Heima er bezt - 01.09.1959, Síða 22
Borgarnes úr lofti. Brákarey til vinstri.
og hefur margur fjallgöngumaðurinn svitnað við að
klífa þann tind.
Þegar við höfum virt fyrir okkur fjallahringinn,
höldum við sem leið liggur yfir Brákarsund á öflugri
steinsteypu-brú og eftir þjóðveginum gegnum kauptún-
ið Borgarnes. Ekki höfum við langt farið, er við sjáum
á vinstri hönd fagran og vel hirtan trjágarð. Þessi trjá-
garður er kallaður Skalla-Gríms-garðurinn og dalverp-
ið, sem garðurinn er í, er kallað Skalla-Grímsdalur.
í trjágarðinum rétt við þjóðveginn er vel upphlaðinn
fornmannshaugur. Ofan á haugnum er stór, flatur blá-
grýtissteinn. A honum stendur með skýru rúnaletri
Skallagrímr. Þessi fommannahaugur heitir Skallagríms-
haugur. Er talið að þarna sé legstaður Skalla-Gríms
Kveldúlfssonar landnámsmanns. Hafa kvenfélagskonur
í Borgarnesi gert þennan fagra trjágarð umhverfis leg-
stað Skalla-Gríms.
Ég get ekki í þessum þætti rökrætt það, hvort þarna
sé ótvírætt legstaður Skalla-Gríms, en frásögn Egilssögu
virðist taka af öll tvímæli um það. Hver hefði líka fyrst-
ur átt að benda á þennna stað, sem legstað Skalla-Gríms,
ef hann hefði ekki verið hauglagður þar? Ég hef ekki
trú á, að fornmenn hafi viljandi sagt rangt frá atburð-
um, enda styðja örnefnin mjög sögur, sem þessa. ÖIl
örnefni í nágrenni Borgar virðast óbreytt frá landnáms-
tíð.
Eina sögu vil ég minna á í sambandi við þennan merka
fornmanna-legstað, en sú saga sýnir það, sem ég benti á
fyrr í þessum þætti, að Egill Skalla-Grímsson, forfaðir
Mýramanna, átti í fari sínu fleiri heitar tilfinningar en
heiftrækni og skapofsa. Saga þessi er sögð í Egilssögu:
Böðvar hét einn sona Egils. Hann var á æskuskeiði,
er saga þessi gerðist, en þó hinn efnilegasti maður, fríð-
ur sýnum, mikill og sterkur, svo sem verið höfðu þeir
bræður, Egill faðir hans og Þórólfur, — á hans aldri.
Egill unni honum mikið. Böðvar var og mjög elskur að
föður sínum.
Það var eitt sumar, að skip var í Hvítá, og var þar
mikil kaupstefna. Hafði Egill keypt þar við margan,
(þ. e. mikið af timbri) og lét heim flytja á skipi. Fóru
húskarlar og höfðu skip áttœrt, er Egill átti. Það var
þá eitt sinn, að Böðvar beiddist að fara með þeim, og
þeir veittu honum það. Fór hann þá inn á Völlu með
húskörlum. Hafskip á þeim árum sigldu upp eftir Hvít-
á, alla leið að Hvítárvöllum, og þar var oft kaupstefna.
Þeir voru sex saman á áttæru skipi. Og er þeir skyldu
út fara, þá var flæðurin síð dags, og er þeir urðu henn-
ar að bíða, þá fóru þeir um kvöldið stð. Þá hljóp í út-
synningur steinóði (þ. e. ofsaveður af útsuðri), en þar
gekk á móti útfalls-straumur. Gerði þá stórt á firðin-
um, sem þar kann oft verða. Lauk þar svo, að skipið
kafði (þ. e. fyllti) undir þeim og týndust þeir allir. En
eftir um daginn skaut upp líkunum. Kom lík Böðvars
inn í Einarsnes, en sum komu fyrir sunnan fjörðinn, og
rak þangað skipið. Fannst það inn við Reykjarhamar.
Þann dag spurði Egill þessi tíðindi, og þegar reið hann
að leita líkanna. Hann fann lík Böðvars, tók hann það
upp og setti í kné sér og reið með út í Digranes til
haugs Skalla-Gríms. Hann lét þá opna hauginn og lagði
Böðvar þar niður hjá Skalla-Grími. Var síðan aftur-
lokinn haugurinn, og var eigi lokið fyrr en um dag-
seturs-skeið. Eftir það reið Egill heim til Borgar.
Og er hann kom heim, þá gekk hann þegár til lok-
rekkju þeirrar, er hann var vanur að sofa í. Hann lagð-
ist niður og skaut fyrir loku; — engi þorði að krefja
hann máls. En svo er sagt, þá er þeir settu Böðvar nið-
ur, að Egill var svo búinn, að hosan var strengd fast að
beini. Hann hafði fustan-kyrtil rauðan, þröngan upp-
hlutinn og lás að síðu. En það er sögn manna, að hann
þrútnaði svo, að kyrtillinn rifnaði af honum og svo
hosurnar.
Þessi lýsing á viðbrögðum Egils, er sorgin sótti hann
heim, er ekki margorð, en hún sýnir betur, en mörg
orð myndu gera, harm föðurins, sem ekki má mæla, en
þrútnar svo að nærskorinn kyrtillinn brestur og líka
hosurnar. Harmurinn hefur nær því yfirbugað stríðs-
hetjuna. Egill finnur, að hann brestur mátt til að ná
sér niður á hafinu. Þar finnur hann ofjarl sinn, og þá
tekur sorgin hann heljar-tökum.
Framhald þessarar sögu ætla ég ekki að rekja, þar
sem flest ungmenni íslands vita á henni skil, en ég vil
vekja athygli á því, að þótt sú saga sé sérstæð, þá er
hún svo vel gerð og er svo sennileg í allri frásögn, að
enginn nútíma sálfræðingur gæti gert hana betur. Þor-
Borg á Mjrum. Skarðsheiði i baksfn.
314 Heima er bezt