Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 42
Ný glæsileg bamagetraun!
1. veríMaiin: Stórkostlegt BAUER
reiAlijól fyrir stúlku eáa pilt
ao verámæti um fer. 5.100,00
Já, kæru börn, ná fáið þið að spreyta ykkur á nýrri
og spennandi getraun, og verðlaunin eru hvorki meira
né minna en bezta tegund af reiðhjóli, og að sjálfsögðu
getur það orðið hvort sem heldur er reiðhjól fyrir
stúlku eða pilt, eftir því hver verður svo heppinn að
hljóta verðlaunin. Reiðhjólið verður af hinni eftirsóttu
RAUER-tegund, „módel 26“, reiðhjól, sem hægt er að
reiða sig á, því það er sterkt, létt í stigi og uppfyllir
á allan hátt þær kröfur, sem gerðar eru til nýtízku reið-
hjóla.
Þrautin er að þessu sinni í því fólgin að þekkja einkenn-
isstafi á bifreiðum hérlendis. Hér neðst á síðunni sjáið
þið þrjár ljósmyndir af skrásetningarnúmerum á bifreið-
um, og nú eigið þið að segja til um, hvaðan þessar bif-
reiðir eru.
Getraunin verður í þremur tölublöðum, og munum
við birta myndir af þremur bifreiðaeinkennisstöfum í
hverju tölublaði.
Ráðningarnar á ekki að senda til blaðsins fyrr en get-
rauninni lýkur, það er að segja einhvern tíma í júlí.
NR. 1 NR. 2 NR. 3
182 Heima er bezt