Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 13

Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 13
En þetta ferðalag Steenstrups varð þess valdandi, að dvöl Jónasar í Sórey var lokið að fullu og öllu. Svo virðist þó, sem það hafi vakað fyrir honum að fara aftur til Sóreyjar, þegar Steenstrup hefði lokið ferða- lagi sínu, enda segir hann það berum orðum í áður- nefndu bréfi til Steenstrups og einnig í bréfi til Páls Melsteðs, dags. í Khöfn 5. júlí 1844. En af því áformi varð aldrei. Og einn sólfagran dag í byrjun maí 1844 tekur Jónas Hallgrímsson sér fari með dagvagninum og heldur aftur til Kaupmannahafnar til rnóts við þau örlög, sem honum voru þar fyrirbúin. Síðasti sólskins- bletturinn í lífi hans var að baki og orðinn minning- in ein. III. Enn er nýtt vor runnið við Eyrarsund, vorið 1845. A'eturinn hefur verið þjáðu og einmana íslenzku skáldi þyngri í skauti en nokkru sinni fyrr. Stórvirki Jónasar, Islandslýsingin, er enn ófullgert og allsendis óvíst, hvort hann hefur þrek né aðstæður til þess að ljúka því mikla verki nokkurn tíma. Það fellur honum þungt. Hann hefur gert sér það til afþreyingar stöku sinnum þennan vetur að yrkja nokkur ljóð á íslenzku, t. d. Stökur (Enginn grætur íslending), Á nýjársdag 184), Leiðarljóð tiljóns Sigurðssonar og fleiri, og svo hefur hann líka lokið við að fága Ferðalok, ljóðið yndislega um samfylgd hans og ungrar, íslenzkrar stúlku norður fjöll eitt unaðslegt, löngu liðið vor heima á íslandi. En nú er líka skammt til hans eigin ferðaloka, þótt hann viti það ekki sjálfur, eða grunar hann það máske? Til þess benda margar hendingar í síðustu ljóðum hans. En hann harmar það ekki, þótt hérvistardvöl hans kunni að vera senn á enda. Hann hefur gefið þjóð sinni það dýrmætasta, sem hann átti, og hann hefur sjálfur reynt, hvað hið sanna og raunverulega langlífi er og tjáð það með þessum einföldu, en ógleymanlegu ' orðum: Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóva, alefling andans og athöfn þörf; margoft tvítugur meir hefur lifað svefnugum segg, er sjötugur hjarði. Og hann hefur líka sagt að: Gott er að ganga geði kvíðlausu ófarið örstutt æviskeið. Það er kominn 21. apríl. Jónas hefur frétt, að skip sé í þann veginn að leggja af stað heim til íslands. Hann notar tækifærið og skrifar vini sínum, Þórði Jónassen, svohljóðandi bréf: Kaupmannahöfn, 21. apríl 1845. Elsku-vinur minn góður! xVIér er sagt, að skip sé að fara heim rétt í þessu, og flýti ég mér því að þakka þér fyrir tvö ástsamleg bréf, en ég skal þakka þér bæði betur seinna. Ég er, sem stendur, staddur hér á skrifstofu fulltrúa vors, og hef — eins og þú getur nærri — æðinauman tímann. Mér líður nú loksins, guði sé lof, sæmilega vel til heilsunn- ar; mér er batnað allra meina minna, nema einhverrar agnar af Hvpokondri — bringsmalaskottu — eða hvað það heitir, draugurinn, sem ásækir svo margan íslend- ing. Ég er sæmilega feitur og þokkaleg skepna, en ntið- ur klæddur og óburgeislegri, en ég ætti skilið að vera. Eg hef skilað kveðju þinni til Steenstrups; honum hður vel, nema hvað blóðið sækir stundum á höfuðið. Danir eru nú að slokkna, — svo sem eins og ljós, sem fuðrar upp af því vinnukona hefur gleymt að taka af því skarið. Þú haðst um fleiri kvæði; það situr á ykkur, sem lastið allt, sent ég geri, þegar nafnið mitt stendur ekki undir því! Ég hef nú samt enn þetta árið gert það löndum mínum til léttis og þóknunar og skilningsauka málanna, að setja merki undir þau kvæði mín, sem koma í Fjölni; þau eru hvorki mörg né mikilvæg. Lægi alltént vel á mér, gæti ég sjálfsagt ort betur. „Kong Renés Datter“ eftir Hertz verð ég að senda þér með einhverju móti, undir eins og það kver kem- ur úr prentun; þessi leikur (romantisk Drama i 1 Akt) er það yndislegasta, sem ég veit til hafi oltið upp úr Dönum. Heilsaðu, vinur minn! þeim, sem þú heldur taka vilji kveðju minni. Ég skrifa betur með seinni skipunum. Þinn J. Hallgrímsson. En Jónas Hallgrímsson skrifaði ekki fleiri bréf heim til Islands. Fyrír því sá hinn slyngi sláttumaður, sem svo óvænt og skyndilega vitjaði hans á Friðriksspítala árla morguns hinn 26. maí 1845, tók hann sér við hönd og leiddi hann að „þeim dimmu dyrum“. Hvort munu góðir blómálfar ekki hafa grátið þá í lautu, eigi siður en við Galtará forðum? En Jónas varð ekki grátinn úr Helju fremur en Baldur, hinn góði ás. Hann hafði lokið því ætlunarverki og ævistarfi, sem guðirnir höfðu fyrirbúið honum að inna af höndum hér á jörð. Og þótt fleiri bréf hans ættu ekki eftir að berast heim yfir hafið, hafði hann þá þegar kvatt ísland og íslenzku þjóðina ógleymanlega hinztu kveðju. Það hafði hann gert einn fagran vordag í Sórey árið áður með svo- felldum orðum: Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. Á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fósturjarðar rninnar strönd og hlíðum. Heima er bezt 157

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.