upp aftur, og þá hefst nú drátturinn, og hann er enginn barnaleikur. 259. Nú getur Nikulás staulazt ofan að bátnum með því að hafa hækjuna undir annarri hendi en bregða hinni um herð- ar mér. Stynjandi og másandi sniglumst við áfrarn í áttina til sjávar. 257. Eftir langa mæðu tekst mér að tosa Nikulási upp á klettabrún. Hann verður heldur en ekki feginn að vera hrifinn úr heljarklóm. „Kæra þökk, Óli minn! Ég skal muna þér þetta!“ 260. Loks komumst við niður að bátn- um. Nikulás hlassar sér á þóftuna. Ég flýti mér að draga upp segl. Og um sól- arlagsbil stefnum við svo heimleiðis frá hamraeynni háskalegu.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.