Heima er bezt - 01.02.1961, Page 32

Heima er bezt - 01.02.1961, Page 32
Svo rigsaði hún fram úr borðstofunni og þóttist hafa komið vel fyrir sig orði. „Hún hefði heldur átt að þegja, garmurinn,“ tautaði Hartmann í hálfum hljóðum við vanga konu sinnar. „Þú varst að spyrja mig að því hver hefði verið á spildunni hjá mér þegar þú reiðst fyrir neðan garð,“ sagði Leifi. „Það var Ásgeir frá Giljum. Hann verður þar víst þangað til túnið er búið, meira þarf hún sjálf- sagt ekki að heyja. Eg hugsa að hann hirði þar í vetur. Hann er gammduglegur maður, að hverju sem hann gengur.“ „Ojá, það þarf alltaf að vera einhver dul yfir öllu, sem þessum búskap tilheyrir,“ sagði Hartmann. „En 'hafa þær ekki einhverja kaupakonu?“ „Það hefur verið unglingsstúlka utan af Eyri þessa daga og svo hef ég lánað strákangann minn til að rifja. Túnið er langt komið. Ef þurrkurinn helzt næstu viku verður varla mikið eftir úti um næstu helgi, því alltaf er flutt heim í hlöðu jafnótt og þornar.“ „Hvernig er hægt að flytja inn þegar enginn taminn hestur er til á heimilinu?“ spurði Hartmann. Kristján spurði einskis, en hlustaði með ákefð eftir svörum Leifa. „Það kom fljótlega ný kerra heim á hlaðið. í henni 'hafa sáturnar verið fluttar. Klárinn hans Bjössa á Bala gengur fyrir henni. Hún lét Ásgeir slá fyrir það hjá 'honum nærri heilan dag og það á engi. Það var fallegur blettur, sem hann skilaði. Ég býst við að karlinn hafi verið skaðlaus. Svo fær hann kerruna þegar hann þarf. Það lítur út fyrir það, að hún verði jafn vinsæl hjá nágrönnunum og áður. Ég er búinn að lofa Jóni litla að fylgja honum hingað þegar hann er farinn að geta set- ið á hesti; hann er heldur klaufskur enn þá.“ „Þar færðu líklega kærkominn gest, Kristján minn,“ sagði Arndís og brosti. „Það verður sjálfsagt seint sem sá gestur ríður í hlað 'hér, enda líklega búinn að gleyma mér að mestu leyti,“ sagði Kristján stuttlega. Svo breytti hann um og spurði Leifa hvort hann ætlaði að verða á Hofi í allt sumar. „Nei, ég er hættur. Verð að fara að hugsa um að reyta eitthvað handa þessum fáu skepnum mínum. Hún segist hafa vísan kaupamann næstu viku. Ekki veit ég hver hann er.“ Forvitnin hafði rekið Ásdísi inn aftur. Henni var líka runnin reiðin að mestu leyti. „Það er nú bara bróðir þinn, Ásdís mín, sem er til- vonandi ráðsmaður á Stóra-Hofi,“ sagði Hartmann gamli.“ Hún stakk höndum á mjaðmir sér og skellihló. „En hvað þetta fellur vel saman. Hann býr með Rósu en ég með Kristjáni. Kannske verður sami endirinn fyrir þeim og okkur.“ „Ja, hvaða endir er það eiginlega?“ spurði Leifi. „Þú sérð það nú líklega, þennan myndarlega son, sem við eigum.“ Hún sá að Kristján var allt annað en falleg- ur á svipinn, en hún lét sig það litlu skipta. Hann var búinn að velgja henni svo þessa viku. „Kannske þú haldir að hann giftist annarri hvorri maddömunni,“ tísti í Leifa. „Það eru víst engin vandræði að búa með Ásgeiri. Hann kann að hirða skepnur og það hefur alltaf þótt þó nokkurs virði,“ sagði Ásdís snúðugt. Arndís gamla fór að tala um að það þyrfti líklega að fara að hugsa um kaffi handa gestinum. Valborg hafði gengið á bæi. Það var þungur svipur á feðgunum, þegar Leifi var farinn. Kristján ranglaði eitthvað út fjörur en Hart- mann tók tóbaksfjölina. Hann hafði ekki viljað hreyfa hana meðan Leifi var þar. Hann át tóbakið eins og mat af fjölinni, meðan það var ekki nógu smátt til að taka það í nefið, hákurinn sá. „Það hafði ekki neitt góð áhrif á Kristján að heyra, að kona hans og barn væru komin í sveitina. Hann hef- ur frétt þetta þegar hann fór með ullina. Síðan hefur hann verið allt annar maður,“ sagði Arndís gamla raunaleg á svip. „Já, ójá, það má nú segja, að hann er ólánsgarmur í þessu kvennastússi sínu. Honum hefði verið nær að taka maddömuna eins og ég var búinn að margráð- leggja honum. Þá hefði hann ekki þurft að búa sem leiguliði í mörg ár og hrekjast svo burtu. Þó tekur út yfir að geta ekki verið almennilegur við stúlkugreyið og barnið, eins og hún vinnur þó. Svo lætur hann stundum eins og Guðný sé einhver sérstök dugnaðar- hetja, sem stendur þó alveg eins og kyrr við hliðina á Ásdísi. Það gerir hann bara til að skaprauna henni.“ „Já, ég skil það. Hann finnur eins og er, að hún er langt fyrir neðan hann,“ sagði Arndís. „Það megum við nú hafa,“ sagði Hartmann. „Það er ég, sem ekki hefði verið lengi að velja á milli þeirra kvenna. Það er eins og ég hef sagt áður honum til skammar hvernig hann kemur fram við hana,“ sagði Hartmann og tók hraustlega á járninu. Þurrkarnir héldust fram í ágústbyrjun. Þá voru flest- ir búnir að hirða túnin og sumir búnir að fá talsvert af engjum. En eftir það var varla hægt að segja að kæmi rigningarlaus dagur. Það var háttað frá húðarrigningu og vaknað til hennar aftur. Þá voru slæmir geðsmunir hjá sveitafólki. Utheyin velktust, gul og brún í engjun- um, þangað til útséð var að ekki væri hægt að þurrka þau nema að binda þau heim á tún eða einhverja bletti, sem ekki gátu blotnað. Eins og vanalega mundi enginn annað eins sumar. Það var þó eitt gott við óþurrkana, hugsaði Ásdís. Hún hafði betri tíma til að hugsa um innanbæjarverk- in, sem aðallega voru þvottar og þjónustubrögð á Krist- jáni og henni sjálfri. Það var heldur styttri vinnutím- inn, því dagarnir styttust enn meir þegar regnskýin byrgðu sólina. Hún hafði aldrei verið eins þreytt eins og þetta sumar. Framhald. 68 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.