Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1959, Qupperneq 34

Heima er bezt - 01.09.1959, Qupperneq 34
Veðurstöðin í Ósfjöllum Framhald af bls. 299 ------------------------- Af atvikum virðist |iað augljóst mál, að veðurstöð Þjóðverja í Selvogi hafi verið komið upp og haldið við með flugvélum og kafbátum. Eins og komið hafði ver- ið til stöðvarinnar tækjum, vistum og fatnaði, eins var hægt að flytja þangað mennina og hafa mannaskipti á sama hátt. Staðurinn var afskekktur, og svo virðist, sem mennirnir hafi verið orðnir öruggir af langri dvöl þarna, eða frámunalega ógætnir, sem Iýsa bæði slóðirnar í fjallinu og það að láta koma að sér óvörum. Menn- irnir hlutu að hafa séð til Borgfirðinganna inn með fjallinu og máttu þá einnig búast við, að þeir færu sömu leið til baka. Þrátt fyrir slóðirnar í fjallinu hefðu mennimir og „stöðin“ ekki fundizt í þetta sinn ef mennirnir hefðu haldið kyrru fyrir í fylgsni sínu. Eftir kunnum atvikum þessa máls, flugvenjum Þjóð- verja um þessar slóðir, útbúnaðinum í hellinum, stað- háttunum o. fl. eru miklar líkur til, að þarna í Selvogs- hömrunum hafi verið veðurstöð mestan eða allan tím- ann, sem dularfull íslenzk löggjöf og landsföðurleg forsjá bannaði veðurfregnir íbúum landsins til leiðbein- ingar og öryggis við bjargræðisstörfin. (Að mestu eftir frásögn Sigvarðar Bénediktssonar Hofströnd.) 1. Patregsfjörður Patreksfjörður Padreksfjörður BARNAGETRAUN Eins og þið hafið sjálfsagt tekið eftir á baksíð- unni á þessu blaði, þá byrjum við nú á nýrri verðlaunagetraun fyrir þá, af lesendum „Heima er bezt“ sem eru 16 ára og yngri. Þessi getraun nær yfir þrjú tölublöð, þannig að henni lýkur í nóvember, og kannske geta hinir lánsömu sigurvegarar í getrauninni þar með fengið glæsilega og óvænta „jólagjöf“. Því að verðlaunin eru ákaílega vönduð, nefnilega 3 pennasett með hinu heimsþekkta SHEAFF- ER’S merki. Þrautin, sem þið eigið að reyna að leysa, er á þessa leið: Hér til hliðar sjáið þið 5 orð, sem hvert um sig er skrifað á þrjá mismunandi vegu. Og nú er galdurinn sá, að segja til um liver er rétta stafsetningin á Iiverju orði fyrir sig. Þegar Jjið álítið að J)ið vitið réttu stafsetning- una á hverju orði um sig, skrifið J»ið orðin á blað og geymið blaðið þar til við skýrum ykkur frá því að lausnimar eigi að sendast til tímaritsins. En það verður ekki fyrr en í nóv- ember. Gevmið blaðið ykkar með svömnum vandlega J»angað til. 2. Keflavík Kebblavík Kefflavík 3. Saungvari Sönng\ari Söngvari 4. Leifisleisi Levfisleisi Levfisleysi 5. Kvatskeytlegur Hvatskeylegur Hvatskeitlegur 326 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.