Heima er bezt - 01.02.1963, Page 4

Heima er bezt - 01.02.1963, Page 4
HALLDÓR ÁRMANNSSON, SNOTRUNESI: ann Hel gason, Ósi, Borgarfiréi eystra u „Táp og fjör og frískir menn finnast hér á landi enn. Þéttir á velli og þéttir t lund þrautgóöir á raunastund.íl óhann Helgason er fæddur í Njarðvík við Borg- arfjörð eystra 30. desember 1891. Foreldrar hans voru hjónin Helgi Jónsson Sigurðssonar fræði- manns í Njarðvík og Sesselja Sigurðardóttir frá Heyskálum, er þar bjuggu mestalla sína búskapartíð. Jóhann var snemma efnilegur, hraustur og dugmikill, eins og systkin hans fleiri, en þau voru sex, sem upp komust. Líklegt má telja, að Jóhann hafi sótt til föður síns og föðurbræðra, sem allir voru miklir burðamenn, sumir svo af bar, bæði þrek og karlmennsku. Þó má vel vera að fleira komi til. í þann tíð þegar Jóhann var að alast upp var siður að láta börn, einkum þó drengi, læra snemma að gjöra eitthvað til gagns og ekki var Jóhann nema á áttunda árinu, þegar fyrst var farið að nota hann fyrir smala — gæta ásauða svo lengi, sem þær voru nytkaðar, sem oft- ast var frá því um ellefu vikur voru af sumri og fram um réttir. í Njarðvík er landrými mikið, og mun allmikið hafa þurft að hafa fyrir ánum, að halda þeim saman svo þær týndust ekki. Skal ég til gamans nefna helztu hnúk- ana, sem umlykja Njarðvikina. Það eru: Skriðufjall, Hádegisfjall, Þúfan, Múli, hluti af Dyrfjöllunum, Súl- ur, Geldingafjall, Sönghofsfjall, Grjótfjall, Kerlingar- fjall, Tóarfjall og Skjaldarfjall. Öll eru þessi fjöll brött, rismikil og tignarleg, haldast í hendur og raða sér eins og traustir verðir í kringum þennan forna sögustað, Njarðvíkina, sem á Þorragarðinn, Þiðrandaþúfuna, Gunnarshjalla og Gunnarssker á miðri víkinni. Kögrið, þar sem ófreskjan Kögurgrímur þurfti ekki nema að rétta krumluna út úr berginu til að hremma fiskibát- ana, sem voru þar með landinu með mönnum og öllu saman, og síðast en ekki sízt Njarðvíkurskriður, þar sem óvætturin Naddi hafðist við í Naddahelli ferða- mönnum hættulegur, en bóndinn á Snotrunesi gat þó yfirunnið. En krossinn, sem reistur var í skriðunum 1306 og enn stendur, Naddakross, hefur nú hátt á sjö- undu öld verið lífvörður og verndari allra þeirra mörgu, sem farið hafa um skriðurnar síðan. Fjöllin öll, þau sem að framan eru nefnd, eru æsku- vinir Jóhanns. Þau buðu honum svo oft upp í fang sitt, þar átti hann unaðsstundir margar í blómskrýddum ang- andi brekkum og berjalautunum, klifur í klettum, þar sem ef til vill bláklædd huldukona, vinkona heimilisins, hefur haft auga með honum og útsýni til allra átta var bezt þegar hann var kominn upp á hæsta tindinn, til þess að sjá hvað væri hinumegin. En fjallgöngumar allar, hlaupin og sprettirnir, sem Jóhann átti svo oft í um þessa fornkunningja sína í Njarðvík, juku honum áræði, stæltu vöðvana, brýndu geðið, vöndu hann við að treysta sjálfum sér og gáfu honum trúna á mátt sinn og megin. Heilnæmt hressandi fjallaloftið fyllti lungun og þandi út brjóstið, en þýður mjúkur háfjallablærinn strauk honum létt um vangann, styrkti hann í djörfum áformum, honum óx drjúgt þróttur og lífsfjörið sprikl- aði í hverri taug. Það sem hér að ofan er nefnt, ásamt hollum áhrifum frá foreldrum og æskuheimili, mættu því vel vera þær stoðir, sem Jóhann hefur haft nokkurn stuðning af á langri ævi í baráttu við erfið lífskjör, hættur og mann- raunir. Rúmlega 13 ára að aldri flutti Jóhann fyrst úr for- eldrahúsum, að Sandbrekku í Utmannasveit til Sigfús- ar Halldórssonar. Vandist hann þar allri algengri sveita- vinnu og varð snemma vel liðtækur til þeirra starfa. Á Sandbrekku var hann 5 ár. Það mun hafa verið fjórða árið hans þar, að hann var eitt sinn staddur úti á beitar- húsi og átti að lagfæra fjárhúsdyr. Hafði hann þar hand- axar tötur, sem hann hjó til með dyrastaf í húsdyrnar. Vildi honum þá sú slysni til að hann hjó á vísifingur vinstri handar, svo af tók fingurinn rétt framan við miðlið, en hékk þó við á skinnpjötlu. Ekki lét Jóhann þetta mikið á sig fá, en tók upp vasahníf sinn og skar fingurinn af og fleygði honum frá sér. Segir hann seppa sinn hafa séð fyrir fingrinum. Ekki var Jóhann heldur þegar heim kom að lýsa áverkanum á hendur sér, en fékk þó unglingspilt, sem var á bænum, til að þvo upp sárið og binda um. Ætlaði hann svo að láta sem ekkert hefði orðið að og leyna þessu. Það tókst að vísu fáeina daga, en þar kom að ekki var það hægt leng- ur, því drep kom í sárið og óþolandi kvöl í alla hend- ina. Þó fundust honum kvalimar mestar í því, sem af- höggvið var fingrinum. Nærri lá að þyrfti að taka höndina af. Er þetta alllöng saga, en verður ekki rakin hér frekar, nema Kristján Kristjánsson læknir á Seyðis- 40 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.