Heima er bezt - 01.09.1959, Page 10

Heima er bezt - 01.09.1959, Page 10
— Hundurinn rak upp æðisgengið ýlfur og hljóp heim sem fætur toguðu, og hafði ég ekki meiri not af honum í þeirri smalamennskunni. — En örninn? — Aldrei hefur nokkurri skepnu orðið svo hverft við, sem honum í þetta sinn. — Hann datt. Missti flugið og hlammaðist ofan í hlíðina. Kom þó niður á lappirnar, enda var fallið ekki hátt. Rúm hundshæð. — Var hann særður? — Ég hraðaði mér til hans, og komst undarlega nærri honum. — Ég hef aldrei komist svo nærri lifandi erni. — Gapandi af undrun og skelfingu horfði hann á mig, og eldur brann úr hinurn fránu augum. En hann var ósærður. « — Að andartaki liðnu áttaði hann sig. Brá fyrir sig vængjunum og hóf sig til flugs. Hvílík vængjatök! Loftið var barið af þeim krafti og hörku, sem til var í hinum sterka búk. Það söng í hverri fjöður, þegar hann sveiflaði sér út með hlíðinni, og hraðinn var meiri en ég hef séð á nokkrum fugli fyrr né síðar. Að ör- skotsstund liðinni sveif hann á breiðum vængjum í óra- hæð yfir efstu brúnum fjallsins. Drottningin, sem sat í dvngju sinni, rauk upp þegar hún sá bónda sinn detta. og nokkrar fjaðrir fuku úr rassinum á henni. Svo hverft varð henni við. Var það furða! — En skamma stund verður hönd höggi fegin. — Óvinurinn var að vísu sigraður — flúinn. í hvert skipti sem hann sá til til ferða minna, lyfti hann sér til flugs af klcttunum og sveif í mikilli hæð yfir fjallinu meðan ég var nokkurs staðar nálægur. — En ærnar, þær stóðu aídrei fastar í græna geiranum en nú. Og þegar ég ætl- aði að senda hundinn cftir þeim, fékkst hann ekki fet frá fótunum á mér. Hann lagðist niður ylfrandi. — Svona lánaðist þessi auðunni sigur. — Það var ekki fvrr en síðsumars, þegar þessi kon- ungshjón höfðu leitt prinsinn sinn úr hamraviginu í fjaílinu út í hlátæran geiminn, og þau svifu öll þrjú á vængjum yfir efstu hrúnum í góðviðri haustsins, að allt komst í eðlilegt horf með smalamennsku á Urðahlíð. 4. Gamall savmingur. Það el- ævaforn sögn, að selurinn og svartbakurinn hafi gert nicð sér svofelldan samning: Svartbakurinn vakir yfir selnum, þegar hann sefur á skerjum eða þarf á verði að halda af öðrum ástæðum. í staðinn miðlar selurinn svarthaknum af feng sínum þegar hann er á veiðum, lifur og (iðru góðmeti. Þessi samningur ,er ákaflega hagkvæmur og kemur sér vel fyrir báða. \ Selurinn sefur stundum fast, og á marga óvini í heimkynnum sínum. Þá er gott að eiga trúan vin, sem vakir á verðinum. — Og oft er hart í búi hjá svartbaknum, einkum í hörðum vetrum, þegar fjör- ur allar og innfirði leggur ísi, og fugl er fjær Iandi. Þá veiðir selurinn á djúpmiðum, og má oft missa spón úr aski sínum. Það kemur sér vel fyrir soltinn fugl. — Og líklega er þessi samningur betur haldinn og virtur, en margur skrifaður og vottfestur samningur, sem hin æðri dýr, s. s. stjórnmálamennirnir, gera á miili sín. Eitt sinn sem oftar átti ég leið inn með Skálmarfirði. Á litlum tanga, sem gengur fram í fjörðinn við Núpa- sel, lá nýfæddur útselskópur. Hann var slorblautur og með öllu ósjálfbjarga. En friðsælt var ekki í kringum hann. Á heldur hrottalegan hátt var hinn ungi selur minntur á, að hann var ekki lengur fóstraður undir mjúkum og hlýjum hrjóstum móður sinnar og varinn þar fyrir öllu volki veraldarinnar, heldur kominn í kaldranalegan heim, fullan af úlfúð og grimmd, þar sem Iífið er miskunnarlítil barátta fyrir tilverunni. Nú var legurúmið hans haustköld klöpp, sem grimmir vargar sóttu að úr öllum áttum. Tveir ernir sátu sinn við hvora hlið hans. Öðru hvoru sóttu þeir að honum með þöndum vængjum, krepptum klóm og bognu nefi. Nokkrir hrafnar hoppuðu glott- andi á klöppunum í kring. Þeir hugðu gott til að kom- ast í krás, ef örnunum tækist að ráða niðurlögum hans. Þannig tók heimurinn á móti þessum nýja Sorgara. Vrörn kópsins var ekki önnur en veikur grátur eða gól, sem hann rak upp öðru hvoru. Urtan, móðir hans, mókti framan við tangann, gerðist ærið hálslöng, horfði á aðfarirnar, en hafðist ekki að í bili. En henni mun hafa verið farið að þykja nóg um. Þegar aðsókn varganna hafði staðið um stund og færðist heldur í aukana, tók hún sig til, skreið upp á skerið til hans og lagðist hjá honum. Ernirnir viku þá frá og hrafnarnir flugu garg- andi upp í kletta, enda komið kvöld. Ég Safði falið mig bak við stóran stein meðan þessu fór fram, en labbaði nú heim. Svo liðu nokkrir dagar, án þess að ég gætti að kópn- um. Að þeim liðnum átti ég aftur leið um þessar slóðir. Kópurinn lá enn í sama farinu og svaf. Elann var orð- inn feitur og stobbaralegur. Móðir hans var hvergi sjá- anleg, en ernirnir vöktu enn yfir veiði og létu dólgslega. Þó var þeim sýnd veiði en ekki gefin. Hæst á tanganum sátu tveir svartbakar og báru sig hermannlega. Hve- nær sem ernirnir gerðu sig líklega til að nálgast kóp- inn, lögðu þeir til atlögu og hröktu þá miskunnarlaust á burt. — Móðirin hafði trúað þeim fyrir ósjálfbjarga barni sínu, og þess skyldi vel gætt. Ég átti enn ófarna nokkra tugi metra að kópnurn, þegar þessir trúu þjónar hófu sig til flugs og lögðu ofan að mér með hávaða og vængjaslætti. Það jók enn á ann- ríki þeirra á verðinum. En þeir máttu ekki vera að því að sinna mér, síður en svo. Óðar en þeir voru flognir af tanganum til að bægja mér frá, hófu ernirnir sig á loft og tóku að hlakka yfir kópnum. En þá voru svartbak- arnir ekki seinir til. Þeir flugu ekki, þeir hentust til baka í áttina til kópsins og lögðu svo óþyrmilega ofan að örnunum, að þeir máttu fljótlega hypja sig á burt — og nú sigldu þeir til fjalls. Þá er alkunnugt meðal selveiðimanna, hvernig svart- bakurinn vakir yfir útselnum þegar hann á vetrum ligg- (Framhald, á bls. 311) 302 Heirna er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.