Heima er bezt - 01.02.1961, Side 7

Heima er bezt - 01.02.1961, Side 7
Fyrsta ferð mín í útver Frásögn Einars Sigurfinnssonar - Arni Arnason skráði Veturinn 1901 hafði stjúpi minn ráðið mig sem vertíðarstrák til Gissurar Bjarnasonar söðla- smiðs á Litla-Hrauni við Eyrarbakka. Ég var þá 17 ára gamall og var hjá móður minni og stjúpa að Lágu-Kotey í Meðallandi, smávaxinn, kjark- vana og kraftalítill. Ég var þó talinn vera orðinn nógu gamall og þroskaður, til þess að fara í útver og létta undir í þurftir heimilisins. Það var mjög nálægt miðþorra, að ákveðið var að leggja upp í þessa fyrirhuguðu ferð. Á næsta bæ við mig var bóndason, Árni Erasmusson, að nafni. Hann var maður á bezta aldri, fjörmikill, dugnaðarforkur og hinn bezti drengur. Hann ætlaði til útvers og ætlaði að verða á skútu frá Reykjavík. Þessum manni var ég nú falinn til umsjónar og aðstoðar á meðan leiðir okkar lægju saman. Með okkur var og piltur á líkum aldri og ég, sem hét Björn Bjarnason, léttur á fæti og vel dug- legur. Morgunn einn í björtu veðri lögðum við þremenn- ingarnir svo af stað austan úr Meðallandi. Nokkur snjór var kominn, en þó ekki svo mikill, að veruleg ófærð gæti kallazt. Kúðafljót var allt ísi lagt, nema áll einn allbreiður og straumþungur. Vfir hann fengum við ferju frá Söndum, sem var bær, er stóð á hólma í Fljótinu. Nokkrir smá álar voru svo auðir í vestur- hluta Fljótsins, en vrfir þá komumst við tafalítið. Við héldum svro áfram vestur Álftaverið og tók ég mér náttstað þar í Holti. Þar bjó þá Einar Jónsson og kona hans, Guðrún Guðmundsdóttir, og var hún móður- systir mín. Næsta dag var dimmt í lofti, og gekk að með slyddu- éljum. Við fengurn lánaða hesta nokkuð út á sandinn, og með okkur reið kunningi okkar, Bjarni Sverrisson, til þess að reka hestana til baka. Bjarni kom okkur út yfir Miðkvíslar, en þar sneri hann aftur og árnaði okk- ur fararheilla. Þá lögðum við pokana á axlirnar og tók- um til fótanna. Ekki var þó hlaupið heldur þrammað áfram jöfnum skrefum en með smáhvíldum út yfir Múlakvísl, þaðan út með Höfðabrekkuhömrum, yfir Kerlingardalsá, út með Víkurhömrum og allt til Víkur- kauptúns. Eins og venjulega fékk ég gistingu hjá góð- vinum mínum, Erlendi Björnssyni trésmið og hans ágætu konu Ragnhildi Gísladóttur. Næsta morgun þegar út var litið, var komið hið versta veður, norðaustan stormur og mikil snjókoma. Var ekkert ferðaveður og héldum við félagarnir ltyrru fyrir í Vík þann dag. Daginn eftir var frostlaust veður og regnhraglandi. Þá lögðum við af stað frá Vík snemma dags. Allar smá-ár Mýrdalsins voru stíflaðar og uppbólgnar vegna bylsins daginn áður. Samt kom- umst við tafalítið yfir þær allar og allt að Hafursá. Þegar þangað kom var ekki álitlegt að horfa eftir leið. Hafursá er allstraumþung jökulsá og rennur í mörgum kvíslum um stórgerða malaraura. Nú var þetta annars tiltölulega meinlausa vatnsfall, fuilt af krapa þ. e. ál- arnir sjálfir, en vatnsflaumurinn streymdi um allar eyr- ar. Þó ekki væri árennilegt að leggja út í þetta, þótti okkur hins vegar ekki gott að hverfa frá ánni að óreyndu. \’ið ákváðum að freista yfirkomunnar. Árni fór á undan og valdi vöð, þar sem álitlegt þótti. I aðal- álnum var snjókrapið svo samanþjappað, að það hélt manni uppi með því að hnoða hvert spor undir fætin- um áður en skrefið var að fullu stigið. Sums staðar varð að skríða á höndum og hnjám, því að þannig kom þungi manns á stærri blett. Þannig sigum við áfrant fet eftir fet, unz loks öll Hafursá var að baki. Fegnir urðum við að komast vfir, og kalt var okkur enda vorum við mjög blautir. Kom sér því vel að skammt var til góðra bæja. I Pétursey voru góðir bændur og ekki síður góðar konur. Þar var okkur tekið með alúð og umhvggju- semi. Fengum við Björn náttstað saman, en Árni var á öðrum bæ, allir í bezta yfirlæti. Árni bóndi í Pétursev, sem veitti mér og Birni húsa- skjól þessa nótt, varð síðar einn af mínum beztu vin- Frá Vik í Mýrdal. Ser austur með Víkurhömrum. Hjörleifs- höfði i baksjn. Heiiría er bezt 43

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.