Heima er bezt - 01.02.1961, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.02.1961, Blaðsíða 19
son allatíð eins og fyrsta daginn, góður maður, sam- vizkusamur vinnuveitandi, nokkuð skapbráður og stundum af litlum ástæðum, en fljótur til sátta. Hann var meðalmaður á vöxt en feitlaginn, ljós á hár og skegg, fríður sýnum, og engan sá ég, er betur bar sjó- klæði en hann. Það var hrein unun fyrir sjómannsauga að sjá þann mann í sjóklæðum. Kona hans hét Auróra, ég held að hún hafi verið ættuð einhvers staðar úr Snæ- fellsnessýslu, hún var með afbrigðum glæsileg kona. Mér dettur í hug smáskrítla í sambandi við nafn þess- arar konu Olafs og læt ég hana fylgja með: A'laður var nefndur Bjarni og að auknefni „bró“, hánn var sonur Magnúsar fyrrum bónda í Raknadal. Magnús var fátækur en átti marga syni, sem flestir voru lifandi, þegar ég fór að stunda atvinnu á Patreksfirði, og meðal þeirra var Bjarni. Auknefni hans mun hafa stafað af því, að maðurinn var fljóthuga og fljótmælt- ur og þegar hann ætlaði að geta bræðra sinna að ein- hverju, þá varð venjulega úr því „bró minn“ í stað bróðir minn, en nafngiftir lágu mjög í landi á Patreks- firði í þá daga, og er svo raunar enn. Bjarni var einn af þessum saklausu einfeldningum, sem aldrei ná full- um þroska, hvorki andlegum né líkamlegum, hann var mikill vinur og aðdáandi Ólafs faktors. Nú vildi það til eitt sinn, að útlendur togari kom inn til Vatneyrar, og ætlaði að fá eitthvað af nauðsynjum, vatn, kol eða ís, en allt þetta var selt á Vatneyri, því að þar var ný- byggð hafskipabryggja og hæg aðstaða. Eittlwað tókst óhönduglega að leggja að bryggjunni, og braut skipið bryggjuhausinn allmikið. Skipið hét Auróra eins og faktorsfrúin. Bjarni var þarna nærstaddur og varð mik- ið um, tók nú á rás eftir þorpinu og vildi dreifa frétt- inni sem fyrst og til sem flestra, og hrópaði: „Helvítið hún Aróra, siglir hún nú ekki beint inn í höfuðið á honum Ólafi mínum, svo að hann bíður þess líklega seint bætur.“ Ekki hirti Bjarni að geta þess, að þessi Aróra var skip, og var gjört mikið gaman að fljótfærni karls. Adargar sögur voru sagðar af Bjarna þessum, og sumar efalaust ýktar mjög. Hann var aldrei við kven- mann kenndur, en byggði sér skúr út í svonefndum Urðum og bjó þar. Þegar mannaferð af aðkomufólki var mest á Patreksfirði var illt um gististaði. Leituðu þá sveitamenn til vina og kunningja um húsaskjól, þar á meðal til Bjarna. Eitt sinn ltomu tveir aðkomumenn í þess háttar erindum til Bjarna seint á kvöldi, og var þá karl háttaður og hafði dregið lokur fyrir hurð. Þeir kölluðu þá til hans um gluggann, en hann sinnti þeim ekki, þar til honum mun hafa leiðzt þófið, þá kallar hann út: „Þegjuðu maður, ég er sofandi.“ En þegar hinn lét sig ekki, bætti karl við: „Haltu kjafti, ég er að lesa faðirvorið.