Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 6
Úr Ölgerð Egils Skallagrímssonar h.f.:
Að ofan: Úr lagerlijallara ölgerðarinnar.
Að neðan: Úr ölsuðu.
tækisins, enda stendur það jafnfætis þeim beztu í sinni
grein og af sömu stærð, hvar í heimi sem er. Hann
kveðst líta svo á, að bezta leiðin til þess að vinna vör-
unni hylli sé að gæta þess, að hún standist samanburð
við það bezta, sem framleitt er, og fyrsta skyldan við
neytendurna sé sú,‘að vandvirkni og hreinlætis sé gætt
í samræmi við ströngustu kröfur. Það hefur því reynzt
orð að sönnu, sem Gísli heitinn gerlafræðingur sagði í
fyrrnefndu afmælisriti um ölgerðina, að „vel má heim-
færa upp á Tómas það sem sagt var um Jacobsen
bruggara, en það var, að hann væri svo slyngur að
stjórna ölgerð, eins vandasamt verk og það er, eitt af
erfiðustu hlutverkum, sem forstjóra eru fengin, að ekki
mundi völ á slíkum manni nema einu sinni á öld
hverri“.
Þótt Tómas Tómasson hafi ekki farið varhluta af
ýmsu mótlæti í lífinu, telur hann sig hafa verið ham-
ingjusaman mann. Hann er ánægður með það lífsstarf,
sem hann valdi sér, og honum hefur aldrei brugðizt
sú trú á handleiðslu æðri forsjónar, sem honum var inn-
rætt í bernsku, enda kveðst hann fyrr og síðar hafa
orðið hennar var. Þá telur hann það og hafa verið eitt
mesta lán í iífi sínu, að hann kynntist Gísla Guðmunds-
syni, sem reyndist honum hollráður og góður vinur til
hinztu stundar, enda var hann óvenjulega framsýnn
gáfumaður og miklum mannkostum búinn.
Ekki telur Tómas að ölgerð geti orðið hér stór at-
vinnugrein meðan ekki er leyft að brugga sterkt öl til
neyzlu innanlands. Hann vill þó engan dóm á það
leggja, hvort slíkt leyfi skuh veitt eða ekki. En hins
má geta, að á stríðsárunum framleiddi Ölgerðin Egill
Skallagrímsson sterkt öl fyrir herinn, sem þótti mjög
gott, og nú framleiðir hún sams konar öl fyrir varnar-
liðið og útlend sendiráð. Veika ölið þykir líka mjög
bragðgott og margir útlendingar hæla því mikið.