Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 9

Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 9
urstað. Hann brá vel og göfugmannlega við og bauð mér fylgd sína norður að Eyhildarholti. Tók Jón síð- an aktygin af Litla-Rauð og lagði á hann hnakk sinn. Svo riðum við af stað í húmlýsu næturinnar við glatt hófaspil á brakandi ísum. Skjótt hófust viðræður með okkur Jóni, og kom þá skáldið fljótt upp í honum. Hann sagði mér frá því, að þá ekki fyrir löngu, þegar ljóðaflokkurinn „Heim- leiðis“ eftir Stephan G. Stephansson hefði borizt um byggðir lands, hefði hann sjálfur og fleiri Skagfirðing- ar, sem unnu vísnagerð, gert sér dátt við bragarhátt- inn á „Vegtamskviðu" og hafið tilraunir við að stæla hann. (En hátturinn nefnist margsamhent skamm- henda.) Hann taldi Jón Pétursson í Eyhildarholti að líkindum hafa byrjað. En sjálfur kvaðst hann hafa gamnað sér við háttinn á umliðnum degi, á heimleið- inni frá Sauðárkróki, og er sá kveðskapur á þessa leið: Burðahnellinn brokkar Rauður bezt á svellunum. Svarar smellið hjarn og hauður hófaskellunum. Leikur í taumum, rennur reiðin, rétt sem straumarnir. Allt er glaumur, endar leiðin eins og draumarnir. Afram líður Litli-Rauður líkt og þýður blær. Sleðinn skríður hægt um hauður, heim um síðir nær. Ferðin að Eyhildarholti sóttist vel. Við komum þang- að laust fyrir háttatíma. Jón sneri heimleiðs eftir stutta dvöl. Ég kvaddi hann með hlýju og þakklæti fyrir glaðværa skemmtun og góða fylgd. — Ég var nú með Guðs og góðra manna fylgd kominn í óbrigðult vinar- skjól og leið vel. Næsta dag vorum við Jón Pétursson um stund að raka af hesti sunnanundir bænum. Bjart var yfir sveit- unr Skagafjarðar og sá vel fram til uppeldisstöðva okk- ar Jóns. Minn gamli æskuvinur, Mælifellshnjúkur, blasti nú við á sínum tignarstóli í hvítum feldi með gylltan hjálm á höfði. Þar í kring um fótstall hans á ég mörg spor frá fyrri árurn. Við Jón gerðum nú áætlun um ferð okkar á næst- unni fram í Lýtingsstaðahrepp, en við þá tilhugsun varð til þessi vísa hjá Jóni: Er við skellum skeiðið á, skulu ellimerkin dvína. Munu svellin silfurgljá senda fellum tóna sína. Talið barst að skammhendugerðinni, og kvaðst Jón hafa gert nokkrar vísur í tilefni af því, að hann hefði sent vini sínum Gísla Sigurðssyni, bónda á Víðivöllum, Jóhann Ii. Jónasson. kvæðaþulu eina, en skammhendurnar hefði hann látið fylgja í ofanálag til þess að bæta upp þuluna. Vísur þessar voru fjórar. Síðustu vísunni hef ég glatað, í henni var nafn og föðurnafn Jóns bundið á dálítið flók- inn og sérkennilegan hátt. En þrjár vísurnar, sem hér fara á eftir, eru á þessa leið: Finn ég dulinn dvínar kraftur dags með hulunni. Heiti að skuli enginn aftur aftra þulunni. Það er mitt að vilja verja verstu pyttina. Aftur jútt með hlífð að herja hart á tittina. Ég vil benda óðarkneri upp til strandanna, þó hann lendi á leyniskeri Ijóðagrandanna. Eftir þrjá daga í glaðværum vinafagnaði riðum við Jón af stað frarn í sveitina. Sólskin var og blíðviðri. Ferðin sóttist vel og riðum við því hóflega. Skaflarnir bruddu klakann, en losið lék sér og dansaði glaðværan hestavals allt í kring á sléttum ísnum. Ferðalag þetta var hið undursamlegasta. Blíðviðri dag hvern, með frostkælu um nætur. Framhald á bls. 353. Heima er bezt 337

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.