Heima er bezt - 01.09.1959, Page 20

Heima er bezt - 01.09.1959, Page 20
ÞATTUR H VAÐ Ul NGl 3 MEMU |D ! |\ s " STI !FÁN JÓ ^jp Borgarfjaráar E-^ f við, sem heima eigum í Reykjavík, ætlum að «j heimsækja byggðir Borgarfjarðar, þá er um . tvær leiðir að velja; — aðra á sjó en hina á ' landi. Ef við veljum sjóleiðina, þá tökum við okkur far með Akraborginni, sem fer daglega til Borg- arness. Akraborgin er nýtt og glæsilegt skip og vistar- verur farþega ágætar. En þótt skip sé gott, og leiðin fremur stutt, þá eru margir farþegar, sem færa Ægi fórnir á þessari stuttu sjóleið, einkum þegar vestan ylgja er í sjóinn. En ef við erum veðurheppin og gott í sjóinn, þá er sjóferðin skemmtileg, og þegar skipið leggst að bryggju í Borgarnesi þá erum við strax á sögulega merkum stað. Við höfum sögulega jörð undir fótum. Bryggjan í Borgarnesi er byggð við litla eyju, og af bryggjunni er vegur eftir eyjunni og brú yfir sundið milli lands og eyjar. Þessi eyja heitir Brákarey og sund- ið milli lands og eyjar heitir Brákarsund. í Egilssögu Skalla-Grímssonar er sagt frá því hvernig eyjan og sundið fengu nöfn sín. Eins og alkunnugt er, nam Skalla-Grímur Kveldúlfs- son land að Borg á Mýrum. Kveldúlfur dó í hafi, en kistu hans rak upp í vík eina litla, sem liggur við tún- jaðar á Borg og fellur lítill lækur út í víkina. Bjuggu þeir feðgar, hver fram af öðrum, á Borg, Skalla-Grím- ur, Egill og Þorsteinn. Koma þeir allir mjög við sögur. Sagan um Brákarsund og Brákarey, er sögð í Egils- sögu eitthvað á þessa leið: „Þá er Egill Skallagrímsson var 12 vetra, var hann svo mikill vexti, að fáir voru menn svo stórir, og að afli búnir, að Egill ynni þá ekki flesta menn í leikum. Þann vetur, er honum var hinn tólfti, var hann mjög að leik- um. Þórður Granason (vinur Egils) var þá á tvítugs- aldri. Elann var sterkur að afli. Það var oft, er á leið veturinn, að þeim Þórði og Agli var skipað tveimur í móti Skalla-Grími. Var það þá eitt sinn, er knattleikur var að Borg suður í Sandvík, að þeir Egill og Þórður léku í móti Skalla-Grími, að hann mæddist fyrir þeim í leiknum, og gekk þeim léttara. En um kvöldið eftir sólarfall, þá tók þeim Agli verr að ganga. Gerðist Skalla-Grímur þá svo sterkur, að hann greip Þórð upp og keyrði niður svo hart, að hann lamaðist allur, og fékk hann þegar bana. Síðan greip hann til Egils. Þorgerður.'brák hét ambátt Skalla-Gríms. Hún hafði fóstrað Egil í barnæsku. Hún var mikil fyrir sér, sterk sem karlar og fjölkunnug mjög. Brák mælti: „Hamast jrú nú Skalla-Grímur að syni þínum?“ Skalla-Grímur lét þá lausan Egil, en þreif til hennar. Hún brást við og rann undan, en Skalla-Grímur eftir. Fóru þau svo í utanvert Digranes. (Það er nú nefnt Borgarnes). Þá hljóp Brák út af bjarginu á sund. Skalla-Grímur kast- aði eftir henni steini miklum og setti milli herða henni, og kom hvorki upp síðan. Þar er nú kallað Brákar- sund.“ Skapbráðir og stórir í lund hafa þeir verið forfeður vorir, ef dæma skal eftir þessari sögu. Þarna hefur hús- bóndinn Skalla-Grímur orðið banamaður tveggja hjúa sinna. En ekki er skapið minna í Agli. Er heim kom um kvöldið að Borg, er Egill allreiður. Þegar Skalla-Grím- ur og fólk hans er setzt að kvöldverði, er Egill ekki kominn í sæti sitt. En í því gekk hann inn og beina leið þangað, er verkstjóri Skalla-Gríms sat. Mat Skalla-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.