Heima er bezt - 01.10.1960, Side 23

Heima er bezt - 01.10.1960, Side 23
aði stöðugt flugið. Músarindillinn kúrði öruggur undir stéli arnarins og enn hugsaði hann ráð sitt. Eftir all- langa stund, höfðu allir fuglarnir gefizt upp við há- flugið, en örninn sveif stöðugt hærra og hærra, og var nú að sjá eins og lítill depill í loftinu, — séð frá jörðu. Þegar örninn sá að allir fuglarnir höfðu gefizt upp, og hann taldi sig örugglega hafa unnið kappflugið, hægði hann á sér og bjóst til að svífa aftur niður til jarðar, og taka á móti heiðursverðlaununum, enda var hann nær örmagna. — En rétt í því að örninn hægði flugið, renndi músarindillinn sér út undan stéli arnar- ins, og flaug með snöggum, léttum vængjatökum upp fyrir örþreyttan örninn. — Erninum var alveg ómögu- legt að herða aftur vængjatökin. Elann var magnþrota og lækkaði ört flugið. Músarindillinn hafði unnið kappflugið. En aldrei gátu fuglarnir gert sér þess grein, hvernig hann hafði komizt svo hátt, eða hvar hann hafði dulizt, — en örninn gaf engar skýringar á ósigrinum. Þetta var sagan urn örninn og flugkeppni fuglanna, en ég kann aðra sögu um hálofts-flug arnarins, og hún sýnir enn betur en hin sagan, hvílíka trú rnenn höfðu á flugþreki arnarins. En sagan ber keim af sögum Vel- lýgna-Bjarna. En svona var mér sögð sagan, þegar ég var krakki: Eitt sinn var sársoltinn, fullorðinn örn á sveimi í leit að æti. Þá sá hann hvar stór og feitur köttur lá í hlað- varpa sofandi og lét sólina verma sig. Örninn hélt að þarna væri ágætur fengur fyrir soltinn örn, og renndi sér niður og hremmdi köttinn. Kisa vaknaði af værum blundi og brá við hart, þegar klær arnarins gengu í gegnurn mjúkan feld hennar. Hún klóraði, reif og tætti, en örninn sleppti eklti herfangi sínu. Fara svo engar sögur meir af bardaganum, en eftir langan tíma féll kisa aftur dauð til jarðar, og var þá víða sviðinn á henni belgurinn. Svo nærri sólinni hafði örninn flogið! Svona var mér sagan sögð, en ekki þótti mér hún trúleg.------- Ég vík þá aftur að arnarungunum, sem sýndir voru í Bárubúð í Reykjavík í nóvembermánuði 1914. -------Einn fegursti eldgígur á íslandi er Eldborg í Eldborgarhrauni í Hnappadalssýslu. Frá Eldborg hefur runnið mikið hraun, allt til sjávar. í miðju hrauninu, rnilli bæjanna Stórahrauns og Snorrastaða, eru klettar tveir eða stapar. Eru þeir venjulega nefndir Arnar- stapar. Annar stapinn er þó í gömlum landamerkjabréf- um nefndur Fuglstapaþúfa. — Þegar ég var krakki, heyrði ég oft um það talað, að arnarhjón yrpu í stöp- unum. — Þessir klettar í hrauninu liggja svo fjarri bæj- um í brunahrauni, að mjög sjaldan er komið að þeim. Vissu menn því ekki hvort ungar komust þar upp eður eigi, en oft sáust þó ernir á flugi í kringum Eldborgar- hraun á þeim árum. í maí-mánuði vorið 1914 átti Magnús Jónsson á Snorrastöðum leið fram hjá stöpunum og sá þar sitja erni tvo. Hann fór þá að athuga, hvort hreiður væri þarna, og fann þar arnarhreiður í öðrum stapanum Arnarungarnir, sem voru til sýnis i Bárubúð. með tveimur eggjum. Hann átti ekkert við eggin, en sagði þó frá hreiðurfundinum, og barst þannig út frétt- in um hreiðrið. — Sr. Árni Þórarinsson bjó þá á Stóra- hrauni, og hjá honum var vinnumaður, er Árni hét, Árnason. Hann kom nokkru síðar að hreiðrinu og tók báða ungana, sem þá voru nýskriðnir úr egginu, og fór með þá heirn að Stórahrauni, bjó þeim rimlabúr og ól þá þar. Þeir döfnuðu vei, en þurftu mikið að éta. Selveiði var þá á Stórahrauni, og reyndist selurinn gott fóður fyrir þessa „alifuglau. Seinna um sumarið fréttu einhverjir framtakssamir Reykvíkingar um þessa arnarunga á Stórahrauni og ákváðu að fá arnarungana til Reykjavíkur og sýna þá þar almenningi. Voru ernir þá þegar svo sjaldséðir víða á íslandi, að fjöldi manna hafði þá ekki augum litið þennan háfleyga konung loftsins. í nóvember um haust- ið, þegar ungarnir voru nær því fullvaxnir, voru þeir sýndir í Bárubúð, eins og áður er getið. Aðsókn var víst allgóð, því að þeir voru sýndir fjórum sinnum fyrstu vikuna. Ekki veit ég fyrir víst, hvað urn þessa erni varð, en ég held að þeir hafi verið seldir til Þýzkalands. Nú eru ernir alfriðaðir á Islandi, og hefur svo verið um langt skeið, eða frá árinu 1914, en þó fjölgar þeim ekki. Talið er að nú séu aðeins 7—8 arnarhjón á öllu landinu. Ekki vita menn fyrir víst, hvað ernir geta orðið gamlir, en sagt er, að þeir geti orðið allt að 100 ára. Ernir eiga aðeins tvö egg, en oft kemst ekki nema annar unginn upp. Talið er að þetta stafi af því, að oftast líður all-langt á milli þess, sem örninn verpur eggjunum, og skríður þá annar unginn fyrr úr skurn- inu en hinn. Ef til vill hættir þá eggjamóðirin að sitja á, og deyr þá seinni unginn í egginu. En ef báðir ung- arnir komast lifandi á legg, þá eru þeir svo misaldra og misstórir, að sá fyrri gleypir allan matinn frá hinum. Margt fleira getur orðið þessum ránfugls-ungum að líftjóni. Heima er bezt 395

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.