Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 19

Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 19
Sœnskir hermenn við henefingar á sléttum Lapplands á striðsárunum (1939—45). við hnéð. Stúlkurnar voru í kjólum og blússum úr líku efni, en öll voru föt þessara barna skreytt með hárauðum og gulum leggingum, sérstaldega um arma, brjóst og herðar. Sum voru með einkennilegar húfur og voru þær líka skreyttar með gulum og rauðum leggingum. Seinna sá ég hóp af Lappabörnum á skemmtiferð í Stokkhólmi og voru þau öll í litskreyttum fötum og stór fylking barna elti þau um göturnar, hvar sem þau fóru. Börnin litu upp úr bókum sínum, þegar við komum og hættu að lesa, en störðu undrandi á okkur, einkum þegar þeim var sagt að ég væri frá íslandi. Þau höfðu einmitt nýlega lesið um Island og þótti nú bera vel í veiði, að fá að sjá íslending. Við spjölluðum við bömin uin stund og tókum af þeim myndlr. Þessi börn voru fremur lágvaxin eftir aldri. Flest voru þau með dökkt eða brúnleitt hár. Öll voru þau brosandi og góðleg en mörg þeirra voru dálítið ófríð. Þau voru yfirleitt breiðleit og kinnbeinahá og sumar stúlkurnar digrar og stirðlega vaxnar og nokkur börn- in voru beinlínis ellileg í andliti, einkum sumar stúlk- urnar. Örfá voru ljóshærð og bláeyg og laglegri en hin. Annars voru augu flestra barnanna dökk eða brún- leit og yfirleitt greindarleg. Við kvöddum svo barnahópinn og héldum heim að skólanum. Þetta var stórt skólaheimili. Börnin voru 75 alls — 7—13 ára. Þau voru, eins og ég sagði áðan, börn Lappa, sem reikuðu um með hjarðir sínar og hafa í raun og veru enga fasta bústaði. Kennarinn sagði mér þó, að sá krakkinn, sem lengst ætti heim að vetrardvalarstað foreldra sinna, ætti 160 km leið fyrir höndum ef hann skryppi heim að vetrarlagi. Ég skoðaði skólann og heimavistarhúsið. Þetta voru ágætar byggingar, enda nýlega byggt. Stærstu drengirnir höfðu verið í handavinnu. Ég skoðaði smíðisgripina þeirra. Þeir höfðu smíðað ýmsa muni úr birki og hreindýrabeinum. Meðal annars höfðu þeir smíðað ausur, smá sleifar, litlar hagldir eða sylgj- ur, álíka stórar og notaðar voru í klyfberagjarðir o. fl. Ég keypti af strákunum eina sleif úr birki, ágætlega smíðaða, og eina litla högld eða sylgju úr beini. Ég spurði til hvers þeir notuðu þessar litlu hagldir. Þeir sögðust nota þær á eins konar snörur, sem þeir snara hreindýrin með. Ef þeir þurfa að handsama hreindýr þá reka þeir þau ekki í rétt eins og hér er gert með kindur, heldur læðast þeir að þeim og kasta yfir þau eins konar snöru, sem er ekki ólík því sem Indíánar og kúrekar í Ameríku nota við dýraveiðar. Allir drengir í Lapplandi þaulæfa þetta og fullorðnir menn eru svo flinkir við að fleygja snörunni, að þeim bregzt næst- um aldrei kastið. Eftir nokkra stund voru börnin kölluð saman til að fá sér miðdegishressingu, sem var mjólk og brauð, og gat ég þá séð allan hópinn í einu. Ég tók í höndina á þeim flestum og spjallaði eitthvað við þau á sænsku, og þau svöruðu á sama máli, en um leið og þau komu út á leikvöllinn, þá töluðu þau lappnesku, og þá skildi ég nú ekki mikið hvað þau sögðu. Flest börn í þessum nyrztu héruðum tala tvö til þrjú tungumál. Lappnesku börnin tala lappnesku, sænsku og mörg finnsku líka, en öll börn af finnskum ætturn tala finnsku og sænsku. Enginn veit fyrir víst um uppruna þessa einkenni- lega þjóðarbrots. Það sést þó af ýmsum fornleifum að Heima er bezt 163

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.