Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1959, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.09.1959, Qupperneq 9
BERGSVEINN SKÚLASON: Á URÐAHLÍÐ (Niðurlag). 3. Þegar ég skaut á örninn. Örninn í hyrnunni og Snati, mórauði hundurinn minn, elduðu löngum grátt silfur á Urðahlíð. Það var ójafn leikur. Snati var geltur og blauður, vanastur að láta segja sér fyrir verkum, en þess á milli að flatmaga á bæjar- hól eða lepja sull úr dollu við búrdyr. Örninn var hvatur og herskár, með öllu óvanur að láta segja sér fyrir verkum, né þiggja sinn deilda verð við bæjardyr drottnara síns. Þar fór heldur enginn seiðskratti eða galdranorn um loftið, þar sem hann bar yfir. Eðli þeirra Kotkels og Grímu var honum ekld í blóð borið, þó að sjálfsagt hafi forfeður hans verið samtíma þeim hjónum á Urðahlíð. Víkingablóð rann í æðum hans, heitt og rautt. Og í svipnum var eitthvað af dirfsku og áræði þess sem hæst fer, og hverju sinni er þess albúinn, að sigra eðá falla á opnu svæði. Ög örninn var ráðríkur, eins og konungum ber að vera — jafnvel um of. Auk þess, að vera einvaldur í hömrunum á stóru svæði umhverfis hreiðrið sitt og um víða vegu loftsins, vildi hann líka ráða ríkjum í grasi gróinni hlíðinni fyrir neðan sig. En það var um of. Þar þóttumst við Snati rninn eiga löndum að ráða. Og þar kom, að okkur þótti frekja hans úr hófi keyra. Þegar líða tók á vorið, og sá tími nálgaðist, að drottn- ing hans skyldi klekja út nýjum prinsi til að erfa ríkið í hömrunum þegar tírnar liðu fram, gerðist frekja hans svo mildl, að alveg gekk fram af okkur Snata. Þá var ekki hægt að senda Snata eftir kindum í hlíðina hvað sem við lá. Sá sem á varðbergi sat, hvort heldur að það var nú konungurinn eða drottningin, fleygðu sér þá ofan yfir hann með gapandi gini og spenntar klær, og varð þá lítið úr Snata mínum, sem vonlegt var. Víg- reifur örn er ekkert lamb að leika sér við, fyrir þann, sem ekkert hefur sér til varnar nema kjaftinn. Snati minn lagði því venjulega niður skottið, flýði sem fætur toguðu og nam ekki staðar fyrr en við fætur mínar eða í öruggu vígi undir kvið hryssunnar. En örninn hélt hróðugur heim í ríki sitt. Þetta þótti mér ekki gott, og kostaði mig, latan og seinfæran, margan svitadropann, ef ég þurfti að ná kind- um úr hlíðinni. Og ég hugsaði vini mínum, erninum, þegjandi þörfina. Honum skyldi ekki lánast að leggja undir sig alla Urðahlíð. Auk þess var hann farinn að gera mér þann grikk, að skjótast út í eyjar og fæla æð- _ arfuglinn. Ekki bætti það um fyrir honum. Ekki var til neins að kasta að honum steini eða að bræla í nágrenninu, sem var þó gamalt þjóðráð. Það hafði ég reynt. Hann hristi bara hæruskotinn kollinn yfir svoleiðis barnaskap og mat hann einskis. Hér voru góð ráð dýr, og þurfti vel til að vanda. Ekki vildi ég drepa örninn, enda er hann friðaður og fáliðaður í landinu. En áminningu, sem hann skildi, mátti gefa honum. Það hafði aldrei verið bannað, að honum væru kenndir betri siðir en hann hefur tamið sér. — Og næst þegar ég átti leið um hlíðina, hafði ég með mér byssuna góðu, þá hina sömu sem ég svaf hjá á Urðum forðum. — Og smalamennskan hófst. Allt fór á sömu leið og áður. Þegar ég hóaði og sendi hundinn í hlíðina, kom móflekkótta skassið óðar á vettvang, og lét nú gulu, sterku lappirnar síga óvenju langt. — Örn- inn var víst farinn að líta á sig sem eins konar verndara kindanna, sem gengu í geiranum undir hreiðrinu hans. Við þeim mátti ekki stugga. En nú áttu ráð mín, eða áminning, að koma til fram- kvæmda. Bezt var að fara að öllu rólega. — Ég staulaðist upp í hlíðina og sigaði hundinum sem mest ég mátti, þó illa gengi. Bvssuna dró ég við hlið mér, svo að hún líktist einna mest smalaprikinu mínu. Og þegar sá klóguli lagði sem fastast ofan að hundinum, og ekki var annað sýnna, en hann mundi klóra honum eftirminnilega um bakið, hleypti ég af skoti. — Færið var langt, og ekki rniðaði ég á skassið, en svo nálægt því sem ég þorði, án þess að eiga á hættu að hitta, því að hvorki vildi ég drepa eða særa örninn né hundinn. — Skotið bergmálaði í fjallinu, og púður- reykurinn gaus upp skammt þar frá sem viðureignin átti sér stað. Heima er bezt 301

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.