Heima er bezt - 01.09.1959, Side 30

Heima er bezt - 01.09.1959, Side 30
GUÐRÚN FRÁ LUNDI TUTTUGASTI OG FYRSTI HLUTI „En það er bara ekkert að gera á þessu heimili fyrir þrjár stúlkur nema að snúast hver utan um aðra, þar sem ekki er nema ég einn að þjóna og matreiða fyrir.“ „Þá skaltu bara láta þær fara, aðra hvora eða báðar. Eg verð víst ekki í vandræðum með að gera verkin þeirra beggja. Þær eru ekki svo afkastamiklar, sýnist mér.“ „Þær eru báðar í ársvist, enda gætirðu ekki gert verk- in hennar Geirlaugar, svo að nokkur mynd yrði á. Ég get ekki þolað sóðalega umgengni innanbæjar." „O, læt ég það nú vera. Mér finnst nú aldeilis óþarft að dunda við að hvítskúra gólfin, sem undir eins er farið að traðka á aftur,“ sagði Ásdís, „og svo sýnist mér eitthvað vera eftir af haustverkunum. Þú ert ekki far- inn að flytja eitt einasta hlass á túnið ennþá. Ólíklegt þykir mér, að þú gerir það einn, þó að þú sért búinn að fá þessa nýju kerru. Ég get líklega mokað upp á hjá þér, og svo er ég alvön að hirða fé á húsi. Þá losnarðu við að taka vetrarmann. Varla hirðir þú einn allan þennan fjárhóp.“ Svo brunaði Ásdís fram í eldhús. Þetta ætlaði að verða hálfóþægilegt, fannst stórbónd- anum. Hann var því óvanur, að vinnufólkið væri svona fast fyrir í vistinni hjá honum nema Geirlaug og Bogga, sem var nú bara vesalingur. Hann hafði alltaf reiknað með því, að Geirlaug væri svona hagvön og gæti ekki yfirgefið Rósu. Kristján sá ekki Ásdísi aftur þennan dag. Hún hafði farið upp að Bala og setið þar hjá Stínu gömlu fram í myrkur. Næsta dag var nýja kerran teldn í notkun. Ásdís kom þá fljótlega út og fór að moka upp á með húsbónda sínum og talaði um, að það væru mestu vand- ræði að hafa ekki aðra kerru, svo að ekki þyrfti að gefa upp, meðan verið væri að flytja og losa, en það gerði Bogga. Ásdís stakk upp á því, að fengin yrði kerra að láni í Þúfum, því þangað heim hafði þetta búmannsþing verið flutt um vorið Hofsbóndanum til mikillar gremju, en hann svaraði því til, að það væri ekki vani sinn að sækja eitt eða neitt til Þúfnakauðans. Það hefði verið hægt að flytja á túnið meðan því hefði verið trítlað í kláfum, og þá ætti það að komast af þ'egar kerran væri fengin. „En það er nú svo fyrir mér, að ég vil láta allt ganga í hvelli, sem þarf að vinna,“ sagði Ásdís. „Það er engin hætta á því, að það hafist ekki af, án þess að hlaupið sé til Þúfnabóndans. Ég má heldur ekki vinna lengi í dag. Klárinn er óvanur að ganga fyrir kerru,“ svaraði Kristján. Geirlaug bakaði kleinur með kaffinu. Það hafði mad- daman alltaf gert, þegar verið var að vinna einhverja erfiðisvinnu, eins og að flytja á, stinga út eða taka upp móinn. Og þeim sið hafði Rósa einnig haldið. Geirlaug talaði um það við Ásdísi, þegar hún var komin inn um kvöldið, hvort hún vildi ekki þvo sér og greiða, eins og húsbóndinn gerði. Henni ofbauð, hvað hún var hirðulaus með sjálfa sig. nÉg er nú orðin talsvert þreytt,“ sagði Ásdís. „Auðvitað ertu það. Þetta er karlmannsverk en ekki konu, sem þú vinnur. Ég er hissa, að þú skulir láta þræla svona á þér,“ sagði Geirlaug. „Ég er ekkert óvön því, að ganga í karlmannsverk,“ svaraði Ásdís. „Það er nú annað, þó að gripið sé í þau hjá foreldrum sínum einstöku sinnum, en að láta vandalausa þræla svona á sér, það finnst mér alveg meiningarlaust. Þú ættir heldur að vera við minna heima,“ sagði Geirlaug. „Ég kem nú sjálfsagt á túnið með honum fyrst,“ svar- aði Ásdís, en fór þó að þvo sér og greiða, og þeim sið hélt hún eftir það, þegar hún var búin með útiverkin. Þegar búið var að flytja á túnið, andvarpaði Geirlaug og spurði sjálfa sig: „Jæja, þá er þetta búið, en hver skyldi svo verða við að vinna á að vori komandi?“ Ásdís var fljót að svara: „Líklega ég og Bogga, hvað sem fleira verður. En sjálfsagt ferð þú ekki út frekar venju.“ „Það má nú segja, að viðburðaríkt verður það áreið- anlega, þetta ár,“ sagði Geirlaug. 322 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.