Heima er bezt - 01.02.1961, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.02.1961, Blaðsíða 6
íbúðarhúsið á Vaðbrekku. fátækt og þrengingar fólks úr sínu ungdæmi, að í sam- anburði við það fannst mér mitt hlutskipti gott. Og það er trúa mín, að það Island sem nú er risið hafi verið ósk og draumur þess fólks, sem um aldaraðir þraukaði við skort og þjáningar, stýrði þó ef til vill stærri hamingju niðjum sínum til handa en nútíminn í allsnægtunum." Ingibjörg er sköruleg kona í sjón og raun. Dugnað- ur, hagvirkni og ósérhlífni þessara systkina allra er sterk kynfylgja og erfð frá löngu liðnum formæðrum og feðrum í Valla- og Skriðdalshreppum, sem voru eftirsótt til vandasamra og erfiðra starfa á stórbúum, þó launin væru oftast í öfugu hlutfalli við afköstin. Ingibjörgu var jafn sýnt um að prjóna í höndunum al- klæðnað á dætur sínar í bernsku eins og að sníða þeim skartklæði fullorðnum. Mér virðist augljóst, að mæðurnar og húsfreyjurnar eigi meira en í einurn skilningi líftóruna í þessari þjóð. Þeirra hlutverk var meira en það að fæða og klæða, sem þó var ærið starf út af fyrir sig. I þeirra hlut kom fræðsla barnanna og öll andleg mennt þeirra, auk þess Nokkur af bar?iabörnum Ingibjargar á Vaðbrekku. Myndin er ,tekin í júlí 1960. að annast sjúklinga og gamalmenni. Þetta eru störf sem í dag kosta ríkið hundruð milljóna á ári í krónum og alveg óvíst hvort betri árangri er náð miðað við breytt- ar aðstæður. Þegar það er svo hugleitt að húsakynnin, sem þær áttu við að búa, voru þau óhentugustu og aumustu, sem heimurinn hefur haft upp á að bjóða, er furðulegt að þær skyldu ekki gefast upp á þessu hlut- verki, jafnvel snjóhús Eskimóa voru lúxusíbúðir í sam- anburði við sveitabæina íslenzku. Sárfátækar voru þær flestar á veraldarvísu, en þeim mun auðugri af kær- leika og sönnum mannkostum og margur ungur íslend- ingur er búinn að leggja út í lífið með lítið annað vega- nesti en bænir og blessun góðrar rnóður, og gefizt vel. Það er líka gleðilegt að vita, að öll andans stórmenni íslenzk, hafa sungið mæðrunum óð, sem aldrei deyr. Eftirtektarvert er, að þrátt fyrir nærri hálfrar aldar kvenréttindi hér á landi, hafa konur ekki að neinu ráði tekið þátt í stjórnmálaerjum eða dægurþrasi. Hins veg- fHeimilisfólk og gestir á Vaðbrekku fyrir 20 árum. ar hafa þær tekið að sér forustuna í öllum líknar- og mannúðarntálum — og lyft þar Grettistaki. Sýnir það að þær eru enn hlutverki sínu trúar. Þó Ingibjörg sé nú þegar, tæplega sextug, búin að af- kasta miklu ævistarfi, er síður en svo að á henni sjái þreytu eða ellimörk. Hún er enn ung í anda, létt í spori og hlífir sér hvergi. Eftir að Vaðbrekka komst í vegasamband fyrir fá- um árum, var tæknin strax tekin í þjónustu búsins, bæði úti og inni. Hefur búið stækkað, afköst og umsvif auk- izt og hefur Ingibjörg verið þar hvetjandi en ekki letj- andi. Og nú, þegar nýbýli er risið í túnfætinum og jörðin er yrkt með stórvirkum, nýtízku tækjum, má það Ijóst vera að ævistarf þeirra Vaðbrekkuhjóna er sá trausti hornsteinn, sem þær frarnkvæmdir hvíla fyrst og fremst á. Þrátt fyrir litla skólagöngu og annasama ævi hefur Ingibjörg aflað sér staðgóðrar þekkingar, enda vel lesin í bókmenntum, fornum og nýjum. Ættfræði og þjóð- legur fróðleikur er sérstakt hugðarefni hennar, auk þess sem hún er einlægur unnandi fagurra ljóða og allra þjóðlegra Iista. 42 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.