Heima er bezt - 01.02.1961, Side 15

Heima er bezt - 01.02.1961, Side 15
tjáði sig að mestu sammála síðasta ræðumanni séra Birni. Eg segi þetta ekki til að kasta rýrð á öndvegisbóndann Eirík á Brú, sem er líka frændi minn, heldur til að sýna það, sem altítt var um þessar mundir, að alþýðumenn höfðu sig ekki upp í það að mótsegja embættismönn- um, og höfðu varla þrek eða kunnáttu til þess. Samt skal ég segja það, að ég man engan bónda virðulegri frá fundi þessum en Eirík frá Brú. Af hálfu mótherjanna var Olafur Friðrik Davíðsson á Vopnafirði meðmælandi. Hann mun hafa talað þarna lengi og snjallt, og sennilega fengið að nota tíma hins meðmælandans. Nú man ég engan ræðumann að marki nema hann. Ég varð svo hrifinn af hans ræðu, að ég man einhver áhrif enn í dag, þó ég muni ekkert efni. Ég verð þá líka að segja nánari deili á Olafi. Árið áður, 1902, var líka kosið til Alþingis. Þá var Ólafur frambjóðandi og Jón Jónsson á Sleðbrjót. Þeir náðu þá kosningu með glans. Einkum Ólafur, sem hlaut 148 atkv. Mun það hafa verið fágætt, að einn maður hlyti svo mörg atkvæði hér. Jón á Sleðbrjót var þá líka kjörinn með 140 atkvæðum, enda var hann gamall í sessi og vel metinn þingmaður um mörg ár. Þá féllu Valtýingar fyrir þeim við lítinn orðstír, þeir Jóhannes sýslumaður og séra Einar í Hofteigi. Þá var þetta kveðið: Veslaðist upp í vorkuldum Valtýskan á Fossvöllum. Eftir því sem af henni dró Árni grét en Skafti hló. Skafti var ritstjóri Austra, og andstæðingur Valtý- inga, en Árni, sem þarna er getið, mun vera Árni Jó- hannsson sýsluskrifari um hríð, og mikill stuðnings- maður Jóhannesar sýslumanns. Ólafur Davíðsson var verzlunarstjóri á Vopnafirði hjá Örum og Wulff á þessum árum. En þeir húsbænd- ur hans fyrirbuðu honum þetta bölvað stúss frá sínu starfi, svo hann fékk ekki að bjóða sig fram við kosn- ingarnar 1903. Honum var nú samt ekki sama 'hvað ofan á yrði, og kom þarna fram, sem meðmælandi sinna flokksbræðra. Hann er mér ógleymanlegur, og víst mörgum fleirum frá þessum tíma. Ólafur var víst uppalinn á Akureyri og Eyfirðingur að ætt. Hann sagði lausri stöðu á Vopnafirði næsta ár, og flutti suður, en varð þó brátt verzlunarstjóri á lsa- firði. Jæja, þetta var nú útúrdúr um Ólaf Davíðsson, sem ég sá aðeins í þetta eina sinn, en ég varð að gera grein fyrir honum í þessu spjalli. Nú máttu frambjóðendur koma upp í ræðustólinn aftur. Já, ég hef gleymt að geta um það, hver ræðu- stóllinn var. Það var hestasteinninn á Fossvallahlaði, sem líka var sumstaðar kallaður börðusteinn, fiskasteinn eða bakþúfa kvenna. Frambjóðendurnir komu nú aftur í sömu röð og áð- ur upp á steininn. Þeir svöruðu snuprum og ádeilum andstæðinganna, einkum meðmælenda þeirra, Ólafi og séra Birni. Að þeim ræðum loknum var gengið til kosninga. Ég held ræðutíminn hafi hlotið að vera mjög takmarkaður, því annars hefði þetta ekki gengið eins fljótt af. Um þetta man ég þó ekki annað en það, að öllu var lokið um háttatíma, klukkan um 12, eða jafn- vel fvrr. Að ræðunum loknum var farið að kjósa. Sýslumaður sat þar í stofu, sem vissi fram á hlaðið að gluggum og hafði þar tvo menn sér við hlið, til að skrifa atkvæðin. Hreppstjórar áttu að leiða inn til hans sína sveitunga, og held ég að byrjað hafi verið á hreppunum norðan frá, eins og raunar er gert hér í sýslunni enn í dag. Úr Skeggjastaðahreppi man ég ekki til að væri nokk- ur maður, enda átti hann lengst að sækja. Þó má vera að einhverjir hafi verið þar, en sjálfsagt mjög fáir. Næstir voru þá Vopnfirðingar. Mig minnir að ég hcyrði talað um, að þeir hefðu komið þar einir 60 eða 70 nóttina áður af Smjörvatnsheiði undir forustu Ólafs Davíðssonar. Um kjósendatölu úr Héraðshreppunum man ég ekkert. Hitt man ég vel, að úr Seyðisfirði komu margir, sem fylktu sér, eða var fylkt um Jóhannes sýslumann. Ég lenti í að ferja þá með vinnumönnum Björns á Rangá, vinar míns, kvöldið áður, yfir Lagarfljót á Rangár- ferjustað. Þeir kusu fremur að fara þar yfir fljótið held- ur en á Egilsstöðum vegna þess, að þá voru þeir lausir við Rangá, en hún gat orðið þykkjuþung í vorleysing- um, sem Páll kvað: Rangá fannst mér þykkjuþung, þröng mér sýndi dauðans göng, svangan vildi svelgja lung, söng í hverri jakaspöng. Reyndi ég þá að ríða á sund, raðaði straumur jökurn að. Beindi ég þeim frá hófahund. Hvað er meiri raun en það? Þess verður að geta, að Seyðisfjörður hafði þá ekki sérstöðu, sem sérstakt kjördæmi. Það kom tveimur ár- um síðar. Seyðisfjarðarhreppur innibyrgði því allan kaupstaðinn, því voru þeir svona fjölmennir. Þeir sigruðu líka í þessum kosningum all-glæsilega. Jóhannes hlaut 182 atkvæði. Séra Einar Þórðarson 112 atkvæði. Séra Einar Jónsson 107 atkvæði. Jón læknir Jónsson 48 atkvæði. Þó fullyrði ég ekki, að allar þessar tölur séu réttar. Stefán Th. Jónsson var stækkandi kaupmaður á Seyð- isfirði um þessar mundir. Hann var úr Austur-Skafta- fellssýslu, vinsæll og mikilhæfur maður. Talið var að hann hefði átt drýgstan þátt í því, að koma Jóhannesi á þing. Einkum hefði hann verið duglegur að fá menn til að sækja kjörfund þessa löngu leið. Heima er bezt 51

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.