Heima er bezt - 01.10.1961, Blaðsíða 7
Þótt Tómas Tómasson hafi fyrst og fremst helgað
ölgerðinni starfskrafta sína, hefur hann gefið sér tíma
til að starfa að ýmsum öðrum framkvæmdum og félags-
málum, og verða þau störf hans ekki öll talin hér. Þó
skal þess getið, að hann var á tímabili varaformaður
Iðnaðarmannafélagsins, í fyrstu stjóm Iðnrekendafé-
lagsins og um 20 ár í stjórn Félags ísl. stórkaupmanna.
Hann var einn af stofnendum togarafélagsins Njáls og
stofnaði einnig ásamt nokkrum öðrum hlutafélag um
línuveiðarann Sigríði; en ekki segist hann hafa hagnazt
á útgerð, fremur hið gagnstæða.
Tómas var um langt skeið ræðismaður Eistlands, eða
þar til það var innlimað í Sovétríkin, eftir síðustu
heimsstyrjöld. Hann er riddari hinnar íslenzku fálka-
orðu.
Tómas Tómasson er tvíkvæntur. Fyrri kona hans
var Ingibjörg Hjartardóttir, ættuð úr Reykjavík. Eign-
uðust þau fjögur böm, sem öll eru látin. Síðari kona
hans er Agnes Jónsdóttir Bryndal, frá ísafirði, og eiga
þau tvo sonu: Tómas Agnar, sem starfar við fyrirtæki
föður síns, og Jóhannes Heimi, sem er við nám í verzl-
unarskóla.
Úr Ölgerð Egils Skallagrímssonar h.f.: Að ofan: Hluti áfyll-
ingarsalar gosdrykkjaverksmiðjunnar. Að neðan: Úr gerkjall-
ara ölgerðarinnar.