Heima er bezt - 01.08.1959, Page 12

Heima er bezt - 01.08.1959, Page 12
fundu snjóbyrgið, en ekki fyrr en eftir nokkra leit, því dregið hafði yfir slóð þeirra mæðgna. Þá var Þingey- ingur nýlátinn. Brátt höfum við Áfangana að baki, en alltaf hvessir meira og nú færist hann meir í norðvestrið. Stormhryn- urnar þyrla snjónum umhverfis okkur og hylja sem snöggvast allt útsýni framundan, en við erum senn komnir niður á Hofteigsbrúnir og þarna eygjum við kirkjuna í Hofteigi, en að baki okkar heyrast þung ekkasog norður til heiðarinnar. Oft hefur hann samt blásið meira hér um brúnirnar en í þetta sinn. Eins og þegar fyrsti maðurinn hennar Guðbjargar á Hraunfelli í Vopnafirði fórst á þessum slóðum. Fyrir löngu liðnu var hann á ferð ásamt öðr- um manni austur á Jökuldal, því þaðan var hann ættað- ur. Þetta var að vetrarlagi í hvössu norðanveðri. Gang- færi var gott á heiðinni, en svellað til brúna og þegar minnst varði reið stormhnútur að þeim félögum og tókst Guttormur á loft og kom niður á höfuðið og varð það hans bani. Annar maður Guðbjargar varð úti við túnfótinn á Kálffelli, sem er heiðarbýli milli Foss og Brunahvamms í Vopnafirði. Þá bjuggu þau hjónin þar. Þriðji maður Guðbjargar, Metúsalem, fórst af skoti á rjúpnaveiðum og dróst helsærður og hrópandi áleiðis til bæjar á Hraunfelli, þar sem hjónin bjuggu. Nú er rökkrið að síga á og við rétt að verða komnir í Hofteig. Veðrið batnar óðum. Hérna niðri á Daln- um er kveldkyrrð, sem um sumar væri. En veðurhljóð- ið norður á heiðinni boðar að Norðri hafi færzt þar í aukana. Svona er misveðrasamt í kringum Smjörvatns- heiði. Eftir að hafa hvílzt og drukkið kaffi í Hofteigi, héldum við um kvöldið fram í Hjarðarhaga, þar sem féð var geymt. Okkur var tekið þar með ágætum af Hjarðarhagasystkinum og Guðfinnu móður þeirra. Um háttatíma komu tveir bílar ofan af Efra-Dal í Eljarðar- haga. Voru þeir á Ieið niður á Reyðarfjörð og höfðu tekið nokkrar Vopnafjarðarkindur með sér ofan frá Hákonarstöðum. Þar með vorum við búnir að heimta allt fé sem komið var fram fyrir austan, og lögðumst við ánægðir til svefns og skyldi haldið af stað í bíti morguninn eftir ef veður gæfi til. Daginn eftir var veður að vísu bjart en 10 stiga frost og renningskóf af norðvestri að sjá norður til heiðar- brúnanna. Slógum við því ferð okkar á frest þann dag, því fé verður ekki rekið móti norðan renningskófi yfir Smjörvatnsheiði. Hafði ég einu sinni áður orðið að snúa við með allmargt fé að austan, kominn norður undir miðheiði. Var það versta ferð og sat ég veður- tepptur á Hvanná í 3 daga, unz veður gaf norður yfir heiðina. Vorum við svo í Hjarðarhaga þennan dag í bezta yfirlæti. Benedikt Eljarðar skrapp með okkur í bíl fram í Skjöldólfsstaði og skoðuðum við nýja heima- vistarbarnaskólann þar og út í Hjarðarhaga aftur um kvöldið og sváfum þar næstu nótt. Morguninn eftir vorum við á fótum fyrir birtingu. Ekki mundi af veita að taka daginn snemma. Drukk- um við kaffi og mjólk meðan birti af degi. Veður var svalt en bjart og nærri heiður himinn. En Guðfinna gamla í Hjarðarhaga leit norður