Heima er bezt - 01.02.1963, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.02.1963, Blaðsíða 9
MAGNÚS BJÖRNSSON Á SYÐRA-HÓLI: er ée viss um í í Bjarni hét maður Bjarnason og bjó á Steinnýjar- stöðum og Bakka á Skagaströnd á öndverðri 19. öld. Þuríður hét köna hans Bjarnadóttir. Bjarni drukknaði í fiskiróðri á höfuðdaginn 29. ágúst 1842, hálf sjötugur. Þeir voru þrír á báti í mein- lausu veðri, komu í stóran drátt og hvolfdi undir þeim. Þar fórst Bjarni og Tómas Jónsson tengdasonur hans, en þriðja manni, Kristjáni Guðmundssyni, er kallaður var „söngur“, var bjargað af kili. Dætur Bjarna og Þuríðar voru Anna (f. 1810) og Guðrún (f. 1806). Anna átti fyrst Tómas Jónsson, sem drukknaði með föður hennar og síðan Markús Snorra- son, þingeyskan mann að ætterni. Börn átti hún með báðum mönnum sínum og er margt fólk frá henni kom- ið. Sonur hennar, Tómas Markússon, var faðir Onnu húsfreyju í Víkum á Skaga, nafntogaðrar konu fyrir dugnað og skörungsskap. Guðrún Bjarnadóttir var í vistum á yngri árum og ekki til lengdar í sama stað. Hún komst vestur að Breiða- bólstað í Vesturhópi, en þar var þá prestur séra Jón Þorvarðsson, hniginn nokkuð að aldri. Þorvarður sonur hans var aðstoðarprestur, og voru þeir feðgar kallaðir nokkuð ltvenhollir. Guðrún varð þunguð í vistinni og ól dóttur sem Margrét hét (f. 1829). Hún var kennd manni lítilsháttar er Magnús hét, en það ætluðu flestir, að Margrét væri rangfeðruð og að séra Þorvarður væri réttur faðir að henni. Hún ólst að nokkru upp með móður sinni og varð greind kona og skáldmælt. Þó að hún væri skrifuð Magnúsdóttir, var hún í daglegu tali kunnugra manna jafnan kölluð Þorvarðardóttir. Ekki andmælti Guðrún móðir hennar því. Margrét giftist Benedikt Benedikts- syni frá Meyjarlandi, Magnúsonar prests í Fagranesi Arnasonar. Dóttir þeirra var Guðrún, sem víða var, dá- vel greind en undarleg, fór með vísnaþvaður, ræðuhöld og spilalagnir í spádómsskyni. Hún var kölluð „fyrir- lestra Gunna“ og giftist ekki. Benedikt og Margrét voru á hrakhólum og hokruðu á ýmsum stöðum. Mar- grét var skapstór, gífuryrt og eyðslusöm, en Benedikt þungur til vinnu og samt karlmenni hið mesta. Þeim búnaðist illa, samdi illa og skildu. Guðrún Bjarnadóttir, móðir Margrétar, giftist 4. jan. 1841 Sölva Ásmundssyni, Þorleifssonar, bjuggu í Höfða- hólum og víðar og voru bamlaus. Guðrún var greindar- kona, myndarleg og vel verki farin. Hún var skapstór og gustmikil. Fór ekki lítið fyrir henni hvar sem hún var. Henni var viðurnefni gefið og kölluðu gárungar hana kastanrössu. Hún var oft til þess fengin að vera frammistöðukona í brúðkaupsveizlum og öðram slík- um stórhófum. Þá var siður að bera steik fyrir veizlu- gesti og annað góðmeti og tilhaldsmat. Það var eitthvert sinn í brúðkaupsveizlu, að Guðrún stóð fyrir matargerð og hafði undir sér konur nokkrar til aðstoðar og báru veizlukostinn fyrir gesti. Þær sögðu Guðrúnu að veizlugestir létu illa við steikinni, kölluðu hana bæði brennda og hráa og ólseiga í tilbót og ekki bjóðandi dándis mönnum í stórhófi. Er Guðrúnu bár- ust þessi tíðindi tók hún viðbragð hart, brunaði inn í veizlusalinn, þar sem gestir sátu ólundarfullir og jóðl- uðu steikina. Hún drundi reiðilega með þrumu raust: „Mér er sagt að þið setjið skömm í steikina. Hún er víst fullgóð í helv.... kjaftana á ykkur“. Það var ekki lítill á henni svipurinn, er hún hreytti þessu. Síðan kast- aði hún rassi harkalega og hvarf aftur til eldhúss. Börn áttu þau ekki, Sölvi og Guðrún. En honuin varð það á að gera barn vinnukonu þeirra. Er Guðrún vissi sönnur á því ódæði varð hún heldur en ekki beisk við þau bæði er frömdu slíkt ódæði og sparaði ekki stór orð og ljót. Nú kemur að því, að vinnukonan leggst á sæng og elur barn sitt,. Eftir sólarhrings sængurlegu kemur Guðrún og skipar henni að ldæðast og ganga til verka. Stúlkan var máttfarin og beiddist hóglátlega að mega hvílast ögn lengur. „Þú verður ekki spurð að því, drósin“, svaraði Guð- rún og sneri upp á sig snúðuglega. Við mann sinn var hún lengi síðan sem harðasti norð- angarður á útmánuðum og minnti hann oft og ótæpt á ljóta hrösun. „Það er ég viss um að allir hórkarlar fara til helvítis.“ „Ekki þó prestarnir, Guðrún mín, sagði Sölvi með hægð. (Eftir sögnum á Skagaströnd). FJÓSA-JÓN. Jón hét maður frá Fjósum í Svartárdal. Hann var kallaður Fjósa-Jón, ágjarn og maurapúki mikill. Ekki var hann gullfrómur. Einhvern tíma var hann á ferð undir Jökli og stal þar peningum. Labbaði hann þaðan (Framhald á bls. 50.) Heima er bezt 45

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.