Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1960, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.10.1960, Qupperneq 27
SJOTTI HLUTI Ingibjörg Sigurðardóttir: I Djónustu Meistarans SKALDSAGA Séra Ástmar hefur lokið aðkallandi störfum og ekur síðan heim að bænum hennar Signýjar. Hann gengur þar rakleitt inn og nemur staðar við hlið konu sinnar, sem situr hjá sjúkrabeði Signýjar. Hann heilsar konu sinni blíðlega, lítur síðan á sofandi sjúklinginn og segir lágt: — Hvernig líður hér? — Vel að sjá. En þessu lífi er líklega senn lokið hjá blessaðri gömlu konunni. — Heldurðu það? — Já, ég held það. — Eg kom hingað til þess að vera hjá þér, ef ég gæti eitthvað aðstoðað þig, Eygló. — Eg þakka þér fyrir, vinur minn. Nærvera þín er mér mjög kærkomin á þessari stund. Frú Eygló bendir rnanni sínum að taka sér sæti, og hann sezt við hiið hennar. Um stund ríkir djúp þögn, en svo opnar gamla konan augun allt í einu, lítur brosandi á prestshjónin og segir lágt, en greinilega: — Nú er ég að kveðja. Hún réttir frú Eygló mátt- iitia hönd sína. — Guð blessi þig, Eygló mín, og ykkur hjónin bæði fyrir allt, sem þið hafið gert fyrir mig. Frú Eygló tekur innilega urn hönd gömlu konunnar og sleppir henni ekki aftur. — Fyrirgefðu það, Signý mín, það hefur verið svo lítið, sagði hún. — Nei, sannur kærieikur verður aldrei lítill. Signý lokar augunum aftur. Sæluþrunginn friður ijómar um andlit hennar. Svo segir hún lágt og hvíslandi: — Ströndin framundan er bæði björt og fögur. Þar stend- ur Gunnar Geirsson, æskuvinur minn, ungur og glæsi- legur eins og forðum daga, og börnin mín hjá honum. Það er allt að bíða eftir mér. Ég má ekki tefja hér lengur. Haltu í höndina á mér, Eygló mín, meðan ég svíf á braut. Rödd Signýjar hijóðnar urn stund, en svo segir hún hærra en áður: — Drottinn Kristur, þú hefur verið mér allt í lífinu. Eins ertu nú á dauðastundinni, og verður um alia eilífð. — Hvílík dýrð. — Gamla konan tekur fyrsta andvarpið, eitt, tvö og þrjú. Og hún er dáin. Frú Eygló heldur enn um hönd Signýjar, og hjónin lúta höfði, sálir þeirra sameinast í hijóðri bæn og lotn- ingu við dánarbeð sannkristinnar konu. Og stundin er heilög. Prestshjónin sjá að öllu leyti um útför Signýjar, eins og hefði hún verið móðir þeirra. Frú Eygló uppfyllir sjáif og iætur uppfylla aliar síðustu óskir gömiu kon- unnar, eins og hún hafði heitið henni. Jarðarförin er fremur fárnenn, en yfir henni hvílir helgiblær trúarinnar og sannur virðuleiki. Að síðustu leggur frú Eygló fagurlega gerðan blómsveig á gröf Signýjar frá þeim hjónum. En í framtíðinni ætlar hún að gróðursetja varanleg blóm á leiði gömlu konunnar úr litla bænum.... V. í skugga ógæfumwr. Síðsumardagurinn ljómar yfir borginni. Frú Eygló er á heimleið frá því að gera árdegis innkaup fyrir heimili sitt. Hún leggur leið sína um fáfarna götu og fer sér hægt og rólega. En skyndilega berst að eyrum hennar mikill hávaði, og hún veitir jafnframt eftirtekt tveimur drengjum inni í húsasundi beint á móti henni, en frá þeim kemur þessi hávaði. Þeir eru í hörkuáflog- um og falla brátt til jarðar. Annar drengurinn er tölu- vert stærri en hinn, og hann hefur auðsjáanlega yfir- höndina. Frú Eygló hægir ferð sína og fyigist af athygli með viðureign drengjanna. Hún sér að stærri drengurinn leilcur hinn mjög illa, og sá minni er farinn að gráta. Hér getur hún ekki gengið fram hjá án þess að hafa tal af drengjunum. Hún hraðar sér til þeirra, nemur staðar fast hjá þeim og segir: — Góðan daginn, drengir. Sá stærri linar þegar á tökum sínum, og þeir líta báð- ir á frú Eygló, en hvorugur svarar ávarpi hennar. Hún heldur þá áfram og segir: — Þið megið ekki meiða hvor annan, drengir mínir. Þetta er ijótur leikur. Viljið þið gera það fyrir mig að hætta honum strax? Stærri drengurinn glottir til frú Eyglóar, slær minni drenginn í andlitið með krepptum hnefa, en sprettur síðan á fætur og hleypur eins og örskot í burtu. — Ég skal mola á þér hausinn seinna, kailar sá minni á eftir honum, þar sem hann liggur flatur í svaðinu, og rödd hans skelfur af gráti og heift. Frú Eygló tekur þegar urn hönd drengsins reisir hann á fætur. Svo nær hún í vasaklút úr tösku sinni og þurrk- ar honurn í franran. — Þú mátt aidrei segja svona ljótt, góði minn, segir hún hlýlega og virðir drenginn fyrir sér. Þennan dreng hefur hún séð áður, og hún man brátt, hvar það var. Hann er annar drengjanna, sem kailaði á eftir Signýju forðum, og hér ber þá fundum þeirra saman aftur. Drengurinn titrar af ekka og gráti. — Jú, ég skal víst mola á honum hausinn, þegar ég get, hrópar hann æstur. Heima er bezt 399

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.