Heima er bezt - 01.10.1961, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.10.1961, Blaðsíða 23
liggja ofanjarðar á uppblásnu landi. Eru til margar þjóðsögur og munnmæli um slíkt. Nú hefur bærinn á Skeljastöðum verið grafinn upp og kirkjan og kirkjugarðurinn líka. Kom þá í ljós, að enn lágu óhreyfðar í sandinum um 60 beinagrindur hinna fornu íbúa Þjórsárdals. Voru öll þessi bein í burtu flutt, og nú sjá ferðamenn engin skinin bein á víð og dreif um vikursandinn. Ekki var fýsilegt að dvelja lengi á Skeljastöðum, þótt bærinn hafi fyrr á öldum verið höfðingjasetur. Útsýn hefur verið fögur frá Skeljastöðum, ekki síður en frá Stöng, á meðan Þjórsárdalur var fjölbyggður og í full- um skrúða, — með grösugar engjar, skrúðgræn tún og skógiklæddar fjallshlíðar. Hvergi var stingandi strá á sandauðninni á Skelja- stöðum. Við Páll urðum því að binda hestana á með- an við stönzuðum. Reiðskjótinn minn var enginn gæð- ingur, en föngulegur hestur, 6 vetra gamall, 54 tomm- ur á herðakamb. Hann bar sig hátt, var stórgengur, en ekki óþýður. Hann óð yfir sandauðnina á grófgerðu hátölti og valhoppi og sótti sig með fjörið, eftir því sem á daginn leið. Nú héldum við Páll á leið heim, en ætluðum þó að koma við hjá Hjálparfossi. Fossinn er fallegur, þótt hann sé hvorki ýkja hár né vatnsmikill. Klettaey eða drangur klýfur fossinn í tvennt. Hægt er að ríða yfir ána í lygnu, rétt undir fossinum. Frá Hjálparfossi er fljótfarið að Ásólfsstöðum, eink- um þegar hestar eru traustir og heimfúsir. Þegar heim er komið að Ásólfsstöðum, er Þjórsárdalur enn þá um- talsefnið. Á einum degi höfum við Páll farið um heila sveit, sem einu sinni var fjölbyggð, en er nú í auðn. Hve langt er nú síðan þessi byggð eyddist? Þetta er eðlileg spurning, en henni verður enn ekki svarað með óyggjandi rökum. Eitt er þó víst. Dalurinn hefur eyðzt vegna eldgosa, eða vegna vikur-falls í sambandi við eldgos. í þjóðsögum er sagt að Þjórsárdalur hafi eyðzt fyr- ir eldgos í Rauðukömbum, sem eru vestan megin dals- ins, en Rauðukambar hafa aldrei gosið. Fullvíst er talið, að ösku- eða vikurregnið hafi stafað af gosi í Heldu, sem er þarna allskammt frá, en ekki er fullsannað á hvaða öld þetta hafi gerzt. Ekki er heldur alveg víst að dal- urinn hafi allur eyðzt á sama áratug eða aldarhelmingi. Áður var almennt álitið að dalurinn hefði eyðzt um 1300, en eftir að bærinn í Stöng var grafinn upp og öskulögin hafa verið athuguð betur, er talið að bærinn í Stöng hafi lagzt í auðn um 1100 eða jafnvel á miðri elleftu öld. En af rannsóknum á jarðlögum í Þjórsár- dal má sjá það, að oft hefur gífurlegt öskufall dunið yfir dalinn. í þessari eyðibyggð, sem nefnd er Þjórsárdalur, er þó einn gróðurlundur í auðninni. Það er Gjáin, sem svo er nefnd. Um Gjána rennur lítil á, sem heitir Rauðá og rennur svo, eins og fyrr segir, út á sandana milli bæjanna Stangar og Steinastaða. í þessari gjá er grózkumikill gróður, hávaxin tré og blómabrekkur. Ekki veit ég hvernig þessi gjá er mynduð, en helzt er Hjdlparfoss. svo að sjá, að þarna hafi einhvern tíma verið farvegur stórfljóts. Þessi gróður í Gjánni er sýnishorn af því hve gróð- ursælt hefur verið í Þjórsárdal að fornu. í Kristnisögu er líka sagt að Hjalti Skeggjason hafi látið byggja haffært skip uppi í Þjórsárdal og flutt það niður Rangá til hafs, og farið á því utan. Fkki þykir þessi saga sennileg og ekki er heldur berum orð- um sagt að skipið hafi verið gert að öllu úr íslenzkum viði. í Landnámu er sú saga að Ávangur, írskur maður að kyni, hafi byggt hafskip úr íslenzkum viði í Botns- dal í Hvalfirði og hlaðið það til utanfarar hjá Hlað- hamri. Þessi saga þykir líka ósennileg, en báðar sög- urnar sýna það þó, að bæði í Botnsdal í Hvalfjarðar- botni og í Þjorsárdal hafa verið svo miklir skógar í fornöld, að folk hefur trúað þessum sögum. Það er erfitt að spá um framtíð lands og þjóðar þanmg, að þeirri spá sé gaumur gefinn, en í sambandi við Þjórsárdal og sandauðnirnar þar vil ég benda á þetta: Sandgræðsla er nú hafin í stórum stíl á íslandi og hefur árangur víða orðið frábær. Nægir þessu til sönn- unar að nefna ræktunina á Skógasandi undir Eyjafjöll- um, sandgræðsluna í Gunnarsholti á Rangárvöllum og hjá félaginu Rangársandur h.f., ræktunina á Stjórnar- sandi við Kirkjubæjarklaustur, sandgræðsluna á Hóls- sandi upp af Axarfirði og dreifingu áburðar um beiti- lönd og heiðar. Þessar framkvæmdir benda til þess, að nýtt landnám hefjist á íslandi á komandi áratugum og öldum á uppblásnu landi. Og þá kemur sú tíð „að sárin Framhald á bls. 361. Heima er bezt 351

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.