til heiðarbrúnanna og sagði að sér sýndist útlitið ekki tryggilegt og væri okk- ur ráðlegra að leggja ekki til heiðarinnar að sinni. En við sáum bara heiðan himin og héldum okkur alla vegu færa. Féð hafði verið í girðingu yfir nóttina. Rákum við það í hús, en báðum Benedikt að keyra lömbunum niður á Reyðarfjörð til lógunar, því lömb rekast miklu verr en ær, þegar um langa leið og snjó í ofan á lag er um að ræða. Þó slæddist ein gimbur með í reksturinn. Sunnudaginn 26. október lögðum við svo upp. Klukkan var 8. Benedikt fylgdi okkur upp Hjarðar- hagafjall, sem er snarbratt, svo nærri lætur að menn taki þar stein með munninum. Kindurnar voru 29 og vel undir daginn búnar eftir útiveruna nóttina áður. Hvorugur okkar Hallgríms hafði farið þessa leið áður. Kom okkur því vel leiðsögumaðurinn. Þegar við kom- um upp á fjallsbrúnina mætti okkur svo nístandi köld norðvestan gola, að mér fannst snöggvast að ég myndi missa andlitið, enda var frostið 17 stig í byggð. Bene- dikt var með enska sumarhúfu á höfði, en brátt mundi hann snúa andlitinu undan nepjunni á leiðinni til baka. Nú var óþarfi að fylgja okkur lengra. Framundan lá mjallhvít heiðin svo langt norður sem augað eygði. Bjart í lofti og til fjalla. Bensi stakk við fótum, kvaddi okkur, en sagði um leið, að þó hann væri bjartur mundi samt öruggara fyrir okkur að slá til vesturs og fylgja Sandfelli norður, því ef hann kynni að ganga upp með hríð, sem væri þó ekki útlit fyrir, hefðum við Fellið til að styðjast við allt norður að Sunnudalsá í VTopnafirði og síðan öruggt að rata með árgilinu út í byggð. Hins vegar væri óratandi í hríðarbyl eftir kennileytalausum urðunum ef við tækjum stefnu í útnorður eftir sjón- hendingu. Við lofuðum góðu um það í hljóði en í hug- anum var beinasta leiðin ákveðin svo langt sem augað eygði norður mjallhvítar, veglausar urðirnar, og áfram sigum við í þæfingssnjó, sem dýpkaði smám saman eftir því sem norðar dró. Féð rakst vel og við fórum að gjöra áætlun um að ná niður í Gnýstaði upp úr dagsetri. En allt í einu Iygndi og um leið byrjuðu að detta fáein meinleysisleg snjókorn. Við sáum strax að él var í aðsigi. Vildi þá Hallgrímur þegar taka þann kostinn sem skynsamlegri var, að slá sér vestur að Fellinu. Myndi það taka kringum klukkutíma að ná þangað, en ég benti á að á þeim tíma yrðum við komn- ir norður fyrir miðheiði og féllst hann á það. Ég var bjartsýnn á að élið birti, en skæðadrífan þéttist æ meir, snjórinn dýpkaði, kindurnar voru farnar að renna í sporaslóð, hauður og himinn runnu saman í óaðsldljan- legan gráma. Ég fór þá inn í miðjan fjárhópinn, sem eins konar áttaviti, en Hallgrímur átti að taka miðið og sjá um að ég breytti ekki stefnunni, enda er hann ratvís í bezta lagi, eins og afi hans Gísli Helgason frá Egilsstöðum var, sem kunni ekki að villast. Eitt sinn fór Gísli við annan mann frá Hjarðarhaga norður yfir heiði. Blindbylur var á. Mestu hættuna taldi hann vera þá, að hrapa í Sunnudalsárgilið þegar kæmi niður á Gnýstaðadal. Beitarhús lítið stóð á ár- 268 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.