Heima er bezt - 01.08.1959, Page 18

Heima er bezt - 01.08.1959, Page 18
og þá kom pabbi og sagði við hann, að það ætti ekki að berja sofandi börn. Pabbi bar mig svo heim og söng mig í svefn. Um morguninn fann ég sóleyjar í rúminu mínu, en vendinum hafði ég aldrei sleppt deginum áður. Pabbi kom til mín og sagði mér, að huldukonan, vinkona mín, bæði að heilsa mér. Hún væri nú flutt burtu í stærri klett, því börnin hefðu verið orðin svo mörg. Faðir minn var vel hagmæltur, en öll ljóð hans voru grafin með móður minni eftir ósk hennar. Eitt vor man ég eftir að ís var landfastur og kornmat farið að vanta. Ég var svöng og bað um brauð, en það var ekki til. „Viltu fá mjólk, elskan mín,“ sagði mamma. „Nei, ég vil brauð,“ sagði ég og fór að gráta. Pabbi kom og tók mig á hnéð og fór að skýra fyrir mér, af hverju ég gæti ekki fengið brauð. Það var vegna þess, sagði hann, að firðirnir væru frosnir og skipin kæmust ekki að landi. En það varð engu tauti við mig komið og ég sagði: „Þú átt rekur og járnkarl og við getum brotið ísinn svo skipin komist að.“ Pabbi tók mig með sér í húsin og þar gleymdi ég sorgum mínum við að sjá hann gefa lömbunum. Hann setti mig hka á bakið á Bleik hennar mömmu, sem gekk með mig um hest- húsið; fyrst hafði ég haldið að hann myndi éta mig meðan ég sat í stallinum. Annað atvik man ég, sem sýnir glöggt, hvað ég var erfitt barn. Anna systir mín var næstelzt. Þegar hún var fjórtán ára hafði hún saumað sér kjól á Akureyri. Ég var mjög skartgjörn og vildi fá eins kjól. Mamma sagði að það gæti ég ekki fengið fyrr en að vori, þegar hún væri búin að lita dúkana. Önnu kjóll var hnepptur að framan, en mínir kjólar aftan á. Ég bað mömmu að snúa kjólnum mínum við, svo hnapparnir kæmu fram- an á. Hún sagði að þá kæmu olnbogarnir líka framan á. En um þetta rellaði ég, þangað til pabbi kom og rassskellti mig. Þetta var í eina skiptið, sem ég hlaut þá refsingu; og þó ég fyndi ekki mikið til, öskraði ég og fór fram í baðstofu til Nunnu gömlu. Hún sneri strax við fyrir mig kjólnum og fór til pabba og átaldi hann fyrir að fara svona með barnið! Ég dansaði í kringum hann sigri hrósandi. Mamma gat ekki á sér setið að hlæja, en pabbi sagði: „Við verðum að fara var- lega að þessu stífa barni.“ Honum var víst alvara, því seinna, þegar Erlendur bróðir mömmu kom og vildi taka mig heinr með sér, sagði pabbi, að mér með mína skapsmuni myndi ekki líða vel annars staðar en heima, og að börn hans færu ekki að heiman meðan sín nyti við. Erlendur og kona hans höfðu misst tvær dætur og var kona hans lögzt í rúmið af sorg. Hann hélt að hún myndi hressast, ef hún fengi barn á líku reki og þær, að hugsa um. Það var snemma morguns að sumarlagi, að ég vakn- að við, að pabbi var að fara á fætur. Eg vildi fara á fætur, og pabbi Iét það eftir mér og hjálpaði mér að krækja kjólinn minn og binda skóna. Ég spurði hann, hvað hann ætlaði að fara að gera, en hann kvaðst ætla með hest niður í Hriflu, því að Jón gamli ætlaði í kaupstað og myndi færa sér fisk. Hann lagði síðan reiðing á hestinn, setti skrínur á og hélt af stað, en bað mig að vekja smalann, þegar sólin væri komin að hest- húsveggnum. Ég horfði á eftir pabba, þegar hann reið ofan túnið og yfir fljótið, en vaðið blasti við bænum. Döggin var svo mikil á túninu, að þegar smáfuglarn- ir hlupu eftir því, sáust slóðir þeirra, og ekkert rauf þögnina nema söngur þeirra og dynur fossins, sem sást vel að heiman ásamt úðanum, sem bar alla regnbogans liti. Sunnan í bæjarveggnum átti randafluga bú sitt og flaug nú milli blómanna og safnaði hunangi. Mig lang- aði til að líta inn í búið hennar, en þá var hún óðar komin og suðaði mjög fyrir framan nefið á mér, en gerði mér þó ekki mein. Smám saman fór byggðin að vakna, reykinn tók að leggja upp frá bæjunum, en ég gekk að læknum og söng „Upp á himins bláum boga“, en það var eina lag- ið, sem ég kunni. Ég fór að tína blóm, en sofnaði brátt við lækjarniðinn, og þarna fann pabbi mig sofandi, þeg- ar hann kom aftur heim. Mér fannst líkast því, að barnssálin vaknaði þennan sumarmorgun, þegar ég skynjaði náttúruna í fyrsta sinni. Einu sinni sem oftar fór faðir minn í kaupstaðinn. Hann bað mig að gæta þess, að kýrnar færu ekki í tos- ið sunnan undir bænum, meðan hann væri í burtu. Ég gætti þess vel þangað til einn morgun, að ég kom of seint á fætur og kýrnar voru komnar í tosið, og búnar að rífa niður hey. Mér þótti þetta slæmt. Pabbi hafði lofað mér hagldabrauði, þegar hann kæmi, ef ég gætti tosins vel. Ég fór því og sótti eldhússtól mömmu og rogaðist með hann út; náði svo í litlu hrífuna mína, rakaði saman og tróð í holurnar, með því að stíga upp á stólinn. Þegar pabbi kom fékk ég kringluna. Hann fór að girða kringum tosið og kemba það. Ég stóð álengdar, til að sjá hvernig færi. Allar lausu tuggurnar duttu. Pabbi kallaði á mig og sagði: „Þú hefur ekki passað tos- ið vel og áttir ekki skilið kringluna.“ Ég fann að þetta var rétt og hljóp inn eftir henni og færði pabba. „Hér er hún, ég vil ekki það, sem ég á ekki skilið,“ sagði ég. „Það er rétt, barnið mitt,“ sagði pabbi og horfði þó hissa á mig. Kringluna fékk ég samt seinna. Einn vordag var pabbi á gangi upp í heiði. Ég var mcð honum. Ég fylgdi honum víst betur en nokkur hundur. Við urðum þreytt og settum okkur niður. Við sáum vítt yfir og þá sá ég Goðafoss í fyrsta sinn. Ég spurði, hvað þetta hvíta væri, sem breitt væri á móinn. Hann sagði, að það væri foss í fljótinu. Ég skildi ekki hvað foss var, en hann sagði, að ég skyldi bara skoða bununa í bæjarlæknum, fossinn væri aðeins miklu stærri. Ég spurði af hverju hann héti Goðafoss, og fékk að vita, að það væri af því, að áður en fólkið hafði þekkt guð, hefði það dýrkað trémenn, sem kölluð voru goð, cn seinna hefði öllum goðunum verið fleygt í foss- inn, af því drægi hann nafn. Ég hugsaði mikið um fossinn og goðin, sem ég hélt að hefðu verið lifandi vcrur. Eina nótt dreymdi mig, að ég var komin þangað 274 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.