Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 23

Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 23
sishta hafði konungurinn engan frið fundið á hástóli sínum. Spádómur einsetumannsins hafði rætzt: Sonur Devakí var lif- andi! Konungurinn hafði séð hann, og fundið styrk sinn og konungstign dvína andspænis augnaráði hans. Hann titraði af ótta um líf sitt eins og visið laufblað, og þrátt fyrir verði sína sneri hann sér oft skyndilega við, eins og hann byggist við því að hinn ungi kappi stæði ljómandi og ógurlegur í hliðum hallar sinnar. — Nýsúmba lá fyrir sitt leyti í hnipri á beði sínum, innst inni í dyngju sinni, og hugsaði um þann kraft, sem hún hefði misst. Þegar hún frétti, að Krishna væri orðinn spámaður og prédikaði á bökkum Gangesar, fékk hún konunginn til þess að senda sveitir hermanna gegn honum og færa hann til sín í fjötr- um. Þegar Krishna sá þá, brosti hann og sagði: „Ég veit, hverjir þér eruð og til hvers þér komið. Ég er reiðu- búinn að fylgja yður til konungs yðar; en látið mig fyrst tala til yðar um konung himinsins, sem er minn konungur." Og hann tók að tala um Mahadeva, um dýrð hans og um opin- beranir hans. Þegar Krishna hafði lokið máli sínu, afhentu her- mennirnir honum vopn sín og mæltu: „Vér munum ekki flytja þig fanginn til konungs vors, heldur viljum vér fylgja þér til þíns konungs." Og þeir voru kyrrir hjá honum. Þegar Kansa hafði frétt þetta, skelfdist hann harla mjög. Nýsúmba sagði við hann: „Send æðstu menn ríkisins." Það var gert. Þeir gengu inn í borgina, þar sem Krishna var að kenna. Þeir höfðu heitið því, að hlusta ekki á hann. En þegar þeir sáu ljóma augna hans, hversu framkoma hans var hátignar- leg og hvílíka lotningu mannfjöldinn sýndi honum, gátu þeir ekki á sér setið að hlusta á hann. Krishna talaði við þá um innri þrældóm þeirra, er fremja hið illa, og um hið himneska frelsi þeirra, er iðka hið góða. Kschatryarnir urðu fullir gleði og undr- unar, því að þeim fannst þeir vera leystir undan ógurlegri byrði. „Þú ert vissulega mikill töframaður,“ sögðu þeir. „Því að vér höfðum svarið konungi að leggja þig í járnfjötra og færa honum; en oss er ókleift að gera þetta, þar sem þú hefur frelsað oss úr vorum fjötrum." Þeir sneru aftur til Kansa og sögðu honum: „Vér getum ekki fært þér þennan mann. Hann er mjög mikill spámaður og þú þarft ekkert að óttast af hans hendi.“ Þegar konungurinn sá, að allt var árangurslaust, lét hann þre- falda alla verði og leggja járnfestar um öll hlið hallar sinnar. En dag nokkurn heyrði hann mikinn hávaða í bænum, gleðióp og sigurhróp. Verðirnir komu og sögðu honum: „Það er Krishna, sem kemur til Madúru. Fólkið brýtur inn hurðirnar, mölvar jámfestarnar." Kansa vildi flýja. Sjálfir verðirnir neyddu hann til að vera kyrran á hástóli sínum. Reyndar kom Krishna í fylgd með lærisveinum sínum og fjölda einsetumanna inn í fánaprýdda Madúruborg, umkringd- ur þéttum fólksgrúa, er bylgjaðist eins og stormvakinn sær. Er hann hélt inn í borgina, rigndi yfir hann blómafléttum og krönsum. Allir heilsuðu honum með fagnaðarlátum. Brahmanarnir stóðu í hvirfingum undir helgum bananatrjám fyrir dyrurn muster- anna, til að heilsa syni Devakí, sigrara drekans, kappanum frá Merúfjalli, en fyrst og fremst spámanni Vishnú. Glæsilegt fylgd- arlið umkringdi Krishna, og lýðurinn og Kschatryarnir heilsuðu lionunt sem lausnara sínum, en hann hélt áfram allt til konungs og drottningar. „Illi töframaður,“ mælti Kansa, „þú hefur stolið kórónu minni og ríki. Bind enda á allt.