Heima er bezt - 01.08.1959, Side 6

Heima er bezt - 01.08.1959, Side 6
Eirikur Kristójersson skipherra og Anderson aðmíráll, yjirmaður brezku veiðiþjófanna. — Og þú hefur verið heppinn í sjóferðum þínum? — Já. Ekki get ég annað sagt. Eg hef aldrei misst mann fyrir borð og menn hafa aldrei orðið fyrir meiri háttar slysum hjá mér. — Og oft lent í björgunarleiðöngrum? — Eg hef alls unnið að eða aðstoðað við björgun á 550 skipum og bátum af öllum stærðum eða frá árabát- um og upp í 17000 tonna skip. — En af því við vorum að tala um rotturnar. Hef- urðu aldrei haft önnur dýr hjá þér á sjóferðum þínum. — Jú, ég átti einu sinni svarta tík, sem Hrefna hét. Ég eignaðist hana á dálítið sérstakan hátt. Ég var að fara landveg norður í Tálknafjörð. Kem ég þá að Hlaðseyri og gisti þar. Magnús bóndi vildi gefa mér hund, en ég kvaðst ekki vilja. Er ég fer, segir hann tíkinni að fylgja mér, og gerði hún það. Kom ég við á Hlaðseyri í bakaleið, en losnaði ekki við greyið, og fylgdi hún mér síðan. — Einu sinni vorurn við á Spáni og fengum þá kött til þess að útrýma rottunum um borð. Var okkur af- hentur hann við mjög hátíðlega athöfn. Öll fjölskyldan, sem átt hafði köttinn, kom um borð og kvssti hann að skilnaði. Sérkennileg björgun. — Hvað segirðu um að við endum þetta samtal á því, að þú segðir mér frá dulrænum fyrirbærum, er þig Iiafa hent? — Eitt sinn lágum við undir Vogastapa í slæmu veðri. Ég var að hlusta á hábylgjustöð í Englandi. Heyri ég þá að skip kallar og nefnir nafn og númer og segist vera í nauðum statt 8 sjómílur NA af Garðskaga. Ég segi mönnum mínum að létta og halda af stað. Heyrðist þá einhver tauta: „Nú held ég hann sé orðinn alveg vitlaus.“ En svo fór, að við fundum bátinn og björguðum honum. Ég spurði formanninn, er við kom- um að landi, hvort þeir hefðu ekki kallað nema einu sinni. Hann segir þá: „Hvort við hefðum viljað kalla. En talstöðin er í viðgerð í Iandi.“ Ekki veit ég, hver gaf mér þessa bendingu, en hún kom frá æðri máttar- völdum. Að síðustu segir Eiríkur Kristófersson mér nokkuð frá draugagangi og draumum sínurn, en þar sem ég geri ráð fyrir að hann geti þessa einnig í ævisögu sinni, sem út kemur innan skamms, látum við hér staðar numið. Er hér lokið þessu stutta rabbi, er ég átti við þennan kunnasta skipherra íslenzka flotans. 262 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.