Heima er bezt - 01.09.1959, Side 31

Heima er bezt - 01.09.1959, Side 31
Kristján fékk sannar fréttir af því, að Ásdís væri á- gætur fjármaður. Hann afréð því að taka hana sem vetrarmann, fyrst það var ómögulegt að koma henni burtu. Hann hafði ekkert með þrjár stúlkur að gera í bænum. Geirlaug var ekki sérlega hrifin af þessari ráðagerð. Það leið að haustnóttum. Á hreppaskiladagsmorguninn trítlaði Geirlaug út í læk til að ná vatni í morgunkaffið. Það var indælt veður, blæjalogn með þægilegum haustsvala. Hún sá, að karlmennirnir úr nágrenninu voru suður við stekk að athuga óskilaféð. Náttúrlega var Ásdís þar líka. Hún lét sig ekki vanta, ef einhvers staðar var rekin inn skepna, enda heyrði hún sagt, að hún þekkti hvert fjármark í hreppnum. Það fannst henni heldur ótrúlegt. Það yrði sjálfsagt nóg fyrir nágrannana og sveitina alla til að skemmta sér við, að sjá hana þvælast með Krist- jáni milli húsanna. Hún var í flestu heldur ógeðfelld manneskja. Lakast var þó, hvað hún var hirðulaus með sjálfa sig. Nú kom það aldrei fyrir að togazt væri á um völdin í maskínuhúsinu. Ásdís var hæstánægð með sitt hlut- skipti, að vera fjármaður hjá stórbóndanum á Hofi. Það þótti henni upphefðarstaða. Hún vann því sjaldan nokkurt verk innan bæjar, nema að skúra gólf einstaka sinnum. Hún vissi, að það var ekki venja, að vetrarmenn gerðu mikið annað en útiverkin. Geirlaug sá ferðamann koma gangandi utan melana. Hann gekk fyrir neðan girðinguna, beina leið suður að stekknum. Þetta var einhver þaulkunnugur. Kannske var það Leifi skinnið. Hann var á sífelldu rjátli þar í Torfunni, þegar ekki gaf á sjóinn. Hún fór að skerpa á katlinum og raðaði pörum á borðið, meðan hún beið eftir að suðan kæmi upp. Það gæti svo sem átt sér stað, að Kristján kæmi heim með einhvern með sér. Því var hyggilegra að láta kleinudisk á borðið. Þegar hún hafði fengið sér kaffisopa, fór hún út í fjósið til að mjólka. Bogga var víst suður á stekknum. Þegar Geirlaug kom inn aftur, var enginn korninn í kaffið, en kannan stóð á heitri vélinni, svo að kaffið kólnaði ekki. Hún fór að skilja mjólkina og raulaði undir með skilvindunni: „Nú er komið hrímkalt haust, horfin sumars blíða.“ Hún var nýlega búin að sleppa sveifinni, þegar gest- urinn kom inn á gólfið og bauð góðan dag. Það var Hartmann gamli. Hann rak henni rembings- koss: „Það er þó gott og blessað, að þú ert hérna við húsmóðurstörfin ennþá. Ekki batnaði ástandið, ef þú færir,“ bætti hann við þessa hlýju heilsan. „Sæll vertu, Hartmann minn. Þú ert óvenjuseint á ferðinni nú í haust. Ég var farin að halda, að þú ætlaðir ekkert að koma,“ sagði Geirlaug. „Það var allt heilsuskrattanum að kenna. Hún hefur verið heldur hláleg við mig í haust, bölvuð tæfan sú. En svo sá ég, að þetta myndi ekki duga. Sláturlaus og kjötlaus get ég ekki verið heilan vetur. Það er þó það minnsta, sem maður getur gert, að bera sig eftir björg- inni, þegar manni er gefin hún. En það datt mér sízt í hug, að mín biðu aðrar eins fréttir og raun varð á, þegar ég steig á land í gærkvöld. Ég slangraði heim í kofann, til þeirra Leifa og Gerðu. Það vantar ekki greiðasem- ina þar, ef eitthvað er til hjá þeim, vesalingunum. Ég svaf þar í nótt, það sem ég blundaði. Þvílíkt dauðans ólán, að blessuð manneskjan hún Rósa skuli vera orðin tæringarveik og drengurinn líka farinn. Þetta indæla barn, eins og engill, fallegur og prúður, og ég stóð þarna eins og álfur út úr hól genginn, og vissi ekkert, hvað yfir þetta heimili hafði dunið.“ „Hefur ekki Kristján skrifað þér í sumar?“ greip nú Geirlaug fram í fyrir honum. „Nei, hann skrifar mér nú sjaldan. Ég hitti kaupa- mannsómyndina, sem hér var í sumar. Hann nefndi ekkert, hvernig heimilisástæðurnar voru. Hvernig held- urðu að Kristjáni hafi líkað við hann? Mér sýndist hann þesslegur, að hann geti unnið, ef hann nennti því.?“ „Þetta voru mestu dugnaðar- og áhugamanneskjur, sem þú útvegaðir honum. Hann Kristján mætti skamm- ast sín, ef hann vanþakkaði þeim verkin þeirra,“ svaraði Geirlaug. „Svo skulum við fara að fá okkur kaffi, Hart- mann minn. Þetta er allt liðið. Drengurinn var alveg heilbrigður, og Rósa er víst svona hér um bil komin af spítalanum heim til mömmu sinnar.“ „Já, en þá er spurningin: Kemur hún nokkurn tíma hingað á þetta heimili aftur? Mér heyrist vera efazt um það? Hún var víst ekkert mjög hlýleg í viðmóti, hún móðir hennar, þegar hún kom eftir henni í vor,“ sagði gamli maðurinn og leit hýrum augum til kaffibollanna, sem Geirlaug var að hella í. „Því get ég nú ekki svarað,“ sagði hún. „En ég vona það bara. Þess vegna er ég hér. Það er þó betra en ekk- ert að hafa mig.“ „Og svo er þessi óskemmtilegi kvenmaður kominn hingað. Leifi segir, að það hlæi allir að henni. Llún kvað segjast vera ráðinn fjármaður hér í vetur og að hún fari ekki héðan, fyrr en Rósa kemur heim.“ „Það er bærilegt fyrir Kristján, að þurfa ekki að vera á sífelldum þönum eftir vinnufólki,“ sagði Geirlaug. „Honurn líkar vel við hana. Þetta er karlmannsígildi til allra útiverka, Það á nú við hann.“ „Já, ég býst nú við því, en manneskjan kemur svo óskemmtilega fyrir sjónir. Þarna göslar hún innan um fjárréttina 'með uppbrotið pils. Hvað ætli hún þurfi að vera að pæla innan um féð, sem ekki þekkir nokkra kind?“ „Það er víst einn af hennar kostum, að hún þekkir öll mörk í sveitinni, heyrði ég Kristján segja um dag- inn,“ sagði Geirlaug. Heima er bezt 323

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.