Heima er bezt - 01.05.1962, Qupperneq 16

Heima er bezt - 01.05.1962, Qupperneq 16
yfir eldi var tekið til þess ráðs að hleypa það með sýr- urn, og síðan var það fergt í plötur og þynnur. En þótt framleiðslan ykist sífellt jókst notkunin ekki síð- ur, og margir óttuðust að reka mundi að því, að ekki yrði unnt að fullnægja þörfinni með ræktuðu gúmi einu saman. Einkum varð þetta ljóst í og eftir heims- styrjöldina fyrri. A styrjaldarárunum jókst gúmnotkun svo stórkostlega, að til nýrra ráða varð að grípa, til að fvlla hina óseðjandi hít. Einnig var ljóst, að það gæti orðið örlög-þrungið í hernaði, á hversu þröngu svæði gúmræktunin fór fram, eins og síðar kom betur í ljós. Tekið var nú til óspilltra málanna að leita eftir því, hvort ekki væri unnt að framleiða gerviefni, sem kæmi í stað trjágúmsins. Og eftir margvíslegar tilraunir heppnaðist það. Alunu Þjóðverjar hafa orðið einna fyrstir til að leysa vandann, en síðar komu Rússar til sögunnar, einkum eftir síðari heimsstyrjöld. En mest hefur þó framleiðsla gervigúms orðið í Bandaríkjun- um, enda nálgast engin þjóð Bandaríkjamenn í gúm- notkun. A styrjaldarárunum 1939—1945 lamaðist gúmræktin stórkostlega, sakir hernaðaraðgerða í Asíulöndum, auk þess sem samgiingutruflanir tálmuðu flutningi gúnisins til Vesturlanda. Ekkert ýtti jafnmikið og þetta undir framleiðslu gervigúms. En svo fór á stríðsárunum, að framleiðsla þess varð næstum jafnmikil og ekrugúms- ins eða um ein milljón smálesta á ári. A þessum árum urðu einkum tvö vörumerki gervigúms kunn, „Buna“ frá Þýzkalandi og GRS frá Bandaríkjunum. Þegar styrjöldinni létti jókst gúmræktin á ný, en framleiðslu gervigúms hnignaði í bili, því að enn skorti nokkuð á, að það væri jafnoki trjágúms, enda þótt það gæti keppt við það á sumum sviðum. Tók nú trjá- gúmið aftur forystuna. Samt varð það brátt Ijóst, að gúmræktun gæti ekki með nokkru móti aukizt svo sem þyrfti, til þess að fullnægja þörfinni. Var því ótrauð- lega haldið áfram fyrri tilraunum um gervigúmið og endurbætur á því, svo að það gæti staðið trjágúminu jafnfætis um hvaða notkun sem væri. Árið 1960 stóðu málin þannig, að heimsframleiðslan af gúmi var um 4.5 milljónir smálesta, og af því var um 47% trjágúm. En þá fyrir skemmstu hafði loks heppnazt að framleiða efni, sem að samsetningu og eig- inleikum virtist algerlega samsvara trjágúmi. í raun réttri er hér um tvenns konar efni að ræða. Annað þeirra, sem kallast polyisopren, virðist vera al- gerlega sama efnasamband og trjágúmið. Frumeindir og sameindir efnisins þær sömu, enda getur það kom- ið í stað þess á hvaða sviði sem er. Hitt efnið, polybuta- dien, er ekki nákvæmlega eins að innri gerð og trjá- gúmið, en það líkist því svo mjög, að það kemur að sama gagni á flestum sviðum, og sjaldnast verður gerð- ur greinarmunur á því og náttúrulegu gúmi. Fram- leiðsla þessara efna er eitt dæmi af mörgum um það, hversu mönnum hefur tekizt í efnasmiðjum að byggja þau efnasambönd, sem náttúran sjálf annars skapar. Fyrst í stað var gervigúm unnið úr steinkolatjöru. 160 Heima er bezl En síðan heimsstyrjöldinni síðari lauk, hefir meira og meira verið horfið frá kolum sem hráefni, en steinolía komið í stað þeirra. Einkum nota menn þar ýmsar gastegundip, sem fram koma við hreinsun olíunnar, eða jafnvel jarðgasið sem víða streymir úr jörðu, við olíu- lindirnar. Það er því ekki að undra, þótt hin miklu olíu- félög séu í fararbroddi um framleiðslu gervigúms. Má þar t. d. nefna Shell-félagið, og þá ekki síður amerísku olíufélögin. Svo mjög eykst nú og léttist framleiðsla gervigúms, að allar líkur benda til, að ekki verði þess langt að bíða að gúm lækki verulega í verði, og mun slíkt vissu- lega fagnaðarefni, því að fáir eru þeir nú í menningar- löndum, sem ekki eiga eitthvað undir verðlagi á þessu fjölnýta efni. Eftirfarandi tafla sýnir hvaða lönd og ríki framleiða mest gúm. Töflurnar eru frá árinu 1960 og eru þús- undir smálesta. T rjágúm Gervigúm Malayjalönd 710.5 Indonesia 639.8 Thailand 167.2 Afríka 140.5 Bandaríki N.-Am. 1436.4 Ríkin austan járntjalds 650.0 Canada 156.7 H einrsf ramleiðslan 2002.5 2550.0 Bréfaskipti Arnþrúður Halldórsdóttir, Hallgilsstöðum, Þórshöfn, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Mynd fylgi. lidra Sigfúsdóttir, Hvammi, Þórshöfn, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Mynd fylgi. Bergþóra Björnsdóttir, Eyri, Þórshöfn, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Mynd fylgi. Kristin Kristjánsdóttir, Syðri-Brekkum, Þórshöfn, óskar eft- ir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Mynd fylgi. Sigurður Vilhelmsson, Sævarlandi, Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 30—40 ára. Mynd fylgi.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.