Heima er bezt - 01.02.1961, Page 13

Heima er bezt - 01.02.1961, Page 13
á allmörgum stöðum syðra jafnvel fram á fyrri hluta 16. aldarinnar. Járnvinnslu íslendinga er að mestu lok- ið um eða skömmu eftir 1400. En einmitt á miðri 14. öldinni gefur Arngrímur ábóti á Þingeyrum þessa lýs- ingu af landinu: „Skógur er þar engi utan björk og þó lítils vaxtar“. Þó að þessi guðs maður geri yfirleitt lítið úr gæðum iandsins, til þess að auka sem mest á dýrð söguhetju sinnar, Guðmundar biskups góða, fer þessi lýsing hans vissulega eigi fjarri sanni, enda hníga fleiri heimildir í sömu átt. Það er t. d. athyglisvert, hversu mörg skógarítök eyfirzk höfuðból hafa eignazt um þær mundir austur í Fnjóskadal. Tæplega hefði svo ver- ið eftir þeim sótzt, ef skógar hefðu þá ekki verið eyddir að mestu í Eyjafirði. Myndin, sem vér gætum brugðið upp um 1400 er þá þessi. Skógar eru teknir mjög að eyðast. Akuryrkja, svína- og alifuglarækt er úr sögunni að mestu, járn- vinnsla hefur lagzt niður að kalla má. Þjóðin, sem fyrir hálfri annarri öld hafði glatað pólitísku frelsi sínu, hlaut nú að norpa í köldum húsum, sem urðu lágreistari og minni, hverju sinni, sem þau voru endurreist, sakir viðarskorts og eldsneytis. Og hún var nú með öllu háð aðflutningum um kornvöru, timbur og járn, sem hún hafði aflað af eigin gæðum landsins að meira eða minna leyti á fyrstu öldum byggðarinnar. Svo mjög var nú hag hennar hnignað, þótt meira yrði síðar. Það væri vitanlega fásinna, að kenna eyðingu skóganna einni um það hversu komið var. I hagsögu þjóðar eru margir þættir saman slungnir, bæði innan frá og utan að kom- andi. En hitt er fullvíst, að sagnfræðingar vorir og aðrir, sem um þessi mál hafa fjallað, hafa gengið alltof létti- lega fram hjá þeim áhrifum, sem slík landspjöll sem skógareyðingin hafði. Með skóginum var eytt dýrmæt- asta höfuðstól landsins, og sú eyðsla dró margfaldan slóða hnignunar í far sitt. Það er alkunna, hversu skóg- ur bætir og mildar loftslag. Það er ekki einungis skjól- ið, sem hann veitir, heldur dregur hann úr hitabreyting- um, mildar frostnætur og því um líkt. f skjóli skóganna verður gróður allur þroskameiri og fjölbreyttari en á bersvæði. Ekki er ósennilegt, að eyðing skóganna hafi átt nokkum þátt í að kornyrkja lagðist niður, þótt fleira hafi til komið. Þegar skógurinn hvarf versnaði haglendi stómm, og útigangspeningi var hættara. Svín gátu ekki lengur gengið sjálfala, og fóður handa þeim reyndist vandfengið, við það lagðist svínaræktin niður, og íslenzkur landbúnaður varð fábreyttari og snauðari eftir. Alifuglaræktin fór sömu leiðina. Enda þótt auk- inn innflutningur járns og hagstæðari verzlun hafi átt nokkum þátt í því, að rauðablástur lagðist niður, er ljóst að eldsneytisskorturinn hefur valdið þar miklu um. Og ekki vænkaði það þjóðarhaginn, að þurfa að kaupa nauðsynjavöm sem járn, alla frá útlöndum. Eftir því sem raftaskógurinn eyddist þurfti að flytja meira inn af timbri, en jafnframt því versnaði húsakostur landsmanna, og smám saman krepptist þjóðin í lág- reistum torfkofum, þjáð af kulda og bjargarskorti. En vetrarbyljir og vornæðingar tóku samtímis að feykja burtu jarðveginum af eyddum skógarlendum. — Slíkur er fyrsti þátturinn í sögu íslenzkra skóga. HIN TÍU BOÐORÐ SKÓGARINS. Hver sem sér til skemmtunar um skógana fer, hann beri ætíð boðorð þessi hljótt í huga sér: 1. Brjóttu hvorki smákvisti né græna skógar-grein. 2. Gæt þess að valda ei ungviðinu banamein. 3. Hreins sprekarusl og hrasl gömlum götuslóðum frá. 4. Lát skógarelda engin minnstu skilyrði fá. 5. Fleygðu hvergi flöskubrotum, forðastu það. 6. Gakktu snyrtilega um þinn áfangastað. 7. Rífðu aldrei næfur af ungu birkitré. 8. Slíttu ekki upp blómin, þótt litfögur sé. 9. Veittu hverju skógarlífi hlýlegt hugarþel. 10. Verndaðu skóginn. — Það borgar sig vel. Þeim sem þessi boðorð í heiðri heldur, skógurinn æ meiri gleði geldur. (Úr norsku skógræktarriti). Til áskrifenda „Heima er bezt“ já, svona fór um sjóferð þá! Eg hafði lengi alið þá von í brjósti, að Heima er bezl yrði eini hluturinn á íslandi, sem ekkert hækkaði í verði. Og þetta tókst reyndar í 5 ár, eða frá árinu 1956 til ársins 1960 að báðum árum meðtöldum. En þar með var draumurinn líka búinn. Öll þessi ár hefur allt verðlag farið hækkandi, bæði vinnulaun og annað, en á síðastliðnu ári hækkaði pappír og allar aðkeyptar efnivörur, varahlutir í vélar, póst- gjöld o. S. frv. svo gífurlega, að ekki varð rönd við reist. Hinn skemmtilegi draumur var á enda, — en hann hafði þó vissulega staðið í 5 ár, svo að ekki dugar mér að vanþakka hann. Áskriftargjald Hehna er bezt fyrir árið 1961 hækkar nú um 20 krónur, eða úr 80 krónum í 100 krónur. Við skulum vona, að sá draumur endist okkur einnig í 5 ár. Síðastliðin tvö ár hafið þið hjálpað okkur mikið og sparað okkur feikna vinnu með því að þið hafið sjálf sent okkur áskriftargjöldin og losað okkur þannig við póstkröfurnar. Enn á ný fer ég fram á þessa hjálp ykkar og þakka ykkur fyrirfram, því að ég er þess fullviss, að ekkert rit á íslandi á jafn góða og skilvísa kaupendur og Heima er bezt. Og það er ég sannarlega þakklátur fyrir. Við, aftur á móti, sem að blaðinu vinnum, munum gera það sem í okkar valdi stendur til þess að það megi flytja gott lesefni, koma reglulega út, vanda til frá- gangsins og halda verðinu svo lágu, sem unnt er. Ég bið ykkur og heimilum ykkar blessunar á þessu nýbvrjaða ári. Með beztu kveðju, Sigurður O. Björnsson. Heima er bezt 49

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.