Heima er bezt - 01.08.1959, Page 33

Heima er bezt - 01.08.1959, Page 33
„Ég sagði honum það, að ég færi ekki frá honum, fyrr en konan hans kæmi heim, en nú vita allir að hún kemur aldrei, svo að þá sérðu, hvort mér kemur ekki heimilið við, kerli mín.“ „Ég vona, að hún fari bráðum að koma,“ sagði Geir- laug. Hana sárlangaði til að setja ofan í við Ásdísi eins og Boggu, þegar hún var með eitthvert heimskuþvaðrið, en þessari kvensnift var hún svo ókunnug. Þar að auki var hún svo umsvifamikil, að það gustaði af henni, þeg- ar hún þeyttist innan um bæinn. „O, þú ert víst sú eina, sem álítur það,“ svaraði Ásdís. „Já, sem betur fer kemur hún nú bráðlega heim, fyrst hún er farin af spítalanum. Annars færi ég sálfsagt að hafa mig burtu.“ Það voru erfiðir tímar, sem í hönd fóru fyrir Ásdísi. Hún fann, að hún var ekki álitin annað en hver önnur vinnukona, sem mætti segja fyrir verkum. En hún var hrædd við Gerðu og hafði sig hæga í návist hennar. Eitt sinn bar Ásdís það í tal við Kristján, að hún vildi bera fyrir hann matinn inn í skrifstofu, eins og gert hafði verið, þegar hún hafði verið hér áður. „Það er nú af sú tíð,“ sagði hann. „Það er ekki svo margt fólkið hérna, að það þurfi að tvískipta því. Ég borða sjálfsagt hérna frammi, þangað til kona mín og sonur koma heim. Þá borðum við inni í húsi,“ svaraði hann. „En ég ætlaði nú svo sem að sitja til borðs með þér,“ sagði hún brosandi. Því svaraði hann engu. Stofan og skrifstofan voru alltaf Iæstar. Þar gekk enginn um, nema Kristján sjálfur einstaka sinnum. Einn daginn sá Ásdís, að hann lét lykilinn að skrif- stofunni á nagla, þar sem skugga bar á fyrir aftan hurð- ina. Hún var fljót að taka hann, þegar Kristján var horf- inn út úr dyrunum. Nokkru seinna heyrðust gargandi drunur frá orgelinu. Gerða og Geirlaug litu forviða hvor á aðra, og svo hljóp Geirlaug inn að skrifstofudyrunum. Ásdís sat á orgelstólnum og studdi öllum sínum fingr- um á nóturnar. „Ásdís!“ kallaði Geirlaug, skelfd á svip. „Ertu alveg gengin af vitinu? Ætlarðu kannske að gera orgelið ónýtt? Ég veit nú svo sem ekki hvað hann Kristján segði, ef hann sæi og heyrði til þín.“ Ásdís hló storkandi hlátri: „Hvað er nú þetta? Það væri hægt að hugsa sér að það væri kviknað í bænum, eftir svipnum á þér að dæma. Það er sjálfsagt ekki svo mikill vandi að garga á þetta orgel, að það geti ekki fleiri en prestdætur,“ sagði hún. „Farðu bara samstundis fram, eða ég kalla á Kristján. Hann er hérna skammt frá. En það er þó ekki vani minn að klaga hjúin héma,“ skipaði Geirlaug. „Hann segði sjálfsagt ekki mikið við mig,“ sagði Ás- dís og brosti sigursælu brosi. „Hann, sem ætlar að kenna mér að spila á orgelið.“ „Vertu ekki með neina lygi,“ sagði Geirlaug. „Hann ætti þá að kunna það sjálfur, áður en hann færi að kenna það.“ Þá birtist sótkrímótt andlit Gerðu í dyrunum og Stína gamla spákona fyrir aftan hana, og báðar voru glottandi. „Séð hef ég köttinn synga á bók,“ sagði Stína. „Hún er hreint ekki óefnileg. Bara farin að spila á orgelið! Kannske lætur henni það betur en sláturgerðin.“ „Hafðu þig heldur fram til að fara að sauma kepp- ina. Það fer að standa á þeim,“ sagði Gerða. „Þó að þér farist það ekki hönduglega, þá held ég að þú takir þig betur út þar!“ Þá stóð Ásdís upp af stólnum og sagði gremjulega: „Þið eruð allar bölvaðar nöðrur í minn garð. Það væri réttast að ég klagaði ykkur fyrir húsbóndanum.“ „Þú hefðir nú sjálfsagt ekki mikið upp úr því, skinnið mitt,“ sagði Gerða. Stína gamla gekk beina leið suður að Þúfum til að segja þessar fréttir. Mægðurnar þar voru reyndar búnar að heyra sitt af hverju eftir Boggu greyinu. — Hún væri víst framúrskarandi hroðvirk innanbæjar, þessi manneskja, og heimsk að sama skapi. Kristján hefði stundum þrifað kústinn og sópað bæjardyrnar eftir hana, en hann talaði aldrei um slíkt við hana, og við Geirlaugu var hann nú svo hlýr, því að hana vildi hann ekki missa fyrir nokkurn mun. Náttúrlega myndi hann vita, að heimilið kæmi til með að líta út eins og skræl- ingjabæli, ef hún færi. „Þvílík ósköp að hugsa sér það heimili,“ sagði Engil- ráð gamla. „Það er mikið, sem það má þola svona innan bæjar. Hið ytra er ekki hægt að segja annað en að séu framfarir og snyrtimennska. Okkur fannst náttúrlega, að Rósa væri heldur lítilfj örleg í samanburði við móð- ur sína, en allt var þó fínt og snyrtilegt hjá henni og hún sjálf líka, blessunin, og svo áttu þetta að verða for- lög hennar. Jóhanna var nú langt frá því að vera álitleg bústýra, en þó var hún hátíðleg hjá þessari óskemmti- legu manneskju. Þvílíkt ólán, að hún skyldi eiga að setjast í sætið hennar maddömu Karenar! Það mátti nú segja, að það var óhappasending, þegar Kristján Hart- mannsson kom í þessa sveit.“ „Ja, það þótti ekki trúlegt, þegar ég sagði, að hann myndi ekki lengi njóta álits og virðingar sveitarinnar,“ sagði Stína gamla hreykin. Haustið leið fram að hreppaskilum. Ásdís átti litlum vinsældum að fagna innan bæjar, en húsbóndinn var hrifinn af dugnaði hennar utan bæjar, enda var hún alltaf utan um hann, ef eitthvað þurfti að gera. Það var mikill munur að vinna með honum eða að vera inni, þar sem hún var lítilsvirt og hlegið að henni og næstum hvert orð, sem hún sagði, flutt út af heimili, til að láta hlæja að því. Þær streittust og toguðust um yfirráðin í maskínuhúsinu, hún og Geirlaug, en það reiptog fór þó fram þegjandi. Éoksins minntist Geirlaug á það við húsbóndann, að það væri víst bezt að hún færi burtu. Ásdís vildi taka Heima er bezt 289

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.