Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.1959, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.08.1959, Qupperneq 36
333. „Jæja, karlinn, þá hefi ég þó loks- ins náð í þig!“ hrópaði Perlberg sigri hrósandi. „Að þessu sinni skaltu svei mér ekki smokra þér undan. Komdu nú bara undireins, svo ég geti talað við þig. Nú duga þér engar kúnstir, lagsmaður!" 334. Ég þarf víst ekki að segja, að þessi fyrirskipan Perlbergs varð ekki mikils virði. Ég var ekki lengi að hugsa mig um, heldur kallaði á Mikka og hleyp af stað eins og fætur toga út i skóginn. 335. Skógareldurinn hafði læst sig víðs vegar um skóginn, svo að ég komst ekki leiðar minnar, eins og ég hafði ætlað, en verð að hörfa út á dálítinn tanga, sem lá út í allstóra skógartjörn. Undan- komu er ekki auðið. 336. Perlberg hafði elt mig og sér óð- ar, að nú er ég í vanda staddur. Þykist hann nú heldur en ekki hafa hönd í hári mínu. En án þess að hika stekk ég út í tjörnina og syndi frá landi. 337. Þetta kom Perlberg heldur en ekki á óvart. Hann stóð glápandi á bakkanum, vitstola af bræði og var stundarkorn að átta sig. Síðan kallar hann hástöfum og skipar mér að snúa við og koma aftur. 338. Hróp hans og köll höfðu nú ekki sérlega mikil áhrif á mig! Og heldur ekki á Mikka . . . Það eru ekki nema hundrað metrar yfir tjörnina, og senn erum við komnir yfirum. 339. Perlberg ætlar sér nú að labba umhverfis tjörnina, en verður þess brátt var, að nú hefir eldurinn lokað öllum leiðum til baka. Hann kemst því alls ekki burt úr tanganum, og eldurinn magnast enn. 340. Hann hleypur nú fram og aftur um tangann og hörfar undan hitanum af eldinum. Hann verður hræddari og hræddari, og loks alveg vitstola af skelf- ingu. Nú er honum fyllilega Ijóst, hvern- ig hann er staddur. 341. Þessi sjálfbirgingslegi og miskunn- arlausi lögmaður er nú í einu vetfangi orðinn að skjálfandi óttaslegnum ræfli. Hann hrópar nú hástöfum af öllum mætti og biður Ola að koma og hjálpa sér.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.