“ „Þú mælir eins og vitfirringur,“ sagði Krishna. „Því að ef þú dæir í þessu ástandi óskynsemi, forherðingar og glæpa, mundir þú vera gjörsamlega glataður í öðru lífi. En ef þú tekur að skilja heimsku þína þegar í þessu lífi og iðrast hennar, verður vægari hegning þín í öðru lífi, og Mahadeva mun einhvern tíma fresla þig fyrir meðalgöngu hreinna anda.“ Nýsúmba laut að eyra konungs og hvíslaði lágt: „Heimskingi, notaðu þér, hve hann er fávís í hroka sínum. Meðan maður er lífs, er enn von um hefnd.“ Krishna skildi, hvað hún hafði sagt, þótt hann heyrði það eigi. Hann leit fast á hana, fullur gagntakandi meðaumkunar, og mælti: „Ohamingjusama kona! Enn spýr þú eitri. Svarta töfranorn, þú sem öllu spillir, enn hefur þú aðeins eitur drekans í hjarta þér. Uppræt það, annars verð ég einhvem tíma neyddur til að merja höfuð þitt. Og nú munt þú fara með konunginum til yfirbótarstaðar, til þess að iðrast synda þinna undir eftirliti Brahmananna.“ Eftir þessa atburði vígði Krishna með samþykki höfðingja ríkisins og alls lýðsins Ardjúna, lærisvein sinn, hinn frægðar- ríka afkomanda sólarkynþáttarins, til konungs í Madúru. Hann fékk Brahmönunum æðstu völd í hendur, og urðu þeir uppal- endur konunganna. Sjálfur var hann áfram foringi einsetu- mannanna, er skipuðu hið háa ráð Brahmananna. Til þess að losa meðlimi þessa ráðs við ofsóknir, lét hann reisa handa þeim víggirta borg inni á milli fjallanna, með háum veggjum og úr- valsliði til varnar. Hana nefndi hann Dwarka. I miðri borginni var musteri hinna innvígðu, og var mikilvægasti hluti þess fal- inn neðanjarðar. En þegar konungamir meðal tungldýrkenda fréttu, að kon- ungur af sóldýrköndum hefði aftur setzt í hásæti Madúra, og að fyrir hans tilstilli mundu Brahmanamir verða höfðingjar Indlands, sórust þeir í voldugt bandalag til að fella hann. En Ardjúna safnaði aftur á móti að sér öllum konungum meðal sóldýrkanda, er fylgdu arfsögn hvítra aría í Vedabókunum. Ur leynum Dwarkamusterisins fylgdist Krishna með þeim og leiddi þá. , Báðir herirnir voru búnir til orrustu og úrslitabardaginn var fyrir höndum. Fyllið út pöntunarseðilinn og sendið hann til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. Pantanir verða afgreiddar um hæl í þeirri röð sem þær ber- ast á meðan upplag endist. GILDIR AÐEINS FYRIR ASKRIFENDUR „HEIMA ER BEZT“ Eg undirrit.......sem er áskrifandi að tímaritinu „Heima er bezt“, óska hér með eftir að mér verði send bókin VÍGÐIR MEISTARAR eftir Edouard Schuré með 58 króna afslætti frá útsöluverði. □ Hjálagt sendi ég Heima er bczt andvirði bókarinnar, kr. 140.00, og fæ þá bókina senda burðargjaldsfrítt. □ Sendið mér bókina í póstkröfu, og nnin ég greiða andvirðið við móttöku póstkröfugjalds. Nafn Heimili □ Merkið við þann reit, sem við á. Skrifið greinilega.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.