Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1960, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.10.1960, Qupperneq 25
lostinn, hefði þegar klifið klettinn og steypt undan erninum, en áður hafði enginn ldifið þennan feikna rnikla klett. Þannig hljóðar hún sorgarsagan, sem talin er að hafa gefið steininum nafnið Tregasteinn, og þótt við kynn- um enga sögu um steininn, þá segir nafnið eitt langa sögu. Framhald. Þorbjörg, Dísa, Lalli, Erla og Hrafnhildur biðja um Þórsmerkurljóð, og einnig Haddý o. fl. En þetta ljóð er víst vinsælast af dægurljóðum í sumar. Höfundur ljóðsins er líka einn þekktasti jarðfræðingur á Norður- löndum, og þjóðkunnur á íslandi fyrir margt fleira en dægurlög. — En dr. Sigurður Þórarinsson er talinn höfundur ljóðsins. Hljómsveit Svavars Gests og Sigurdór hafa sungið og leikið ljóð og lag á hljómplötu. — María — María — María hljómar nú frá hverju viðtæki, hvar sem farið er um landið, því að enginn lokar fyrir þetta vinsæla lag og ljóð. Enn þá geymist það mér í minni María, María, hvernig við fundumst í fyrsta sinni María, María. Upphaf þess fundar var í þeim dúr að æduðum bæði í Merkurtúr. María, María, Alaría, María, María, María! Margt skeður stundum í Merkurferðum María, María, mest þó ef Bakkus er með í gerðum, María, María. Brátt sátu flestir kinn við kinn og kominn var galsi í mannskapinn. María, María o. s. frv. Því er nú eitt sinn þannig varið María, María, að árátta kvensamra er kvennafarið. María, María. Einhvern veginn svo æxlaðist að ég fékk þig í bílnum kysst. María, María o. s. frv. Ofarlega mér er í sinni María, María, að það var fagurt í Þórsmörkinni. María, María. Birkið ilmaði, allt var hljótt, yfir oss hvelfdist stjörnunótt. María, María o. s. frv. Ei við eina fjöl er ég felldur María, María, og þú ert víst enginn engill heldur María, María. Okkur mun sambúðin endast vel úr því að hæfir kjafti skel. María, María o. s. frv. Troddu þér nú inn í tjaldið hjá mér, María, María, síðan ætla ég að sofa hjá þér. María, María. Svo örkum við saman vorn æviveg er ekki tilveran dásamleg! María, María, María, María, María, María! Auðunn, Guðrún á Austurhól, Þorbjörg, Dísa, Lalli, Erla og Hrafnhildur biðja um ljóðið Marina, sem Sig- rún Jónsdóttir hefur sungið í útvarp. Höfundur ljóðs- ins nefnir sig N. N. — Áður hefur verið birt í þessum þætti, ljóð með sama nafni, sem Svavar Gests og Sigur- dór hafa kynnt útvarpshlustendum. Hér kemur þá ljóðið Marina eftir N. N.: Ef værir þú á leið til Ítalíu og ætlaðir að hitta sæta píu, þá, renndu við í Rómarstræti 10 og reyndu að hringja og sjá til hvernig fer. Því þar býr undurfögur yngismeyja sem allir vilja lifa hjá og deyja en ekki skal ég núna um það segja hve eftirlát hún mundi verða þér. Marina, Marina, jViarina, hún elskar þá alla jafnheitt. Marina, iVIarina, Marina, en enginn samt getur hana veitt. Þið farið kannske út að keyra í kelerí og fleira, en ef þú minnist svo á meira hún mælir nei, nei, nei. Ef koss þú um þig kærir með kossum hún þig ærir. En ef bónorð fram þú færir hún fussar nei, nei, nei. Að lokum er hér lítið ljóð, sem heitir Maja litla. Ljóð og lag er eftir Ása úr Bæ, en Erling Ágústsson hefur sungið þetta ljúfa, litla Ijóð. Heima er bezt 397

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.