Heima er bezt - 01.08.1959, Side 29

Heima er bezt - 01.08.1959, Side 29
bæjarstörfin í fjarveru húsbóndans. Er Lilja ekki ein að annast þau? — Jú, hún er ein, og það verður áreiðanlega vel þeg- ið að þú veitir henni aðstoð þína. — Kennarinn dregur þykka skinnhanzka á hendur sér og gengur síðan fram úr herbergi sínu. — Lilja er víst í fjárhúsunum, kallar Anna á eftir honum. — Ég veit hvar hún er. Anægjubrosi bregður fyrir á andliti Önnu húsfreyju. Armann er indæll og glæsilegur piltur, eftirsóknarverð- ur tengdasonur, en sú hugsun vakir stöðugt í vitund húsfreyjunnar í Austurhlíð. Kindurnar raða sér á garðann og Lilja leysir ilm- andi töðuna inni í hlöðu og ber fram í garðann fyrir fénaðinn. Allt er kyrrt og hljótt úti og inni, nema skrjáf kindahornanna við garðabandið öðru hvoru. En skyndilega heyrir Lilja marra í hjarninu fyrir utan fjár- hússdyrnar, og högg er drepið á hurðina. Hver skyldi þar vera á ferð? Ekki getur faðir hennar verið kom- inn aftur. Hún bíður og opnar ekki strax. En brátt kveður við annað högg. Lilja gengur að dyrunum og lýkur þeim upp. — Ármann kennari! hrýtur henni af vörum. — Já, Lilja, ég er kominn til að hjálpa þér við úti- störfin, móðir þín bjóst við, að það yrði vel þegið. — Hann gengur óboðinn inn í fjárhúsið. Lilja hallar aftur hurðinni, svo að eigi sé hætta á að kindur hlaupi út, svo snýr hún sér að Ármanni og segir einbeitt. — Ég þarf enga hjálp, enda er ég að verða búinn að gefa fénu. — Ég hjálpa þér þá með það, sem eftir er. — Þess gerist engin þörf. — Lilja stígur léttilega upp í garðann og hraðar sér inn í hlöðuna á ný, en Armann kemur þangað á eftir henni. Hún lætur sem hún sjái hann ekki og keppist við að bera heyið fram á garð- ann. Hún vill komast sem fyrst heim úr fjárhúsunum að þessu sinni. Ármann tekur fullt fang sitt af heyi og fylgist með Lilju. Hún lætur það afskiptalaust, og brátt er tiltek- inn heyskammtur fjárins kominn fram í garðann. Lilja gengur aftur inn í hlöðuna, sópar yfir gólfið og stingur heynálinni (króknum) á sinn stað, og ætlar síð- an að halda sína leið. En Ármann kennari er skyndi- lega kominn fast að hlið hennar og segir brosandi: — Hvað er næsta verkefni, Lilja? — Að fara heim. — Er þá útistörfunum lokið? — Já- — Þá áttu frí, og þér liggur ekkert á að ganga til bæjar. (Framhald). BARNAGETRAUN Hér kemur þrautin, sem yngri lesendur „Heima er bezt“ eiga að spreyta sig á, ef þeir vilja taka þátt í barnagetrauninni í þessum mánuði og hafa möguleika á að fá ein af hundrað PEZ-verðlaununum. Hér sjáið þið mynd af PEZ-hylki og pakka með PEZ-töflum í eðlilegri stærð. Nú er galdurinn ekki annar en sá, að geta upp á því, hve margar töflur eru í hverjum óuppteknum PEZ-pakka. En til að hjálpa ykkur svolítið, getum við upplýst, að það eru annað hvort 7,14 eða 29 töflur í hverjum pakka. Og hvað haldið þið þá að töfl- urnar séu margar? Skrifið lausnina á sérstakt blað ásamt nafni ykkar og heim- ilisfangi. Setjið blaðið í umslag, sem þið auðkennið með orðinu Barnagetraun og sendið síðan til Heima er bezt, póst- hólf 45, Akureyri. Ráðningar þurfa að hafa borizt í síðasta lagi 20. september. Ef að fleiri en hundrað réttar ráðningar berast, þá verður dregið um verð- launin. Heima er bezt 285

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.