Heima er bezt - 01.10.1961, Qupperneq 14

Heima er bezt - 01.10.1961, Qupperneq 14
Frá Eyjum 1880. Húsið Boston, siðar nejnt Dalbcer. Rétt við mæn- inn sér á Prestshús, en til hcegri, við rætur Helga- jells, Stóra- Gerði. En þótt þessir valdamenn legðust gegn því, var samt enn sendur læknir til Eyjanna frá Kaupmannahöfn, Andreas S. I. Haalland að nafni. Hann var áhugamaður um starf sitt og mannkostamaður mikill. Honum tókst að fá stjórnina, til þess að leggja sér til ný lækninga- áhöld og 200 ríkisdala styrk. Eftir komu sína 1840 gerði hann brátt tillögur til stjórnarinnar um, að komið yrði hér upp fæðingarheimili. Hann sagði, að veikin væri nú minni en undanfarin ár og þakkaði það góðu lækniseftirliti. Hins vegar taldi hann, að veikinni yrði ekki útrýmt fyrr en barnshafandi konum yrði fyrir- skipað að leggjast á fæðingarheimili og fæða þar börn sín. Þar þyrftu þær að dvelja 3—4 vikur eftir bams- burðinn undir læknishendi og njóta leiðbeiningar um meðferð ungbarna. Einnig lagði dr. Haalland til, að ung stúlka yrði send utan, til að læra ljósmóðurstörf, og yrði hún síðan látin vinna við fæðingarstofnunina. Kom hann því til leiðar, að Sólveig Pálsdóttir var send utan til Ijósmóðurnáms. Dr. Haalland aðhylltist skoðanir Sveins Pálssonar um, að veikin kynni að stafa frá kúamjólk, sem börn- in fengju óblandaða strax eftir fæðnigu. Neyzluvatnið úr Vilpu sagði hann algerlega óhæft, og aðbúð alla í híbýlum manna mjög slæma í hvívetna. Þá komst dr. Haalland og að þeirri mikilvægu niður- stöðu, að börnum stafaði mjög mikil hætta af því, hversu illa væri gengið frá naflastreng þeirra við fæð- inguna, uppbinding á honum og annar frágangur væri með öllu ófullnægjandi, og stafaði þetta af vankunnáttu ljósmæðranna í meðferð ungbarna. Þarna var dr. Haalland að því kominn að leysa gát- una um ginklofann, þótt honum tækist ekki að finna fullkomna lausn hennar. Hann verður þó eigi ásakað- ur fyrir það, svo mjög sem hann barðist fyrir vörnum gegn veikinni, t. d. með stofnun fæðingarheimilis. En umbótatillögur hans fundu ekki náð fyrir augum stjórnarinnar, þótt vel væru rökstuddar. Þótti henni þær of kostnaðarsamar, og kom fyrir ekki, þótt Eyja- búar hétu að láta af mörkum allt að 1400 ríkisdölum upp í væntanlegan kostnað. Stjórninni þótti nóg að gert, svo sem komið var og fékkst ekki til að leggja út í það stórfyrirtæki að reisa fæðingarheimili í Eyjum. Dr. Haalland lét af störfum hér 1845 og fór til Kaup- mannahafnar. Eftir hann kom læknir að nafni Angust F. Schneider. Hann var hér aðeins 2 ár, og virðist hon- um ekki hafa orðið mikið ágengt gegn veikinni. Að minnsta kosti fara ekki sögur af því. Hins vegar hefur það efalaust verið mikill styrkur í heilbrigðismálum Eyjanna, að hafa hér búsettan lækni, sem unnið hefur að því að halda uppi hreinlætisaðgerðum við sjúklinga og sængurkonur. Þegar dr. Haalland kom til Kaupmannahafnar hélt hann áfram sókn' sinni á hendur stjómarinnar um úr- bætur í heilbrigðismálum Vestmannaeyja. Sótti hann málið svo fast, að hann fékk að lokum stjómina til að leita álits dr. Levys, prófessors, um ginklofann. Var það mikill sigur fyrir dr. Haalland. í álitsgerð sinni um málið segir Levy prófessor, að veiki þessi sé víðar til en í Vestmannaeyjum. Hún sé t. d. algeng í írlandi. Leggur hann eindregið til að komið sé upp fæðingarstofnun í Eyjum til útrýmingar veiltinni. Segir hann, að í Dubhn hafi slíkri stofnun verið komið á fót, og þá hafi bragðið svo við, að barnadauði af völdum veikinnar hafi minnkað á fyrsta 342 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.