Heima er bezt - 01.08.1959, Page 21

Heima er bezt - 01.08.1959, Page 21
SJÁLFSTÆÐI SMÁPJÓÐAR inn 17. júní 1944 var langri og harðri baráttu lokið með sigri íslendinga. — ísland var af lýðfrjálsum löndurn viðurkennt frjálst og fullvalda ríki. Arið sem er að líða er því minningaár í sögu landsins. í júnímánuði voru rétt 15 ár liðin frá því að fullveldi íslands var viðurkennt. Var þess minnzt víða um land, hinn 17. júní sl., þótt hríðar- veður, kuldi og ofsarok settu sinn svip á daginn. A tímamótum er hollt að líta yfir farinn veg og skyggnast fram á við. „Höfum við gengið til góðs götuna frarn eftir veg?“--- Æskulýður íslands þarf að kynna sér frelsisbaráttu þjóðarinnar og gera sér Ijós þau verðmæti þjóðarinnar, sem að haldi komu í sjálfstæðisbaráttunni, og hvaða verðmæti ekki mega glatast.-------- Spurningarnar hlaðast á hugann. Með alvöruþunga ryðja þær sér til rúms. Hver voru rökin fyrir því, að við ættum rétt á frelsi og fullveldi? Höfum við kunnað að meta fengið frelsi? Eruni við færir urn íslendingar að vernda og verja frelsið. Hvernig getum við framvegis sannað heirnin- um, að okkur beri frelsi og fullveldi, þótt þjóðin sé lítið fjölmennari en verksmiðjuhverfi í stórborg? Get- um við tryggt efnalegt sjálfstæði iit á við? An þess heldur engin þjóð sjálfstæði sínu stundinni lengur. Áður en ég geri tilraun til að svara þessum spurn- ingum, vil ég hverfa að öðru efni. í maí-mánuði vorið 1944 var ég staddur austur í Kirkjubæjarklaustri á Síðu, sem hét til forna Kirkju- bær. Þar er fögur fjallasveit, með töfrandi útsýn til hafs og jökla. Staðurinn er sögulega rnerkur frá fyrstu tíð. Þar nam land Ketill fíflski, dóttursonur Ketils flat- nefs. Hann var kristinn og afkomendur hans, og hafa því heiðnir rnenn aldrei þar búið. Rétt hjá Kirkjubæj- arklaustri er Systrastapi, en skammt frá honum stöðv- aðist hraunflóðið mikla, er sr. Jón Steingrímsson flutti hina frægu eldmessu.-------- Um Systrastapa er þessi þjóðsaga sögð: „Eitt sinn meðan nunnuklaustur var í Kirkjubæ, komst sá kvittur á kreik, að einhver nunnan hefði brot- ið skírlífisheit sitt og átt samfundi við karlmann úr ná- grenninu. Príórinnan hóf rannsókn í þessu máli, en við brotinu lá dauðahegning, ef uppvíst yrði. Við rann- sókn málsins bárust böndin að tveimur systrunum. Onn- ur hvor þeirra var sek. Það var hægt að sanna. En hvor þeirra var það? Hvorug vildi meðganga og hvorug bar sök á hina. Málið mátti þó ekki niður falla, en full sönnun fékkst ekki, svo að príórinnan lét taka báðar af lífi. Þeim var valinn legstaður uppi á stapanum. Gert var yfir leiðin og þau þakin. Að vori, þegar jörð greri, var annað leiðið skrúðgrænt en hitt gróðurlaust og upp- blásið, og svo er enn þann dag í dag, segir þjóðsagan. Þannig kom í ljós sakleysi og göfuglyndi hinnar sak- lausu, sem heldur vildi saklaus láta lífið, en koma upp sannri sök um brotlega systur. Þetta er kenning þjóð- sögunnar.“-------- Fyrir nær því tveimur áratugum kom út bókin: Fagr- ar heyrði ég raddimar. Ég ann þeirri bók meir en flest-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.