Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.1959, Qupperneq 16

Heima er bezt - 01.08.1959, Qupperneq 16
-Sæ^-Sæ^S-^-Sy^S^-S^Sy^Sæí: ?>»_' «>V S^S'^Sy^Sy^Sy^S^Sy&^^>sæi>Sy^Sy^Sys>Syi^S'^syi>S>^S>^rS Æviminningar BJARGAR SIGURÐARDÓTTUR DAHLMAN FRÁ INGJALDSSTÖÐUM ÞORA JÓNSDÓTTIR 'isy\æs.> færði í letur >syi?syi>s>'i>syi>syi>syi>syi>syi>s'i>syi>syi?syi I. a fi minn og amma, Eiríkur Sigurðsson og Guðný /'w, Gísladóttir, fluttust drið 1820 sunnan frá / A Reykjavík til Akureyrar með hjónum, sem ■"- Mohr hétu, og voru hjá þeim eitt ár. Þá flutt- ust þau að Vöglum og bjuggu þar. Þar fæddust börn þeirra öll. Faðir minn var elztur barnanna, fæddur 1828, en næst var Anna Guðrún. Þau systkinin léku sér alltaf saman og unnust mjög. Afi missti heilsuna, þegar börn- in voru í ómegð, og brá hann þá búi. Anna Guðrún fór til fósturs að Hlöðum í Eyjafjarðarsýslu til hjón- anna Flovents og Ingibjargar. Jóhann föðurbróðir minn staðnæmdist á Vöglum hjá bóndanum, sem tók við af föður hans, en faðir minn og Helgi bróðir hans, sem var með þeim yngstu af systkinunum voru teknir til fósturs á Stórhóli í Eyjafirði. Þar var vel að þeim bú- ið, og föður mínum fannst hann alla tíð eiga heimili á Stórhóli. Átján ára gamall fót hann norður að Ejósa- vatni, sem vinnumaður. Ljósavatn var kirkjustaður og var faðir minn forsöngvari í kirkjunni. Þar hittust for- eldrar mínir fyrst. Móðir mín var Guðrún Erlendsdótt- ir frá Rauðá í Bárðardal. Móðir hennar var Anna Sig- urðardóttir frá Gautlöndum og faðir hennar Erlendur Sturluson fæddur á Öxará í Bárðardal; um ætt hans veit ég ekkert nema það að Jónas Helgason og Helgi Helgason voru bróðursynir hans. Móður minni er þannig lýst: Há og þrekin kona, blá- eygð með feiknamikið skolleitt hár, sem tók niður fyr- ir hné, vel gefin og mesta hannyrðakona. Hún teiknaði frostrósir á glugga og óf í teppi og dúka, og á ég enn þá eitt slíkt teppi. Mamma óf líka mikið vefnað, sem kallaður var glitvefnaður (gobelin), og lærði hún það af móður sinni, sem var annáluð hannyrðakona. Björn Sigurbjörnsson á Selfossi hefur tekið saman þessa lýsingu á föður mínum: Sigurður Eiríksson var hár vexti og fremur grannur, herðaknappur, liðlegur á velli og hvatlegur. Hann var bjartur í andliti, svip- skarpur, dökkhærður, ennið hátt, toginleitur, munn- bragðsmikill og hakan stór. Augun skolbrún, hvöss og glampamikil og Iýstu mjög skapbrigðum. Málsnjall og hélt fast á sinni skoðun. Einar Ásmundsson kvað hann hafa talað svo tvisvar á fundum, að sér hefði líkað mætavel. Sigurður var jafnan heilsuveill, en þó var hann eins og Sigvaldi tengdasonur hans á Eljótsbakka sagði um Eirík son hans á Sandhaugum, „heimskulega bjartsýnn“. Jakob Hálfdánarson fer þessum orðum um Sigurð í ættartölubók sinni: Sigurður Eiríksson á Ingjaldsstöð- um var afbrigða gáfumaður, svo mælskur, fróður og ræðinn að unun var, hvar sem hann kom. Söngmaður hinn bezti. Að sama skapi karlmannlegur á velli og fríð- ur sýnum. Viðbrugðið fyrir dugnað, enda var þess ær- in þörf, þar sem hann átti fyrir mörgum börnum að sjá. Mun hann hafa gengið hart að sér, enda náði hann ekki háum aldri. Sigurður var hagyrðingur góður, og eru nokkrar vísur og kvæði varðveitt. Afi kærði sig ekki um að fá svo fátækan tengdason, því aðrir efnaðri buðust, en mamma taldi, að hún ætti sig sjálf, og fór ekki að ráðum foreldra sinna. Svo voru þau gefin saman og fóru að búa á móti Erlendi gamla á Rauðá. Þar fæddust tvær elztu dætur þeirra, Kristín og Anna. En faðir minn vildi hafa stærra olnbogarúm og ásetti sér að ná í Ingjaldsstaði, en þar bjó maður, sem Jens hét, ásamt systur sinni. Bærinn var svo lélegur, að þar var ekki hægt að hafa börn, og þessi tvö ár, sem pabbi bjó á Rauðá, byggði hann reisulegan bæ á Ingjaldsstöðum. Síðan fluttust foreldrar mínir þangað, en Jens bjó áfram í gamla bænum, og eftir að systir hans dó, annaðist mamma gamla manninn. Hann lifði ekki nema eitt ár eftir systur sína, og tók þá pabbi lífsábúð á jörðinni og bjó þar meðan hann lifði, og þar fæddust þeim tíu börn, sem upp komust. í nýja bænum var stór baðstofa, hús, og frambað- stofa, fjós undir palli, breið göng, eldhús og búr hvort á móti öðru og steintröppur upp í baðstofuna, stórar bæjardyr og bæjardyraloft og stofa sunnan við, þiljuð í hólf og gólf, með einu rúmi og stórum slagbekk. Pabbi setti sér það mark að auka búslóð sína með 10 ám í hvert sinn, sem hann eignaðist bam; og þegar voru fæddar sex dætur, átti hann 60 ær í kvíum, fjóra hesta og þrjár kýr, og þetta þótti á þeim árum laglegt bú; en það var líka laglegur telpuhópur. Kristín systir mín var elzt af okkur systkinunum. Hún fór til Danmerkur og lærði ljósmóðurfræði og var fyrsta lærða Ijósmóðir á landinu. Síðar giftist hún Jó- hannesi á Sandhaugum og gegndi ljósmóðurstörfum í Bárðardal í 55 ár. Anna var önnur í röðinni, hún giftist Jóni á Fjöllum í Kelduhverfi, þeirra sonur er Olafur 272 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.