Heima er bezt - 01.02.1961, Side 25

Heima er bezt - 01.02.1961, Side 25
FYRSTI HLUTI I. Orlaga-bréfið. Björt maísólin Jjómar yfir sýslumannssetrinu að Grund. Árni sýslumaður situr inni í skrifstofu sinni og les sendibréf. Hann er maður nokkuð við aldur, hár vexti, fremur feitlaginn og hinn fyrirmannlegasti að vallarsýn. Gleðibros færist um andlit sýslumannsins, meðan liann les hið lcærkomna bréf frá gömlunt vini og félaga í höfuðborginni, Þórði heildsala Pálmasyni. Upphaf bréfsins hljóðar þannig: „Kæri vinur: — Þakka allt liðið. Síðast þegar fundum oltkar bar saman, færðir þú það í tal við mig, að þig vantaði aðstoðarmann, eða réttara sagt fulltrúa. Nú hef ég ráð á tilvöldum manni handa þér í þá stöðu. Pálmi sonur minn lauk lögfræðiprófi nú fyrir skömmu, mesti efnispiltur, en ég hef ekld fundið starf, sem mér líkar, fyrir hann liér í höfuðborginni. Nú stendur hann þér til boða sem fulltrúi þinn, gamli vinur.... Sendu mér svar þitt hið bráðasta.“ Sýslumaðurinn lítur lauslega yfir það sem eftir er af bréfinu, og réttir sig svo upp í stólnum. Ja, hvort hann tæki þessu boði hins gamla og góða vinar síns! Þeirra viðskipti hafa ætíð orðið honum í hag, og eins verður áreiðanlega einnig í þetta sinn. Ekki þurfti hann mikið fyrir þessu málefni að hafa! Hann ætlar að svara bréfi vinar síns strax og biðja hann að senda Pálma sem fyrst að Grund. Hann er fyr- ir löngu farinn að hafa þörf fyrir aðstoðarmann í hinu umfangsmikla embættisstarfi sínu. Sýslumaðurinn tekur fram ritföng, skrifar í flýti svarbréf sitt og frímerkir það. Svo rís hann á fætur, gengur að glugganum og opnar hann. Ferskur vorblær- inn streymir inn á hann. Sýslumaðurinn stendur kyrr við gluggann um stund og horfir út. Helga kona hans og Elsa dóttir þeirra vinna að gróðursetningu nýrra blóma í stórum, fjölskrúðugum garði heima við húsið. Þær hafa báðar mikinn áhuga fyrir blómarækt. Sýslumaðurinn horfir með velþóknun á starf þeirra og virðir þær jafnframt fyrir sér. Elsa er orðin gjaf- vaxta mey. Hann brosir. Já, hví skyldi hann ekki fara að hugsa fyrir eftirmanni sínum. Hann vildi gjarnan senn fara að njóta algerrar hvíldar frá embættisskyld- um eftir erilsaman starfsdag. En fyrst verður hann að sjá fyrir öllu. Verður þá ekki hin væntanlega koma Pálma lögfræðings að Grund hið ákjósanlegasta svar við framtíðardraumum hans um traustan eftirmann og glæsilegan tengdason? Hann má ekki draga það lengur að skýra þeim mæðgunum frá þessari gleðifrétt um væntanlega komu hins nýja fulltrúa. Helga kona hans hefur lengi hvatt hann til að fá sér aðstoðarmann, svo þessi nýja ákvörð- un hans hlýtur að gleðja hana. Sýslumaðurinn gengur fram tir skrifstofunni og út í blómagarðinn til konu sinnar og dóttur. Mæðgurnar hafa lokið við að fullgera síðasta blómabeðið og eru á förum úr garðinum. Sýslumaðurinn nemur staðar hjá þeirn og segir glaðlega: „Mikið gróðursetjið þið af blómunum, kona mín og dóttir.“ „Já, finnst þér ekki garðurinn okkar vera fallegur, góði minn?“ Helga lítur brosandi yfir blómabeðin og svo á mann sinn. „Jú, vissulega, og alltaf er prýði af velhirtum blóm- um. En nú er ég kominn til að segja ykkur mæðgunum góðar fréttir. Ef til vill hef ég iíka í dag lagt grund- völl að nýjum gróðri, sem á eftir að bera ríkulegart ávöxt í framtíðinni, hér að Grund. Eg var að ráða til mín aðstoðarmann.“ Frú Helga horfir glöð og undrandi á mann sinn. „Hver er það?“ „Pálmi lögfræðingur, sonur Þórðar heildsala, vinar míns.“ „Það eru ánægjulegar fréttir, ég samgleðst þér, góði ntinn. Og hvenær kom þetta til ráðagerðar?“ „Ég félck bréf frá Þórði vini mínum með póstinum í morgun, þar sem hann býður mér Pálma son sinn mér til aðstoðar, og ég var að ljúka við að svara bréfi hans og taka því vinarboði.“ „Hvenær áttu svo von á Pálma hingað?“ Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.