“ Og máttu gestirnir fara bónleiðir. Þrír bræður Bjarna voru einnig búsettir á Patreksfirði. Hét einn Einar, hann hafði verzlun nokkra eða kona hans, og ráku þau einnig gistihús lítið. Gárungarnir sögðu, að svo hefði Alagnúsi karli, föður þeirra, þótt mikill vegsauki fyrir son sinn, Einar, þegar hann gjörð- ist búðarþjónn hjá Backmann kaupmanni á Vatneyri, að þá hefði hann þérað hann, eins og Backmann sjálfan. Guðmundur hét annar bróðir Bjarna. Hann var lengi matsveinn á skipum frá Vatneyri, meinhægðarmaður, en gat komið fyrir sig orði nokkuð meinlega, ef svo bar til. Nú eru þessir bræður allar gengnir fyrir ætt- ernisstapann, fyrir mörgum árum, en staðurinn fátæk- ari eftir. Fyrsta árið, sem ég var til sjós frá Vatneyri var þar engin bryggja. Allt þurfti að bera á bakinu eða á hand- börum, salt, kol og aðrar nauðsynjar til skipanna, og fiskinn upp á handbörum. Að þessu unnu skipsmenn sjálfir. Og ef sveitamenn, sem til sjós voru á skipunum, þurftu að skreppa heim til sín, þegar komið var úr veiðiferð, þá þurftu þeir að fá annan í sinn stað á með- an, og gjalda honum kaup. Þetta þætti sjómönnum nú, líklega nokkuð hart, en þá þekktist ekki annað. Og má segja að skammt sé öfganna á milli. Að kvöldi þessa fyrsta grjótburðardags okkar félaga, sást til skips, er stefndi inn fjörðinn, reyndist það vera „okkar“ skip, og var þá grjótbörunum fljótlega sleppt. Seint um kvöldið fluttum við okkur svo um borð í skipið, því að það átti að sigla strax um nóttina. Aldrei hafði ég áður komið á svo stórt skip. Það var 23 smá- lestir. Og það var ekki laust við, að ég yrði þá strax nokkuð uggandi um minn hag, þó að ég léti á engu bera. Skipsmenn létu mig afskiptalausan, mér var vísað á „koju“, sem ég skyldi sofa í með öðrum manni. Mér fannst ég vera eitthvað utangátta við þetta allt. Skipstjórinn hét Bjarni Friðriksson úr Tálknafirði, roskinn maður, lágur vexti en nokkuð þrekinn. Hann var hversdagslega þegjandalegur og fúll í skapi. Sjálf- sagt hcfur hann verið eitthvað slæmur á taugum, því að hann átti erfitt með svefn, og hafði þá til að koma upp, ef hann heyrði minnsta hávaða á þilfarinu, og lesa óróaseggjunum textann. Stýrimaðurinn hét Jóhannes. Hann var frá Móbergi á Rauðasandi, lágvaxinn maður og atkvæðasmár, en vel liðinn af undirmönnum sínum, því að hann var góðmenni. Ég held að hann hafi aldrei þorað að snúa skipinu, hvað þá meira, án þess að bera það fyrst undir skipstjóra. En yfir matarforða skipsins hafði hann óskoruð ráð og vó vikuforða hvers manns með svo mikilli samvizkusemi sem um gull væri að ræða. Hver háseti geymdi sinn skammt í skápum, sem hólfaðir voru sundur undir bekkjum, sem setið var á í hásetaklefunum. Það sem út var vegið var: Brauð, venjulega kex, illhart og ómatarlegt, 3V& kg á viku, smjörlíki y4 úr kg á viku, slíkt smjörlíki mundi eng- inn leggja sér til munns nú til dags. y4 kg púðursykur °g 14 kg kandíssykur. Grautar allir og súpur vrnru sameiginlegt, en kjöt var skammtað tvisvar í viku, 1/2 kg, venjulega saltkjöt, og tæplega fyrsta flokks. Mat- sveinninn hét Ólafur. Hann var sonur hins nafnkunna eyjabónda Hafliða í Svefneyjum, hann var búsettur á Patreksfirði, ágætis karl en drvkkfelldur um of, og ákaflega lélegur matsveinn. Aðrir skipsmenn voru: Teitur bóndi í Hvammi, og með honum mágur hans, Framhald á bls. 60. Heima er bezt 55

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.